Morgunblaðið - 27.03.2015, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015
Verð frá kr. 7.990.000,-
2.0 TDI quattro, sjálfskiptur
Snjór. Frost. Ís.
Skiptir engu!
Audi Q5. Fullkominn
fyrir íslenskar
aðstæður.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · www.audi.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
Stórar ákvarðanir um losun fjár-
magnshafta verða vonandi teknar á
fyrri hluta ársins.
Þetta kom fram í máli Bjarna
Benediktssonar, fjármála- og efna-
hagsráðherra, á ársfundi Seðla-
banka Íslands í gær.
Bjarni sagði að metfjöldi væri nú
að vinna að losun haftanna og vísaði
til þess að efnahagsbatinn hefði verið
jafn og stöðugur á meðan vinnan
hefði staðið yfir. „Er svo komið að
aðstæður fyrir afnám fjármagns-
hafta geta vart verið betri en þær
sem nú ríkja á Íslandi,“ sagði
Bjarni. Hann sagði að framkvæmda-
hópurinn um losun fjármangshafta
væri að leggja lokahönd á tillögur til
aðgerða. Þær verða fljótlega lagðar
fyrir stýrinefnd og í framhaldinu rík-
isstjórn.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri sagði ekki tímabært að opin-
bera útfærslu lausna á þessum fundi
en sagði nauðsynlegt að þær varð-
veittu stöðugleikann og kæmu í veg
fyrir að viðbótarbirgðir yrðu lagðar
á ríkissjóð eða almenning.
Við þurfum afgang af viðskiptum
við útlönd og nægilega stóran gjald-
eyrisforða miðað við núverandi horf-
ur um fjárfestingu að sögn Más, sem
jafnframt benti á að Seðlabankinn
hefði aukið gjaldeyriskaup á síðasta
ári og hygðist gera það sama í ár.
Helsti óvissuþátturinn varðar
hugsanlegt gjaldeyrisútflæði og vís-
aði Már til þess að Íslendingar
myndu hvorki geta varðveitt stöðug-
leika né byggt upp traust ef bú föllnu
bankanna myndu skipta öllum
krónueignum í erlenda mynt og ef
sama myndi gerast með núverandi
aflandskrónur. Allur gjaldeyrisforð-
inn myndi þurrkast út og gott betur
ef hann yrði notaður til að verja
gengið. Afleiðingin væri ný gjaldeyr-
iskreppa. Már benti þó á að þetta
væri ýkt dæmi þar sem krónueignir
væru ekki allar lausar á þessum
tímapunkti auk þess sem hluti
aflandskróna gæti verið þolinmótt
fé. Þetta gæfi hins vegar vísbend-
ingu um hvers konar vandamál væri
við að glíma.
Stórar ákvarðanir á
fyrri hluta ársins
Lokahönd lögð á tillögur um losun gjaldeyrishafta
Morgunblaðið/Kristinn
Seðlabankastjóri Góðar aðstæður eru til losunar hafta en það er lykilatriði
að Ísland sé talið traustur fjárfestingarkostur.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
!"
"!
## $
%%!
#%
$ $
"
""
$"%!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$$
%
%#"
#""
% %$
"%%
$!
#
"%"
$%#$
$%
#
"
#"!!
%
# $
$%
"%%$
$"
!
● Alls voru rúm-
lega 21 þúsund
hluthafar í ís-
lensku félögunum
þrettán sem
skráð eru á Að-
allista Kauphall-
arinnar í árslok
2014. Hafði þeim
þá fjölgaði um
rúm 7% milli ára,
að því er fram
kemur í Markaðspunktum Arion
banka
Bent er á að sumir hluthafar séu
margtaldir enda algengt að eigendur
hluta í Kauphöllinni eigi í fleiri en
einu félagi. Stærstu hreyfingarnar á
síðasta ári má að miklu leyti rekja til
hlutafjárútboða. Flestir innlendir fjár-
festar eru í Sjóvá sem skráð var á
síðasta ári, eða um 3.000. Fæstir
voru hluthafarnir í Nýherja, eða 329 í
lok síðasta árs.
Hluthafar 21 þúsund
Skráning Um 3.000
hluthafar í Sjóvá.
Stuttar fréttir…
● Já er ekki skylt
að veita sam-
keppnisaðilum að-
gang að gagna-
grunni félagsins
undir kostn-
aðarverði, að mati
áfrýjunarnefndar
samkeppnismála.
Því hefur nefndin
úrskurðað að
ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins frá 7. nóvember skuli
felld úr gildi. Þetta leiðir til þess að
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að
sekta Já verið felld niður, en áður hafði
Samkeppniseftirlitið sektað Já um 50
milljónir króna. Áfrýjunarnefndin telur
að ósannað sé að háttsemi Já hafi falið
í sér misnotkun á markaðsráðandi
stöðu.
Já fær 50 milljóna króna
sekt fellda úr gildi
Sigríður
Oddsdóttir
● Hagnaður Rarik var 2,7 milljarðar
króna á síðasta ári og jókst hann um
37% á milli ára. Á aðalfundi fyrirtæk-
isins í fyrradag var tekin ákvörðun um
að greiða 310 milljónir króna í arð til
ríkissjóðs. Á miðvikudag undirritaði
Rarik einnig skammtíma lánasamning
við Landsbankann að fjárhæð 4,7 millj-
arðar króna sem er liður í endur-
fjármögnun eldri lána. Samningurinn
gerir fyrirtækinu kleift að velja sér hag-
kvæman tíma til endurfjármögnunar
langtímalána sem fyrirhuguð er á árinu,
segir í tilkynningu. Stjórn Rarik var
endurkjörin á aðalfundinum en hana
skipa Birkir Jón Jónsson formaður, Arn-
björg Sveinsdóttir, Björgvin G. Sigurðs-
son, Guðmundur Hörður Guðmundsson
og Huld Aðalbjarnardóttir.
Rarik greiðir ríkissjóði
310 milljónir króna í arð