Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 Andríki skrifar:   Af og til gerist það að stjórn-málamaður kemst að kjarna málsins. Það gerði Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn- aðarráðherra í um- ræðum á Alþingi í fyrradag. Haldin var sérstök umræða um svokallaðan fjárfestingarsamn- ing við fyrirtækið Matorku, „ívilnanir til nýfjárfestinga“ eins og það er stundum nefnt til að breiða yfir fyrirgreiðslupólitíkina. Ráðherranum var heitt í hamsi og samkvæmt fréttum varði hún hendur sínar svona:    Ég ætla að fullyrða það hér ognú að þetta mál og þessi samn- ingur hefði fengið nákvæmlega sömu afgreiðslu í tíð þriggja síð- ustu iðnaðarráðherra, þeirra Katr- ínar Júlíusdóttur, Oddnýjar Harð- ardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.    Ætli í þessu sé ekki fólginn mik-ill sannleikskjarni, sem for- ysta Sjálfstæðisflokksins áttar sig engan veginn á. Er það ekki þannig með næstum öll embættisverk nú- verandi ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins, að þau hefðu alveg eins getað verið unnin af Steingrími J. Sigfús- syni, Katrínu Jakobsdóttur, Krist- jáni Möller, Katrínu Júlíusdóttur eða Össuri Skarphéðinssyni? Hvað hafa ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins gert til að snúa við af þeirri braut sem ráðherrar síðustu vinstristjórna höfðu markað? Hvaða lög, sem sett voru í tíð síð- ustu ríkisstjórnar, hafa verið af- numin? Hvaða reglugerðir? Hvaða námskrá? Hvaða skemmdarverk í stjórnarráðinu? Hvaða skattar? Hvaða pólitíska breyting gerð?    Hvað?“ Ragnheiður Elín Árnadóttir Hvað? STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.3., kl. 18.00 Reykjavík 1 snjóél Bolungarvík 0 léttskýjað Akureyri 3 léttskýjað Nuuk -10 léttskýjað Þórshöfn 4 skýjað Ósló 0 snjókoma Kaupmannahöfn 6 skýjað Stokkhólmur 3 súld Helsinki 1 heiðskírt Lúxemborg 5 skýjað Brussel 5 skýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 7 skýjað London 12 léttskýjað París 7 alskýjað Amsterdam 5 skýjað Hamborg 7 skýjað Berlín 7 skýjað Vín 15 skýjað Moskva 1 alskýjað Algarve 20 léttskýjað Madríd 15 léttskýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 13 skúrir Winnipeg -5 léttskýjað Montreal 5 alskýjað New York 9 þoka Chicago 4 skýjað Orlando 25 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:04 20:03 ÍSAFJÖRÐUR 7:07 20:11 SIGLUFJÖRÐUR 6:49 19:54 DJÚPIVOGUR 6:33 19:33 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fulltrúar Sorpu bs. og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga áttu nýverið fund með Sigrúnu Magnúsdóttur umhverfisráðherra um rekstrar- umhverfi og ábyrgðarskiptingu í sorphirðu- og urðunarmálum og hvernig standa beri að útboðs- málum. „Við reifuðum stöðuna eins og hún er, umhverfisráðherra ætlaði að setja sig betur inn í málin og síðan reiknum við með að hittast aftur,“ segir Bjarni Torfi Álfþórsson, stjórnarformaður Sorpu, um fundinn með ráðherra. Það er ósk sveitarfélaganna að ráðherra beiti sér fyrir breytingu á lögum þannig að leikreglur í sorp- málum séu skýrari. Bjarni Torfi seg- ir nýlegan héraðsdóm hafa kallað eftir því, en þar var staðfest sekt Samkeppniseftirlitsins á hendur Sorpu fyrir að hafa misnotað mark- aðsráðandi stöðu sína með ólíkum af- sláttarkjörum til mismunandi við- skiptavina. „Það kom skýrt fram í niðurstöðum dómsins að leiðir þurfa að vera skýrari. Greinilega er eitt- hvað óljóst í löggjöfinni þegar kæru- mál ganga á víxl, sum mál tapast og sum vinnast,“ segir Bjarni Torfi og er ánægður með viðbrögðin í um- hverfisráðuneytinu, þar á bæ sé mönnum vel kunnugt um stöðuna sem sveitarfélög og sorphirðufyrir- tæki séu í um allt land. „Samkvæmt lögum ber sveitarfélögum að sjá um sorp frá öllum heimilum í landinu og það þarf að vera skýrt hvernig menn feta veginn.“ Álfsnes í útboðsferli Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á miðvikudag telur kæru- nefnd útboðsmála að fyrirhugaður samningur Sorpu við danska félagið Aikan um uppbyggingu gas- og jarð- gerðarstöðvar í Álfsnesi án útboðs fullnægi ekki skilyrðum laga um op- inber innkaup. Sorpa unir niðurstöðunni og hyggst fara með verkið í útboðsferli. Þetta þýðir að framkvæmdir í Álfs- nesi frestast um a.m.k. ár en til stóð að taka stöðina í notkun árið 2016. Bjarni Torfi segir óhjákvæmi- legt að verkið tefjist af þessum völd- um. Áfram verði unnið að framtíð- arlausn á urðun og förgun sorps fyrir höfuðborgarsvæðið, þar sem munu búa um 250 þúsund manns árið 2020. Sorpa hafi sett sér þau markmið að draga úr urðun á lífrænum úrgangi fyrir þann tíma. Telur Bjarni Torfi að þau markmið náist. Ræddu breytt regluverk í sorpi  Fundað með umhverfisráðherra Morgunblaðið/Frikki Förgun Sorpa bs. tekur á móti sorpi höfuðborgarbúa og urðar. Kjörstjórn FÍR vill minna á að kjörfundur stendur yfir í kosningu um stjórn og trúnaðarráð Félags íslenskra rafvirkja. Kjörgögn þurfa að berast til skrifstofu FÍR fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 31. Mars, eða vera póstlögð fyrir lokun pósthúsa hinn sama dag. 27.mars 2015 Kjörstjórn Félags íslenskra rafvirkja. Allsherjaratkvæðisgreiðsla til stjórnarkjörs og trúnaðarráðs Félags íslenskra rafvirkja Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp undir for- ystu Sigurgeirs Þorgeirssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðuneyt- inu, um hvernig bregðast eigi við aukinni eftirspurn eftir matvælum og hækkandi verðlagi á erlendum mörkuðum. Starfshópurinn á jafnframt að móta tillögur um hvernig auka megi matvælaframleiðslu á Íslandi. Þá mun hópurinn huga að nýsköp- un og markaðs- og sölumálum. Starfshópurinn á að skila af sér skýrslu til ráðherra eigi síðar en 1. október á þessu ári. Auk Sigurgeirs eru m.a. Ásmundur Einar Daðason, Birna Þorsteinsdóttir og Haraldur Benediktsson í starfshópnum. Skoða tækifæri í íslenskum landbúnaði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Verð Aukin eftirspurn eftir matvælum og hækkandi verð skoðað af starfshópi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.