Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 Aðalfundur Regins hf. verður haldinn 21. apríl 2015 REGINN HF. HAGASMÁRA 1 201 KÓPAVOGUR SÍMI 512 8900 REGINN.IS Stjórn Regins hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Björtuloftum, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 21. apríl 2015 og hefst stundvíslega kl. 16:00. Dagskrá fundarins er svohljóðandi, sbr. 15. gr. samþykkta félagsins: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á næstliðnu reikningsári. 4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar. 5. Ákvörðun um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum. 6. Tillaga stjórnar til breytinga á samþykktum, ef einhverjar hafa borist. 7. Kosning félagsstjórnar. 8. Kosning endurskoðanda. 9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil. 10. Önnur mál. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en tvær vikur eru til aðalfundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess, www.reginn.is/fjarfestar. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundar- manna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 16. apríl 2015. Framboðum skal skila á skrifstofu Regins hf. í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, Kópavogi. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess hversu margir sækja hann sbr. 14. gr. samþykkta félagsins. Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestar. Einnig eru skjölin hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum fyrir aðalfund. Önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardegi. Kópavogur, 27. mars 2015 Stjórn Regins hf. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Ætli það sé ekki umferð-in sem er það hættu-legasta sem við höfumupplifað hingað til. Í Íran var þetta verst, en þar virtu mjög fáir umferðarreglurnar og fólk keyrði oft yfir á rauðu ljósi,“ segir Ása Steinarsdóttir sem spjallaði við blaðamann frá Srí Lanka með aðstoð snjallsímaforritsins Skype. Ása er í heimsreisu ásamt kærasta sínum, Andra Wilberg Orrasyni, en þau lögðu af stað um áramótin og hyggj- ast ekki koma heim aftur fyrr en um þau næstu. Þau hafa verið á flakki um Mið-Austurlönd og eru nú farin að fikra sig austar á hnöttinn en annars segir hún ferðina ekki skipulagða í þaula. „En til þess að kynnast vel menningunni í hverju landi þá reyn- um við að dvelja þar í að minnsta kosti mánuð,“ segir Ása. Bakpokaferðalag þeirra hófst í Istanbul í Tyrklandi, þaðan fóru þau Mesta ógnin stafar af umferðinni Íran, Dubai, Óman, Tyrkland og Srí Lanka eru þau lönd sem Ása Steinarsdóttir og Andri Wilberg Orrason hafa heimsótt það sem af er ári. Fleiri lönd munu fljót- lega bætast á listann því þau eru í árs heimsreisu. Dvölina í Íran segja þau þá merkilegustu hingað til en þau dásama land og þjóð og blása á þær sögur að ekki sé öruggt fyrir ferðamenn að heimsækja landið. Íran Andri uppi á þaki á gamla bazarnum í eyðimerkurbænum Yazd í Íran. Þótt vélklippur hafi að mestu komið í stað handklippa og hnífa við rúning sauðfjár, verður gamla verklagið í há- vegum haft í portinu á bak við Kex Hostel á morgun, laugardag, kl. 14.00. Þá mun færasta rúningsfólk landsins keppa um Gullklippurnar 2015. Keppendur eru af báðum kynjum og stendur sá sem framkvæmir sneggstu og bestu rúninguna uppi sem sigurvegari. Vanir menn Meðal keppenda í ár eru Hafliði Sævarsson, núverandi Íslandsmeist- ari í rúningi, Julio Cesar, sigurvegari Gullklippanna árið 2014, Gavin Ste- vens frá Skotlandi og Englending- urinn Foulty Bush. Sauðféð er frá Hraðastöðum í Mos- fellsdal og kemur það í fylgd dýra- læknis sem sér um að allt fari mannúðlega fram eins og að- standendur keppninnar, Kexland og Landssamtök sauðfjárbænda, leggja reyndar ríka áherslu á Á meðan keppnin stendur yfir er gestum boðið upp á tvíreykt sauðakjöt, kúm- enbrennivín, harmonikkuundirleik og margt fleira. Rúningskeppninni Gullklippurnar 2015 er ætlað að vera fjölskylduvæn skemmtun fyrir unga sem aldna. Efa- lítið kærkomið tækifæri fyrir borgar- búa á öllum aldri til að upplifa svo- litla sveitastemningu í miðri borg. Gullklippurnar 2015 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson Sauðfé Rúningur er töluverð kúnst og ekki á allra færi að gera það því stundum berjast rollurnar um á hæl og hnakka og atgangurinn getur orðið gríðarlegur. Rúningur í reykvísku porti Hulin Ásta vel hulin við heilögu moskuna Shah Cheragh í Shiraz í Íran. Oh! You’re from Iceland?That is so cool, with allthe glaciers, volcanos andhot springs“ … Nokkurn veginn svona voru viðbrögð flestra þeirra sem ég hitti á alþjóðlegri ráðstefnu sem ég sótti nýlega. Af einhverjum ástæðum þekkja allir til þessa skers í norðri. Margir voru með það á hreinu að hér hafði orðið bankahrun og enn fleiri reyndu af veikum mætti að bera fram Eyjafjallajökull. Hafði fólk gjarnan gaman af því að búa til eitt- hvert gurghljóð í hálsinum eftir að maður sagði nafn eldfjallsins. Því miður verður ekki það sama sagt um Frónbúann, sem oft á tíð- um mátti skammast sín fyrir van- þekkingu sína á landi viðmæland- ans: „I know a girl called Soffía,“ var um það bil það eina sem mér datt í hug að segja þegar ég hitti mann frá Búlg- aríu. Vissulega gat ég bjargað mér með því að grafa handa- hófskennt upp nöfn fótbolta- manna á borð við Hristov Stoickov og Trifon Ivanov en lengra nær vitneskja mín um Búlgaríu því mið- ur ekki. Einn Bandaríkjamaður var meira að segja að læra íslensku og gat sagt „hvað er að frétta maður?“ og „þú ert alveg úti að skíta“ sem hvort tveggja voru í hans huga dæmigerðir frasar fyrir Íslending. Ég mótmælti ekki. Ein undantekn- ing var þó á þessum mikla áhuga á Íslandi. Rúmenskur samferðamaður horfði fremur undarlega á mig þeg- ar ég sagðist vera frá Íslandi og sagði við mig: „No no no, there is no such country.“ Skiptu mótbárur mínar engu máli. Málið var út- rætt. Ísland var einfaldlega ekki til. Á endanum urðum við bara sammála um það að ég væri frá Írlandi. »„I know a girl calledSoffía,“ var um það bil það eina sem mér datt í hug að segja þegar ég hitti mann frá Búlgaríu HeimurViðars Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.