Morgunblaðið - 31.03.2015, Síða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Kosningaúrslit í ný-
afstöðnum þingkosn-
ingum í Ísrael komu
mörgum á óvart. For-
sætisráðherrann Ben-
jamin Netanyahu sigr-
aði óvænt en
örugglega, fékk 23,4%
atkvæða og 30 þing-
sæti af 120. Grein-
arhöfundur fylgdist
með kosningabarátt-
unni í Ísrael, sem einkum snerist um
efnahagsmál þar til á síðustu stundu
er málefni Palestínu bar skyndilega
á góma og breyttu landslaginu.
Kosningaþátttaka var óvenju góð að
þessu sinni eða 71,8%.
Skoðanakannanir bentu til að flokk-
ur forsætisráðherra, Likud-
bandalagið, sem er á hægri væng
stjórnmálanna, ætti í vök að verjast.
Síðasta könnunin var birt tveimur
dögum fyrir kjördag en eftir það var
óheimilt að birta kannanir. Sú könn-
un benti til að flokkur Netanyahu
myndi tapa kosningunum og að
Zionista-bandalagið, sem er banda-
lag mið- og vinstriflokka, myndi fara
með sigur að hólmi.
Yfirlýsing um ekkert
sjálfstætt ríki Palestínu
Það er ekki ofsögum sagt að úrslit
kosninganna réðust á síðustu
stundu. Likud-bandalagið með Net-
anyahu í broddi fylkingar fór mikinn
og biðlaði ákaft til kjósenda á hægri
vængnum. Daginn fyrir kjördag gaf
Netanyahu út yfirlýsingu sem færði
honum sigur en á hins vegar eftir að
draga dilk á eftir sér fyrir Ísrael á
alþjóðavettvangi. Netanyahu lýsti
því yfir að yrði hann endurkjörinn
yrði ekki stofnað sjálfstætt ríki Pal-
estínu á hans vakt.
Þessi yfirlýsing hefur valdið titr-
ingi og áhyggjum meðal þeirra sem
hafa komið að friðarferli Ísraels og
Palestínu, einkum og sér í lagi hjá
Bandaríkjastjórn og Evrópusam-
bandinu. Yfirlýsingin er þvert á fyrri
yfirlýsingar Netanyahu og al-
gjörlega á skjön við það
sem lagt hefur verið
upp með í friðarferlinu.
Bandaríkjaforseti hef-
ur lýst yfir miklum
vonbrigðum með fram-
komu Netanyahu og
bætir þetta gráu ofan á
svart í samskiptum
þeirra.
Kynþáttafordómar í
garð Ísraels-araba
Á kjördag beindi
Netanyahu spjótum sínum sér-
staklega að kjósendum af arabískum
uppruna en Ísraels-arabar eru um
20% þjóðarinnar. Hvatti hann ein-
dregið kjósendur á hægri vængnum
til að nýta atkvæðarétt sinn þar sem
Ísraels-arabar væru að flykkjast á
kjörstað. Orð hans mátti greinilega
túlka sem svo að það væri slæmt
hversu góð kosningaþátttaka Ísr-
aels-araba væri. Margir hafa þá
skoðun að með þessu hafi hann gerst
sekur um kynþáttafordóma og í raun
verið að segja að hann væri ekki for-
sætisráðherra allra Ísrelsmanna.
Bandaríkjaforseti gagnrýndi einnig
þessi ummæli og taldi þau mjög
óheppileg, ekki síst í ljósi sterkrar
lýðræðishefðar í Ísrael. Viku eftir
kosningarnar baðst Netanyahu af-
sökunar á ummælum sínum.
Stefnubreyting Bandaríkjanna
gagnvart Ísrael
Margt bendir til að orð Netanya-
hus um andstöðu við sjálfstætt ríki
Palestínu, eigi eftir að verða af-
drifarík og gjörbreyta friðarferlinu.
Bandaríkin hafa staðið með Ísrael á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna og
beitt neitunarvaldi í öryggisráðinu
þegar málefni er varða Ísrael hafa
komið á borð ráðsins. Bandaríkja-
stjórn hefur nú gefið það ótvírætt til
kynna að breyting verði á stuðningi
við Ísrael á þessum vettvangi vegna
yfirlýsingarinnar. Þetta eru stór tíð-
indi. Búast má við að ný tillaga um
sjálfstætt ríki Palestínu verði lögð
fram í öryggisráðinu en tillaga þess
efnis var felld í lok síðasta árs, fyrir
tilstuðlan Bandaríkjanna. Brátt
kemur í ljós hvort Bandaríkjastjórn
stendur við stóru orðin og ríki Pal-
estínu lítur dagsins ljós.
Kosningaúrslit í Ísrael og
áhrif á friðarferlið
Eftir Birgi
Þórarinsson
»Daginn fyrir kjördag
gaf Netanyahu út
yfirlýsingu sem færði
honum sigur en á hins
vegar eftir að draga dilk
á eftir sér fyrir Ísrael á
alþjóðavettvangi.
Birgir Þórarinsson
Höfundur starfar í Jerúsalem fyrir
Sameinuðu þjóðirnar.
Hlutfall aldraðra
meðal þjóðarinnar fer
sífellt stækkandi.
Sveitarfélög og rík-
isvaldið þurfa að gera
sér betur grein fyrir
þessari þróun en nú
er gert. Málefni og
staða aldraðra þarf að
fara mun ofar á for-
gangslista stjórnmála-
manna en nú er. Það
þurfa allir að gera sér grein fyrir
að þeir sem nú hafa náð eftirlauna-
aldri og þeir sem ná þeim áfanga á
næstunni eru það fólk sem byggði
upp núverandi lífskjör á Íslandi.
Aldraðir eiga því betra skilið í
framtíðinni. Það er athyglisvert að
fylgjast nú með kröfum stétt-
arfélaganna um nauðsyn bættra
kjara. Einkum er bent á lægst
launaða hópinn. Ekki hef ég tekið
eftir að forystumenn stéttarfélag-
anna leggi sérstaka áherslu á bætt
kjör aldraðra. Því verður samt ekki
móti mælt að kjör aldraðra hafa
dregist verulega aftur úr. Ekki
verður maður var við að stétt-
arfélögin setji í forgang fjölgun
hjúkrunarrýma eða byggingu sér-
stakra íbúða fyrir aldraðra.
Nýlega hélt Félag eldri borgara
aðalfund sinn á Suðurnesjum. Þar
eins og víða á landinu vantar mjög
á að málefni eldri borgara skipi for-
gangssæti á lista stjórnmálamanna.
Aldraðir gera þá kröfu að þeir séu
með.
Aðalfundur FEBS sendi frá sér
nokkrar samþykktir. Bent er á að á
biðlista eru nú 55 einstaklingar eft-
ir hjúkrunarrými á Suðurnesjum og
fer fjölgandi. Aðalfundur FEBS
leggur á það mikla áherslu að sveit-
arfélögin á Suðurnesjum vinni að
sameiginlegri lausn um framtíð-
arsýn til lausnar vandanum. Bent
er á að fjármagn sem skattborgarar
greiða í Framkvæmdasjóð aldraðra
komi ekki nema að litlum hluta til
uppbyggingar hjúkr-
unarrýma, þrátt fyrir
að tilgangurinn sé að
byggja upp hjúkr-
unarrými. Aðalfundur
FEBS leggur á það
áherslu að húsnæði
hjúkrunarheimilisins
Garðvangs í Garði
verði að nýju tekið í
notkun.
Aðalfundur FEBS
skorar á þá sjö þing-
menn sem búsettir eru
á Suðurnesjum að standa nú saman
til að tryggja nauðsynlegt fjármagn
til að hægt verði að nýta fleiri
hjúkrunarrými.
Aðalfundur FEBS minnir rík-
isstjórnarflokkana á að þeir lofuðu
að afturkalla að fullu þær kjara-
skerðingar sem fyrri ríkisstjórn
gerði. Núverandi ríkisstjórn hefur
ekki staðið við sín loforð nema að
litlum hluta.
Í lokin var svo samþykkt ályktun
þar sem FEBS fagnar hugmyndum
um stofnun umboðsmanns fyrir
aldraða. Það er mjög tímabært að
slíkt embætti verði til þar sem aldr-
aðir gætu leitað upplýsinga og að-
stoðar við sín mál.
Það er mjög nauðsynlegt að
stjórnmálamenn, stéttarfélög, at-
vinnurekendur og raunar allir
landsmenn geri sér grein fyrir að
málefni aldraðra verða að hafa al-
gjöran forgang á næstu árum.
Aldraðir eiga ekki skilið að sitja
eftir. Aldraðir eiga skilið að geta lif-
að við mannsæmandi kjör og notið
lífsins.
Aldraðir eiga
betra skilið
Eftir Sigurð
Jónsson
Sigurður Jónsson
»Ekki hef ég tekið eft-
ir að forystumenn
stéttarfélaganna leggi
sérstaka áherslu á bætt
kjör aldraðra.
Höfundur er formaður Félags eldri
borgara á Suðurnesjum.
Ég skil ekki af hverju það kostar svona mikið að fara í kvikmyndahús. Ef
keypt er popp og kók slagar það upp í 2000 kr. fyrir manninn. Er ekki hægt
að gera eitthvað í þessu?
Bíóunnandi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Dýrt í bíó
Kvikmyndahús Það væsir ekki um gesti kvikmyndahúsa.
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Páskasprengja!
Allar vörur á 40% afslætti
Allt að 60% afsláttur
af völdum vörum
Páskasprengjan gildir einnig hjá sölufulltrúum
um allt land og í verslun okkar á Dalvegi 16b.
shop.avon.is
Nýtni, hagsýni og
minni sóun eru ær og kýr
Rakelar Garðarsdóttur
í hennar nútímalega
neytendaþætti.
NEYTENDAVAKTIN
www.hringbraut.is
við miðlum af reynslu