Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Við undirritaðar
erum hjúkrunarfræð-
ingar og sendi-
fulltrúar Rauða
krossins á Íslandi.
Undanfarna mánuði
höfum við þjálfað al-
þjóðlegt hjálp-
arstarfsfólk til starfs
á ebólusvæðum og
unnum báðar á síð-
asta ári við hjálparstörf vegna
ebólu í Síerra Leóne, Magna hjá
Rauða krossinum og Gunnhildur
hjá Læknum án landamæra.
Upp á síðkastið höfum við heyrt í
fréttum að ebólufaraldurinn sé í
rénun. Einhverjir halda eflaust að
honum sé lokið. Nýjum tilfellum
hefur fækkað svo um munar og
flestir halda að við sjáum loks fyrir
endann á þessu. Við sem höfum
unnið á þessum svæðum þar sem
ebólan hefur herjað, gleðjumst að
sjálfsögðu við að heyra jákvæðar
fréttir þaðan. Við, og samstarfsfólk
okkar, höfum verið á staðnum síðan
faraldurinn byrjaði í mars í fyrra.
Við höfum stýrt meðferðarstöðvum,
gefið vökvameðferð í æð, hitalækk-
andi og verkjastillandi, haldið í
hendur sjúklinga, horft á fólk
deyja, fundið fyrir ólýsanlegri gleði
þegar sjúklingur nær heilsu á ný
og við getum veitt þeim vottorð
þess efnis að þeir séu ekki veikir
né smitandi lengur, og þeir geta
sameinast fjölskyldum sínum á ný.
Þær fréttir að faraldrinum sé lokið
væru þær bestu fréttir sem við
gætum hugsanlega heyrt.
En því miður er honum ekki lok-
ið – og okkur þykir nokkuð óþægi-
legt hversu mikil ofurbjartsýni
virðist ríkja í fréttaflutningi af far-
aldrinum. Það er auðvitað rétt að
fjöldi nýrra tilfella fer hríðfallandi,
en með því að gefa þá mynd að
hættan sé yfirstaðin, eða næstum
yfirstaðin, hættum við á það að
veita umheiminum falska öryggis-
tilfinningu. Við verðum að muna að
það þarf bara eitt tilfelli til þess að
sjúkdómurinn haldi áfram að
dreifa sér. Einungis í síðustu viku
(8. mars) var tilkynnt um 116 ný
tilfelli í Gíneu og Síerra Leóne.
Líbería hefur í tvær vikur í röð
ekki tilkynnt nein ný tilfelli. Í Gí-
neu og Síerra Leóne halda tilfelli
áfram að spretta upp á nýjum
stöðum, sem er nokkuð sem vekur
ugg.
Við höfum tekið á móti heilu fjöl-
skyldunum sem hafa smitast, sem
hafa farið um langa vegu fótgang-
andi frá afskekktum bæjum til að
komast á meðferðarstöðvar. Við
höfum heyrt sögur af ótalmörgum
sem hafa látist án þess að hafa náð
til meðferðar, eða sem ekki vildu
leita sér meðferðar. Þessir
einstaklingar eru ekki taldir með í
tölfræðinni sem við sjáum í op-
inberum skýrslum. Ebólan hrifsar
ennþá til sín ótalmörg líf og fyrir
marga í Vestur-Afríku byrjaði árið
2015 með ósköpum.
Núna er ekki rétti tíminn til að
anda léttar. Þvert á móti þurfum
við núna að vera ennþá meira vak-
andi. Framlag alþjóðasamfélagsins
til baráttunnar verður að sýna
fram á betri útkomu hvað varðar
meðferð, eftirlit með smiti og nýj-
um tilfellum, upplýsingagjöf og
öruggum jarðarförum.
Einnig þurfum við að skilja að
þessi faraldur verður ekki stöðv-
aður einungis við að skrifa línurit
og tölfræðiskýrslur um tilfellin.
Heilbrigðisþjónusta í löndunum
sem eiga í hlut er í molum. Við
höfum séð hræðsluna í augum
landsmanna þegar tilkynnt er að
enn einn hjúkrunarfræðingurinn
eða læknirinn hafi misst lífið af
völdum ebólu. Það eru ekki margir
eftir til að sinna almennri heil-
brigðisþjónustu. Í öllum þremur
löndunum deyr nú fólk úr öðrum
sjúkdómum, vegna þess að kerfið
hefur algjörlega sprungið. Læknar
án landamæra neyddust til að loka
barna- og kvennasjúkrahúsi sínu í
Síerra Leóne vegna smithættu, en
það var þá eina sjúkrahúsið sem
sinnti þjónustu við börn og konur
í því héraði. Það eru ótalmargar
konur sem nú hafa látist vegna
þess að þær gátu ekki fengið keis-
araskurð þegar á þurfti að halda.
Bólusetningum barna hefur verið
hætt meðan á faraldrinum stend-
ur, sem aftur mun leiða til ann-
arra faraldra. Það sem verður því
að leggja áherslu á núna er að
styðja við þau veiku heilbrigð-
iskerfi sem fyrirfinnast í þessum
löndum, bæði hvað varðar neyðar-
og heilsugæsluþjónustu.
Við sem skrifum þetta bréf höf-
um bæði upplifað upphaf þessa
faraldurs síðasta vor, þegar um-
heimurinn hvorki skildi, né kærði
sig um að vita, og það hörmunga-
tímabil sem við tók í Líberíu í
haust, þegar alþjóðasamfélagið
loksins vaknaði upp af værum
blundi og fór að bregðast við.
Jafnvel þó við gleðjumst nú yfir
því að sjá sumar meðferð-
arstöðvar tómar eða að tæmast af
sjúklingum, þá getum við ekki
leyft okkur að blekkja okkur með
því að hættan sé yfirstaðin.
Ebólufaraldri er ekki lokið fyrr
en síðasti sjúklingur er útskrif-
aður og liðið hafa 42 dagar (tvö-
faldur „meðgöngutími“ ebólu). Allt
þar til fjöldi tilfella kemst niður í
núll hyggjumst við halda vinnunni
áfram, með okkar stórkostlegu
þarlendu samstarfsfélögum á
staðnum. Ebólufaraldrinum er
ekki lokið!!
Ebólufaraldrinum er ekki lokið!
Eftir Gunnhildi
Árnadóttur og
Mögnu Björk
Ólafsdóttur
» Þær fréttir að far-
aldrinum sé lokið
væru þær bestu fréttir
sem við gætum hugs-
anlega heyrt. En því
miður er honum ekki
lokið.
Gunnhildur
Árnadóttir
Höfundar hafa unnið að hjálparstarfi
vegna ebólu fyrir Rauða krossinn á Ís-
landi og Lækna án landamæra frá
miðju ári 2014.
Magna Björk
Ólafsdóttir
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra
miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar
smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda
inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhring-
inn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.
Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um
starfsemi Mosfellsbakarís og viðtali við
súkkulaðimeistarann Hafliða Ragnarsson
ATVINNULÍFIÐ
Súkkulaðigerð
á heims-
mælikvarða!
í þættinum Atvinnulífið
sem er á dagskrá Hringbrautar
kl. 21.00 í kvöld
Heimsókn í Mosfellsbakarí
og nýjan framleiðslusal
HR Konfekts
• Sérstaða Páskaeggjanna frá Mosfellsbakarí
• HR Konfekt og listin á bak við framleiðsluna
• Langur og glæstur ferill
Hafliða Ragnarssonar
Á dagskrá
Hringbrautar
í kvöld kl. 21.00