Morgunblaðið - 27.03.2015, Side 44
FÖSTUDAGUR 27. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Brjóstabyltingin í myndum
2. Lækkaði vísvitandi flugið
3. Hvað gerðist í flugstjórnarklefanum?
4. Flogið viljandi á fjallið?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Einn vinsælasti söngvari Breta á
níunda áratugnum, Rick Astley, mun
halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu 1.
maí. Rick Astley sló í gegn árið 1987
með laginu „Never gona give you up“
sem náði fyrsta sæti á vinsældalista í
25 löndum. Astley er eini karlkyns
tónlistarmaðurinn sem náð hefur
átta lögum á lista yfir tíu vinsælustu
lög Bretlands, skv. tilkynningu. Hann
dró sig í hlé árið 1993 af persónu-
legum ástæðum og hafði þá selt yfir
40 milljón plötur á heimsvísu. Astley
sneri aftur árið 2007 og hefur upp frá
því gefið út tvær plötur og komið
fram á tónleikum.
Rick Astley heldur
tónleika í Eldborg
Nýtt íslenskt leikrit, Þöggun, eftir
Jón Gunnar Þórðarson sem einnig er
leikstjóri þess, verður frumsýnt í dag
á Möðruvöllum. Í því er rakin saga
þriggja skáldkvenna, Ólafar frá Hlöð-
um, Skáld-Rósu og Guðnýjar frá
Klömbrum. „Verk um konur úr Eyja-
firðinum, sem sáu um heimilið, bú-
sýsluna og gerðu það sem ekki mátti,
þær skrifuðu!“ eins og segir í tilkynn-
ingu. Leikritið er leikið á staðnum
sem sagan gerist á, Möðruvöllum og
framleitt af Leikfélagi Hörgdæla. Með
hlutverk skáldkvennanna fara Mar-
grét Sverrisdóttir, Sesselía
Ólafsdóttir og Fanney
Valsdóttir. Sýningafjöldi
er takmarkaður og miða-
pantanir í síma 666-0170
og 666-0180 milli
kl. 16 og 18.
Konur sem gerðu það
sem ekki mátti
Á laugardag Suðvestlæg átt 5-13 m/s og dálítil él, en bjartviðri
austanlands. Hægari vindur síðdegis. Frost 0 til 6 stig, en sums
staðar frostlaust við sjávarsíðuna yfir daginn.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s og él sunnan- og
vestantil, hvassast við ströndina, en heldur hægari norðaustantil
og stöku él. Hiti um frostmark, en frost 1 til 6 stig í innsveitum.
VEÐUR
Framarar stigu stórt skref í
áttina að því halda sæti
sínu í Olís-deild karla í
handknattleik. Fram sótti
FH heim og vann góðan sig-
ur og Stjarnan er komin í
slæma stöðu varðandi að
halda sæti sínu. Valur er
kominn með aðra höndina á
deildarmeistaratitilinn eftir
sigur á ÍR-ingum og þá
gerði Afturelding góða ferð
til Eyja og lagði Íslands- og
bikarmeistara ÍBV. »4
Mikilvægur sigur
Framara
„Já, ég er búinn að vera með verk í
fætinum, eiginlega alveg síðan í des-
ember. Ég er búinn að fara í
nokkrar myndatökur en
það kemur ekkert út úr
þeim. Verkurinn er alltaf
til staðar,“ sagði
Gylfi Þór Sig-
urðsson sem
verður í eld-
línunni
gegn Kast-
akstan á
morgun.
»3
Verkurinn er
alltaf til staðar
Sópurinn var á lofti í Frostaskjólinu í
gærkvöld þegar Íslandsmeistarar KR-
inga slógu Grindvíkinga út í úr-
slitakeppni Dominos-deildar karla í
körfuknattleik. KR vann einvígið, 3:0,
og er komið í undanúrslit. Í Ljóna-
gryfjunni í Njarðvík höfðu heima-
menn betur gegn Stjörnunni og tóku
forystuna í einvíginu, 2:1. »2-3
Sópurinn var á lofti í
Frostaskjólinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Nú þegar er mikill vöxtur í starfsemi
á sviði upplýsingatækni. Sú grein
kallar eftir fólki með góða menntun
og þá er nám í grafískri miðlun góður
kostur. Þeir sem læra fagið öðlast
fjölbreyttan bakgrunn og reynslu
sem nýtist með ýmsu móti. Við erum
ekki bara að setja upp verkefni fyrir
prent heldur vinnum einnig ýmis raf-
ræn verkefni svo sem ePub-
rafbækur, vefsíður, vef- og skjáaug-
lýsingar og svo margt fleira. Mögu-
leikarnir eru miklir,“ segir Lilja Rut
Benediktsdóttir, nemi við Upplýs-
ingatækniskólann, sem er einn undir-
skóla Tækniskólans – skóla atvinnu-
lífsins.
Útskriftarnemar í grafískri miðlun,
ljósmyndun, prentun og bókbandi
verða með nemendasýningu laug-
ardaginn 28. mars kl. 13-15. Sýningin,
sem er öllum opin, er í húsi Vörðu-
skóla við Barónsstíg en þar er Upp-
lýsingatækniskólinn til húsa.
Að komast á samning
Grafísk miðlun og prentsmíð, ljós-
myndun, prentun og bókband eru allt
löggildar iðngreinar og á þessu vori
útskrifast alls 21 nemandi. Nemend-
urnir, með aðstoð kennara, hafa að
undanförnu unnið að skipulagi, upp-
setningu og markaðssetningu sýning-
arinnar. Tilgangur hennar er meðal
annars að vekja athygli atvinnulífsins
á útskriftarefnunum sem nú eru í
þeim sporum að finna sér námssamn-
inga og ljúka sveinsprófi.
„Nemum gengur misvel að komast
á samning, en það hefur þó stórlega
batnað seinustu ár. Það er mikil eft-
irspurn eftir fólki með þessa menntun
en stjórnendur fyrirtækja mikla oft
fyrir sér að taka til sín nema. Ég er
ekki komin á samning en sé fyrir mér
að sýningin sé ágætis stökkpallur út í
atvinnulífið,“ segir Lilja Rut sem
nemur grafíska miðlun.
Hún segist alltaf hafa haft áhuga á
tölvum, hönnun og ýmsu sem tengist
því. Aldrei hafi hún þó verið listatýpa
eða artisti, eins og slíkt er kallað.
„Ég var á tölvubraut fyrir nokkr-
um árum og þó að það sé skemmtilegt
nám þá fann ég fljótlega að það var
ekki minn vettvangur. Skipti því svo-
litlu seinna yfir í grafíska miðlun. Það
er algengt að fólk rugli saman graf-
ískri hönnun og miðlun. Þó svo að
hvort tveggja snúist um grafík og
hönnun, þá fer miðlunin meira út í
tæknilega vinnslu. Er nær iðn-
greinum en grafísk hönnun er hins
vegar kúnstverk.“
Setja saman tímarit
Lokaverkefni útskriftarnema í graf-
ískri miðlun er sameiginlegt, það er
tímarit sem þeir sjálfir setja upp og
láta prenta. Í grunninn er það þó ein-
staklingsverkefni þar sem hver og
einn setur upp lítið tímarit, brýtur um,
hannar og sér um myndvinnslu. Í
framhaldi af því eru blöðin sameinuð í
eitt og svipur þeirra samræmdur.
Rafræn verkefni skapa möguleika
Útskriftarsýning í Upplýsingatækniskólanum á laugardag Stökkpallur út í
atvinnulífið Hönnun, ljósmyndun og prent Atvinnulíf þarf fólk með menntun
Ljósmynd/Gabriel Rutenberg
Grafík Hæfileikafólk sem aflað hefur sér menntunar í ýmsum skapandi greinum og prentverki þar sem ýmsir spennandi möguleikar bjóðast nú um stundir.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lærdómur Grafíska hönnunin er
kúnstverk, segir Lilja Rut.