Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 Bingó á lönguföstu Páskabingó var haldið í Vinabæ í Skipholtinu í fyrrakvöld og þeir sem misstu af því geta glaðst yfir því að talnahappdrættið verður endurtekið á sunnudaginn kemur. Eggert Það eru gömul sann- indi að skipulagsheildir eða fyrirtæki sem eiga auðvelt með að aðlagast breytingum lifa af breytingaskeið með að- lögun að breyttum að- stæðum. Aðlögun er ekki að hefja skapandi túlkun á reglum og starfsháttum. Aðlög- unin felst í því að velja ný viðfangsefni, hætta sumu og að að- laga starfsfólk, menntun þess og þekkingu og jafnvel með nýráðn- ingum. Minnt er á þetta hér því sumir telja að aðlögun eigi að fara fram með skapandi túlkunum á lögum og reglum. Um þetta atriði setti franski félagsfræðingurinn Emil Durkheim fram kenningu sína um siðrof. Durk- heim fjallaði um sjálfsvíg þegar hann setti fram sína kenningu um siðrof, Anomie. Þar fjallar Durkheim um mismun- andi tíðni sjálfsvíga eftir kirkjudeild- um og vísar þar til þess að siðbreyt- ingunni fylgdi upplausnarástand þar sem aldagömlum viðhorfum var hafn- að án þess að í stað þeirra kæmu heildstæð viðhorf og siðareglur, sem hafa þó mótast frá siðbreytingunni til vorra daga. Þannig er siðrof hugtak sem vísar til upplausnar samfélags þar sem samheldni og hefðbundið skipulag, sérstaklega það sem tengist við- miðum og gildum hefur veikst og við tekur lögleysa. Siðrof vísar til þjóðfélagsástands er myndast þegar breytingar eru ör- ar. Þjóðfélagsástandið sem kemur í kjölfarið svo framandi að umgengn- ishættir og gildi, sem almenningur hefur alist upp við, glata samhenginu við hinn félagslega veruleika. Miklar þjóðfélagsbreytingar, hvort heldur vegna mikillar velmegunar, sem skapast af hagrænum orsökum, mikilli vinnu og greiðum aðgangi að auðlindum, eða vegna samdráttar í framleiðslu og verðfalls á framleiðslu og eign- um, geta leitt til ástands þar sem lög og siða- reglur eru ekki virt. Al- mennt viðurkenndar umgengnisreglur og venjur, norm, missa gildi og virðingu, og þeim er ekki fylgt, án þess að nokkuð komi í staðinn. Þetta leiðir til ástands þar sem siðrof ræður ríkjum og um- gengnisreglur verða óljósar. Siðrof á Íslandi samhliða siðleysi og siðblindu Stofnanalegt siðrof, (Institutional Anomie) verður þegar stofnanir sam- félagsins, þ.e. stjórnvöld, eftirlits- aðilar og dómstólar, viðurkenna með beinum eða óbeinum hætti grundvall- arbreytingar á lögskýringum, venj- um og siðum, sem leiðir til upplaunar í samfélagi. Viðurkenning á grundvallarbreyt- ingum getur orðið á ýmsa vegu: -·Með því að stofnanir beinlínis hafna gömlum og viðteknum gildum og venjum. - Með því að stofnanir samfélags- ins niðurlægja og þagga niður í þeim sem telja að nýir siðir og venjur leiði til óæskilegrar hegðunar með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum fyrir heild- ina. - Með því að stofnanir viðurkenna nýjar og framandi skýringar á hegð- un án þess að horfa til enda á hugs- anlegar afleiðingar. - Með því að stofnanir hafast ekk- ert að þegar skapandi lögskýringar og reikningsskil birtast í samskiptum eininga og einstaklinga í samfélaginu. Durkheim taldi að græðgi væri engum líffræðilegum takmörkunum háð. Auðsöfnun í formi bankainni- stæðna er tiltölulega lítil takmörk sett vegna rýmis og vörslu. Því taldi Durkheim nauðsynlegt að setja fjár- málakerfinu reglur, svo fjármála- kerfið kollvarpi ekki öðrum þáttum samfélagsins. Fjármálamarkaðurinn lýtur sér- stökum lögmálum. Það er í raun við- urkennt með því að löggjafinn hefur með lagasetningu sett ítarlegri leik- reglur á fjármálamarkaði en í við- skiptalífinu almennt. Um rekstur fjármálafyrirtækja gildir mjög ströng löggjöf. Hún hefur þróast í takt við starfsemi á markaðnum og tekur mið af reynslu og þörf. Hún tekur þannig einkum til hins viðtekna og þekkta, en nær síður til nýjunga. Í þeim efnum verður samfélagið að reiða sig á að fagmennsku, ábyrgð og varfærni ríki í rekstrinum. Ein birtingarmynd siðrofs er skap- andi lögskýring. Með skapandi lög- skýringu varðandi löggjöf á fjár- málamarkaði er átt við að reglur séu túlkaðar að þörfum fjármálafyr- irtækis. Það kann að vera til að auka á umsvif og arðsemi þess en kann jafnframt að auka áhættu í rekstri þess. Önnur birtingarmynd siðrofs er skapandi reikningsskil. Með skap- andi reikningsskilum er átt við að reikningsskil séu gerð í þeim tilgangi og markmiðum, sem stjórnendur ætla sér fremur en að fylgt sé lögum og góðri reikningsskilavenju. Í reikningsskilum íslenskra fjár- málastofnana á árunum fyrir hrun var t.d. horft framhjá eðli útlána, en einblínt á formið, þar sem tryggingar voru hlutabréf í stofnununum sjálf- um. Þannig var eigið fé þeirra ofmet- ið, svo og útlán þar sem tryggingar voru hlutabréf eða stofnfjárbréf í öðr- um fjármálastofnunum. Lán til eign- arhaldsfélaga með undirliggjandi eign (veð) í hlutabréfum í bönkum eru víkjandi lán til viðkomandi banka. Við veðkall verður til eftirstæð krafa í hið undirliggjandi félag. Þá verður virk 85. gr. laga um fjármálafyr- irtæki, þ.e. að útlán með veði í eigin hlutabréfum krefjast 100% eiginfjár- bindingar. Þannig byggðist upp kerf- isáhætta í fjármálakerfinu sem ekki varð lesin í reikningsskilum bank- anna. Með kerfisáhættu er átt við að einn einstakur atburður geti leitt til keðjuverkandi áhrifa á allt fjár- málakerfið, sem að lokum leiðir til þess að fjármálakerfið verður fyrir áfalli og jafnvel hrynur. Viðskipti með hlutabréf Eimskipafélagsins og fleiri félaga í september 2003 Viðskipti með hlutabréf hinn 18. september 2003 og viðbrögð eftirlits- stofnana við þeim fellur mjög vel að hugtakinu siðrof. Það varð siðrof í ís- lensku viðskipalífi á árunum 1998- 2003. Landsbanki Íslands hf. hafði enga heimild til yfirtöku á Hf. Eim- skipafélagi Íslands og undirliggjandi félögum í samstarfi við Íslandsbanka. Bankarnir unnu saman að því að skipta sín á milli íslensku atvinnulífi. Um stofnanalegt siðrof (e. In- stitutional Anomie) var að ræða, þar sem eftirlitsstofnanir brugðust skyldu sinni. Þær féllust á skapandi lögskýringu við túlkun á lögum um fjármálafyrirtæki varðandi þrönga heimild til yfirtöku á rekstri við- skiptavinar til fullnustu krafna fjár- málafyrirtækisins. Sú skýring var notuð af gerendum að þetta væri nauðsynlegt til að rjúfa kyrrstöðu og framtaksleysi eigenda lykilfyrirtækja landsmanna. Þá voru reglur um eigið fé fjármálafyrirtækja túlkaðar mjög að óskum þeirra þar sem horft var framhjá eðli lánveitinga. Í kjölfarið fylgdi markaðsmisnotk- un með hlutabréf í bönkunum, þar sem markmiðið var að „tjakka upp“ verð á hlutabréfum bankanna. Að lokum hrundi bankakerfið í október 2008. Bankahrunið á rætur í því sem gerðist fyrir árið 2003 en það ár varð augljóst þegar bankarnir brutu upp íslensk fyrirtæki. Allir viðskipta- bankarnir tóku þátt í þessu og svo vitnað sé í Durkheim, þá var þetta nánast eins og sjálfsvíg bankakerf- isins þar sem siðrofið gerði alla með- virka og eftirlitsstofnanir brugðust. SPRON tók sparisjóðina með sér í sínu Harakiri. Þannig dó bankakerfið með afleiðingum sem þjóðin er enn að kljást við. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Þannig er siðrof hug- tak sem vísar til upplausnar samfélags þar sem samheldni og hefðbundið skipulag, sérstaklega það sem tengist viðmiðum og gildum hefur veikst og við tekur lögleysa. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er þingmaður. Um siðrof og dæmi um það á Íslandi Höfundur segir að myndin sýni samfélag þar sem fjármálakerfi hefur farið úr böndum og siðrof er á næsta leyti. Fjármála kerfið Félagslegar stofnanir Alþingi Framkvæmda- valdið Fjölskyldan Dómstólar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.