Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 Gisting Svefnpokagisting Salarleiga www.arthostel.is Námskeið Skráning í Polar Beer deildina fyrir sumarið 2015 er hafin. Þau lið sem hafa áhuga eru vin- samlega beðin um að hafa sam- band í síma 697 8526 eða e-mail runarstefansson@gmail.com Stjórn Polar Beer deildarinnar í knattspyrnu. Til sölu Rafmagnsreiðhjól, eldri árgerð seld með allt að 50% afslætti, verð nú frá 75.000, takmarkað magn. www.el-bike.is Hvaleyrarbraut 39, 220 Hafnarfirði, opið virka daga 8–16, sími 864 9265 Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Toppávöxtun Fyrirtæki óskar eftir fjármögnun til skamms tíma. Um er að ræða góða og trygga fjárfestingu. Mjög góð ávöxtun í boði. Tilboð merkt: ,,Strax - 25870” sendist á box@mbl.is sem fyrst. TILBOÐ VIKUNNAR Teg. DALILA - stakar stærðir C- FF á kr. 4.800. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur TILBOÐ - TILBOÐ Vandaðir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Tilboðsverð: 3.500. TILBOÐ - TILBOÐ Vönduð dömustígvél ur leðri, fóðruð. Tilboðsverð: 12.500. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Bílar óskast Óska eftir 2ja dyra (4ra dyra) Toyota Rav Óskað er eftir 2ja dyra (4ra dyra) Toyota Rav, með 2L vélinni, fjórhjóla- drifsbíll - ekki 1.8 L vélinni. Langar í bíl sem hefur verið hugsað um af hlýju. Birgir Jóa, sími 820 2223. Húsviðhald Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373. brbygg@simnet.is Hreinsa þakrennur, laga vatnstjón, ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smáauglýsingar mbl.is alltaf - allstaðar Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is ✝ Guðrún Sigríð-ur Sigurðar- dóttir fæddist á Fagurhóli í Sand- gerði 10. janúar 1929. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold í Garðabæ 31. jan- úar 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Einarsson, verk- stjóri í Sandgerði, f. 8.11. 1878 í Tjarnakoti, Miðneshreppi, d. 26.2. 1963, og Guðrún Sigríður Jónsdóttir húsmóðir, f. 27.9. 1889 á Seljalandi í Fljótshverfi, V-Skaft, d. 17.10. 1980. Systkini Guðrúnar voru: Einar Guðjón, f. 1913, d. 1922, Sigríður María, f. 1915, d. 2010, Svava Kristín, f. 1919, d. 1999, Jóna Margrét, f. 1920, d. 2009, Einarína Jóna, Guðmundsdóttir, f. 1885, d. 1964. Börn Guðrúnar og Har- aldar eru: 1) Guðbjörn Bene- dikt, f. 16.11. 1952, d. 5.12. 1966. 2) Ólafur Lárus, f. 19.2. 1954, sambýliskona Jóhanna S. Hannesdóttir, f. 1958. 3) Sig- urdór, f. 25.6. 1956. 4) Eygló, f. 9.7. 1957. 5) Birgir, f. 20.8. 1958, sambýliskona Hrefna Vestmann, f. 1966. 6) Haraldur Rúnar, f. 18.4. 1961, maki Ósk Eiríksdóttir, f. 1964. 7) Ellert, f. 5.9. 1962, maki Brynja K. Pétursdóttir, f. 1977. 8) Guð- björg Svanfríður, f. 17.9. 1970, maki Marteinn H. Þorvaldsson, f. 1967. Barnabörnin eru 30 og barnabarnabörnin 28. Guðrún og Haraldur hófu búskap sinn í Keflavík en það- an lá leiðin að Klængsseli í Flóa þar sem þau stunduðu bú- skap þar til þau tóku sig upp og fluttu til Svíþjóðar og bjuggu þar í fjögur ár. Þá lá leiðin aftur til Íslands og þá í Biskupstungur og að lokum settust þau að í Kópavogi. Útför Guðrúnar hefur farið fram. f. 1923, d. 2015, Margrét Sigurveig, f. 1924, d. 2008, Jóna María, f. 1925, Þórdís, f. 1927, og Hulda, f. 1930, d. 1977. Guðrún fór sem unglingsstúlka til starfa sem stofu- stúlka eins og það var kallað í Reykjavík. Hún stundaði síðar nám við Hús- mæðraskólann á Varmalandi og öðlaðist þar réttindi sem handavinnukennari þótt hún hafi ekki starfað sem slíkur. Eftirlifandi eiginmaður Guð- rúnar er Haraldur Sigurðsson, f. 9.10. 1926, þau giftu sig 2. júní 1952. Foreldrar hans voru Sigurður J. Benediktsson, f. 1899, d. 1981, og Svanfríður A. Nú er dagur að kveldi kominn og hún mamma er laus við sínar þjáningar. Mamma var söngelsk og elskaði að syngja, Hún og átta systur hennar ólust upp á Fagurhól í Sandgerði og ein- kenndist æskan af gleði, söng og saltfiski. Mamma var eins og aðrar konur á hennar aldri heimavinnandi og sá um uppeld- ið á börnum sínum, hún var flott hannyrðakona og hönnuður og var mjög nýtin enda var það nauðsyn á svona stóru heimili. Hún hafði líka yndi af því að ferðast og fór bæði innanlands og utan. Þar sem hún var alltaf syngjandi smituðumst við syst- kinin auðveldlega af þessum tón- listaráhuga sem við fengum hreinlega með móðurmjólkinni og eigum við mjög auðvelt með að taka lagið og gerum oft. Mamma hafði gaman af litlum ævintýrum og var alltaf til í að taka þátt í sprelli með okkur, það var nefnilega prakkari í henni. Mamma var stolt af stóra hópnum sínum og ánægðust þeg- ar allur hópurinn kom í heim- sókn, þá var mikið hlegið og haft gaman saman og jafnvel farið í leiki. Mamma var yndisleg kona og við systkinin söknum hennar og þökkum fyrir allt að leiðar- lokum. Í morgunskímu myrkrið vék, í móðurskauti lífið lék. Silfurtær augun skær, blika ei meir. Lífhlaup þitt var lof og náð, á stundum erfitt, þyrnum stráð. Silfurtær augun skær, blika ei meir. Sit ég einn, syrgi þig, sorgarfleinn stingur mig. Lífið grær, auðnu nær, á endanum Drottinn fær. Kærleikur – koss á brá, þrái ég að fá. Ég sakna mest er sólin sest, svartir skuggar gægjast á glugga. Við sjáumst á ný þó síðar verði, þökk sé því sem Kristur gerði. Silfurtær augun skær, blika ei meir, við sjáumst á ný. (Þórir Kristinsson) Ólafur, Sigurdór, Eygló, Birgir, Haraldur, Ellert og Guðbjörg. Elsku amma, ég vildi óska að ég gæti farið með bænirnar mín- ar með þér aftur og sofið á eggjadýnunni við hliðina á rúm- inu þínu. Farið í göngutúra og talað um veggjakrot sem okkur fannst vera list sem var verið að skemma með því að mála yfir það með örþunnri hvítri máln- ingu sem sást í gegnum. Gefa öndunum brauð og tala um dag- inn og veginn. Ég reyni að hugga mig við það að þú sért á betri stað og þér líði vel. Ég veit að við munum hittast aftur og þá fæ ég ömmuknús, kannski þurf- um við að bíða í svolítinn tíma eftir því en ég get beðið. En þangað til sá tími kemur langar mig bara að segja – ég elska þig. Elísabet Cathinca. Guðrún Sigríður Sigurðardóttir Þegar komið er að kveðju- stund fer hugurinn á flug og þá er gott að geta yljað sér við ljúfar minningar, sem ég svo sannarlega hef eignast, um Gunnu frænku sem núna hefur fengið langþráða hvíld frá þessari jarðvist. Það hefur verið margmennt móttökuliðið sem tók á móti henni enda margir farnir sem hún unni og þekkti. Ég var ekki há í lofti þegar ég var mína fyrstu daga í Ekru hjá þeim heiðurshjónum Gunnu og Ísleifi, og má segja að þar hafi ég fengið sveita- delluna. Þær stundir sem ég var í Ekrunni eru mér ofar- lega í huga. Oft vorum við þar nokkrir krakkarnir yfir sum- artímann, sem vildu láta kalla sig kaupafólk, alltaf var nóg að gera fyrir okkur, en vinnan göfgar manninn og lærðum við margt á þessum tímum. Það var ávallt mikill gesta- gangur á heimili Gunnu og alltaf var hún að hugsa um að koma einhverju í gesti sína og var hún ótrúlega flink að út- búa eitt og annað á engri stundu. Alltaf til nóg handa öllum og nóg pláss fyrir alla. Það var gott að koma til Gunnu, alltaf tími fyrir spjall og góðan kaffisopa, og sagði ég oft við hana að maður færi alltaf ríkari frá henni, já og líðanin eitthvað svo miklu betri. Það var ekki sjaldan sem Gunna kom með gullkorn sem við eigum klárlega eftir að Guðrún Valmundsdóttir ✝ Guðrún Val-mundsdóttir fædd 2. mars 1921 í Galtarholti á Rang- árvöllum. Hún lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi, Hellu, 19. febúar 2015. Útförin fór fram frá Oddakirkju 2. mars 2015. minnast við góð tækifæri. Núna síðustu árin var sjónin orðin döpur, en það var alveg ótrúlegt hvað hún gat samt séð, eins og ef aukakílóun- um hafði fjölgað, ný húfa eða jafn- vel nýr litur á augabrúnum, þetta fannst okkur bara dásamlegt, svona oftast. Hún sagði bara það sem henni fannst þó svo að sumum þætti það kannski óþægilegt, já hún kom svo sannarlega til dyr- anna eins og hún var klædd. Á Lundi átti Gunna góðar stundir þar sem hún naut umönnunar þessa frábæra sarfsfólks sem þar er, enda talaði hún alltaf um hvað þessar „stúlkur“ væru dásam- legar við sig. Gestagangur var þar líka mikill og það var mik- ið atriði að fá sér nammi úr ís- skápnum hjá Gunnu og alls ekki gleyma að kvitta fyrir komuna í gestabókina. Á tyllidögum fékk hún sér sérrí og var ekki spör á að bjóða með sér. Það að eiga góða vinkonu er ómetanlegt, en þær átti Gunna nokkuð margar, sem litu inn til hennar, heilsuðu upp á hana og buðu svo góða nótt. Ég er þakklát fyrir að hafa þekkt Gunnu, hún var réttsýn og traust kona sem vildi fá að fylgjast með sínu fólki. Tók erfiðu stundunum í lífinu með æðruleysi og trúði á Guð sinn og bað hann oft að hjálpa þeim sem þurftu á hans hjálp að halda og hún kunni líka að þakka honum fyrir góðu stundirnar. Fjölskyldu Gunnu minnar sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur og þakka fyr- ir að fá að vera ein af ykkur. Anna María Kristjánsdóttir. ✝ Sigurður Krist-mannsson fæddist 11. janúar 1926 að Hlöðvers- nesi á Vatnsleysu- strönd. Hann and- aðist á Landspítal- anum við Hring- braut 18. mars 2015. Foreldrar Sigurðar voru hjónin Þuríður Ingibjörg Klemens- dóttir húsfreyja, f. 5.3. 1888, d. 5.5. 1968, og Kristmann Run- ólfsson kennari, f. 21.2. 1886, d. 12.5. 1954. Þau bjuggu að Hlöð- versnesi á Vatnsleysuströnd. Systkini Sigurðar eru: Klemens, f. 1917, d. 2008, Guðrún, f. 1919, d. 2007, Runólfur Haukur, f. 1920, d. 1969, Sig- urlaug Fjóla, f. 1921, d. 2010, Guð- laug Ragnheiður, f. 1922, d. 1923, Guð- laugur Ragnar, f. 1924, d. 1980, Fanney Dóra f. 1932. Sigurður var ógiftur og barn- laus. Sigurður stundaði almennt barnaskólanám í Stóru- Vatnsleysuskóla og lauk þar barnaprófi. Hann fór ungur á sjó og stundaði sjómennsku all- an sinn starfsaldur. Útför Sigurðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 27. mars 2015, kl. 13. Þá er hann Siggi frændi allur. Þó svo að við værum ekki í miklu sambandi í seinni tíð man ég eftir þeim fjölmörgu ferðum sem við fórum saman um Suðurnes þver og endilöng þegar ég var lítill patti. Þá sérstaklega um Voga og Vatnsleysuströnd, auðvitað. Æskustöðvarnar voru honum hugleiknar þá, og reyndar alla tíð. Ég man satt að segja ekki hversu oft við gengum að rústum Hlöðuness og sjálfsagt sagði hann mér margar sögur af lífinu á þeim bænum, þó ég muni þær ekki allar. Lengstan tímann síðan þetta var hittumst við varla nema í mý- flugumynd. Hann var ekkert sér- staklega duglegur að þiggja heimboð þó svo að oft væri tilefni væri til. Það var ekki fyrr en sein- asta sumar að við Rósa systir tókum okkur til, gengum inn í Fossvog og bönkuðum upp á í Gautlandinu. Við spjölluðum saman í góða stund og þessi heimsókn reyndist hin besta skemmtun. Ákváðum í samein- ingu að þetta yrðum við að end- urtaka sem allra fyrst. En tíminn flaug frá okkur. Þetta var í sein- asta skiptið sem ég heimsótti hann í Gautland. Ég hugsa á þessari stundu til móður minnar sem nú er ein eftir af systkinunum frá Hlöðunesi. Ég veit að þetta er henni áfall. En hún trúir því að þau eigi eftir að hittast á ný og ég get ekki annað en vonað að svo verði. Vignir Sveinsson. Sigurður Kristmannsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.