Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015
ÍSLENSKUR TEXTI
Besta leikkona
í aðalhlutverki
WILL FERRELL OG KEVIN HART
HAFA ALDREI VERIÐ BETRI.
ÍSLENSKT TAL
SÝND Í 2D OG 3D
HÖRKUGÓÐ SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA TAKEN
FYNDNASTA
GAMANMYND
ÞESSA ÁRS!
ÓDÝRT KL. 5
800 KR. BARNAVERÐ FYRIR ALLA. E F I LL
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxus
SÝND Í
2D OG 3D
AF TÓNLIST
Heiða Eiríksdóttir
heidatrubador@gmail.com
Fjórða undanúrslitakvöldMúsiktilrauna 2015 reynd-ist afar sterkur lokahnykk-
ur á því sem á undan var gengið.
Síðustu níu hljómsveitirnar stigu á
svið, einbeittar og tilbúnar í slag-
inn, en það sama gilti þar eins og
svo oft: Margir kallaðir en fáir út-
valdir.
Gringlombian reið á vaðið,
hálf-kólumbískur tónlistarmaður
frá Akureyri. Hann var flinkur gít-
arleikari og með gott vald á
skemmtilegum spilaköflum en lögin
hljómuðu fremur kunnuglega og
bættu ekki miklu við hið tónlist-
arlega landslag eins og við þekkj-
um það í dag.
Frá Akureyri hoppuðum við
næst á Suðureyri þaðan sem
Rythmatik koma og hljómsveitin
spilar tónlist undir áhrifum frá
indí-hetjum níunda áratugarins, en
hefur líka sinn eigin hljóm. Þeir
renndu í lögin af miklu öryggi og
prógramið var vel upp byggt og
flæði og sánd til fyrirmyndar.
Við tóku SíGull frá Reykja-
nesbæ sem spila fjúsjón-popp sem
ætti ágætlega heima í stjörnu-
merkjamynd frá sjöunda áratugn-
um. Sveitin er sex manna og flutn-
ingur var frábær en lögin
full-óeftirminnileg.
Volcanova var dúett skipaður
gítarleikara og trommuleikara sem
spila óskilgreindan hávaðametal,
og þótt gítarleikarinn hafi verið
mjög einbeittur í sínu og í fíling,
þyrftu þeir að taka formið einu
skrefi lengra og leyfa sér að fara í
alvöru tilraunir. Það vantar að
sleppa dýrinu lausu.
Síðasta band fyrir hlé var
Captain Syrup sem spilar harða
fönk-tónlist sem er undir áhrifum
frá böndum eins og Primus en einn-
ig í sínum eigin hljóðpælingum.
Captain Syrup er tvímælalaust
skrýtið fönk-dýr og ekki allra en ef
maður strýkur feldinn rétt fer það
að mala og maður dettur inní dá-
leiðandi tónlistina.
Kaffihlé var kærkomið ogeyru áhorfenda þurftu einnig
smá pásu til að ná aftur upp fyrri
styrk en svo var komið að Purrple
Blaze. Þar var greinilega um byrj-
endur að ræða og mikið vantaði
uppá að flæðið kæmist til skila, og
texti skilaði sér illa eða ekki.
Flakkað um fjórðu víddina
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rythmatik Dómnefnd kaus hljómsveitina áfram í úrslit.
Rafmagnað var stórfengleg
skemmtun svo ekki sé meira sagt.
Söngvari byrjaði á því að henda
kynni af sviðinu áður en hann var
búinn að klára að lesa upp kynn-
ingu á sveitinni en í Rafmagnað eru
sex einstaklingar sem öll koma
fram undir sviðsnöfnum: Skurður,
Séra Dauði, Kjarnorka, Dóms-
dagur, Dr. Glamúr og Soffía voru
alveg frábær og hvet ég þau til að
semja og setja upp rokk-söngleik í
anda Rocky Horror Picture Show,
en tónlistin var mjög söng-
leikjaskotin og söngvarinn minnti á
Meatloaf. Ég myndi mæta.
AvÓka spila mjög rólega og
mjúka tónlist og hefðu mögulega
getað átt erfitt með að koma sér
inn í sína stemmningu eftir hið raf-
magnaða Rafmagnað, en það gekk
eins og í sögu. AvÓka hljómaði
helst eins og rólegri og órafmagn-
aðri útgáfa af Skakkamanage,
poppað en ófyrirsjáanlegt. Notkun
hins skemmtilega hljóðfæris Harm-
onium, sem er pumpuorgel, setti
svip sinn á hljóminn og bandið
heillaði áhorfendur.
Að lokum var komið að Apollo,
strákabandi frá Akranesi og þar
eru fínir söngvarar sem tókst vel
upp í röddunum, en það er helst að
það þurfi að þétta og styrkja hljóm-
inn í bandinu og auka aðeins kraft-
inn í trommuspili, því það er fín
lína á milli þess að vera mjúkt og
vera máttlaust.
Niðurstaða kosningar afþessu prýðilega undan-
úrslitakvöldi, þar sem bæði var
flakkað í tíma og rúmi, var að sal-
urinn valdi AvÓka en dómnefnd
kaus Rythmatik áfram í úrslitin.
Það stefnir í frekari ferðalög um
gróskumiklar lendur sköpunar í
Hörpu á laugardag. Sjáumst þar.
» Söngvari byrjaði áþví að henda kynni
af sviðinu áður en hann
var búinn að klára að
lesa upp kynningu á
sveitinni ...
Apollo Strákaband frá Akranesi
með fínum söngvurum.
Avóka Spilaði mjög rólega og mjúka tónlist. Hljómaði helst eins og rólegri
og órafmagnaðri útgáfa af Skakkamanage. Salurinn valdi Avóka.
Rafmagnað Sex einstaklingar sem koma fram undir sviðsnöfnunum Skurð-
ur, Séra Dauði, Kjarnorka, Dómsdagur, Dr. Glamúr og Soffía.
Fúsi
Nýjasta kvikmynd Dags Kára Pét-
urssonar. Sjá viðtal á bls. 38.
Loksins heim
Teiknimynd um geimveruna Ó sem
er svo seinheppin að hún fellur í
ónáð hjá félögum sínum sem komn-
ir eru til Jarðar til að yfirtaka hana.
Ó leggur á flótta og hittir unga
stúlku, Tátilju, og köttinn hennar
og saman lenda þau í spennandi æv-
intýrum og hjálpast að við að ná
markmiðum sínum, þ.e. að finna
móður Tátilju sem er í haldi geim-
vera og koma Ó aftur heim til sín.
Leikstjóri er Tim Johnson.
Metacritic: 48/100
Get Hard
Gamanmynd með Will Ferrell og
Kevin Hart í aðalhlutverkum. Fer-
rell leikur milljónamæring sem
dæmdur er til 10 ára fangelsis-
vistar fyrir fjársvik. Hann leitar til
eina mannsins sem hann telur hafa
verið í fangelsi, Darnell, sem er
starfsmaður bílaþvottastöðvar, og
biður hann að herða sig fyrir fang-
elsisvistina. Darnell hefur aldrei
setið í fangelsi en tekur verkefnið
að sér þar sem gríðarhá laun eru í
boði. Leikstjóri er Etan Cohen.
Metacritic: 34/100
Bíófrumsýningar
Fúsi, hörkutól og
seinheppin geimvera
Harðir Will Ferrell og Kevin Hart í
gamanmyndinni Get Hard.