Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Ekkert lát virðist
vera á ótrúlegum og
nánast lygilegum
áformum um laxeldi í
sjókvíum á Íslandi.
Fyrir tæpum tveimur
árum var lauslega tal-
að um „möguleika“ á
því að efla laxeldi í
sjókvíum á Vest-
fjörðum. Nú er upp-
gangurinn og upp-
byggingin svo mikil að
nánast má tala um gullgrafaraæði.
Íbúar og sveitarstjórnir líta á
fiskeldisfyrirtækin sem frelsara
sem að eigin sögn ætla að skapa
„hundruð“ starfa og færa byggð-
arlögum, sem hafa nánast lagst af
sökum kvótabrasks, gull og græna
skóga. Staðreyndin er hinsvegar sú
að nánast ekkert sem lofað hefur
verið mun standast. Laxeldi í
sjókvíum er ekki nýtt fyrirbæri,
hvorki hérlendis né erlendis. Hér á
landi virðast menn þó sannfærðir
um að þeir viti og kunni svo miklu
betur til verka en t.d. frændur vor-
ir Norðmenn sem íhuga nú alvar-
lega að flytja laxeldi úr sjó upp á
land. Ástæðan er linnulausar
hörmungar í sjókvíaeldi und-
anfarin ár: sjúkdómar, lúsafar-
aldrar, rifnar kvíar, eitranir, gena-
blöndun og stórfelld
umhverfismengun.
Laxeldi í sjókvíum hefur marg-
sinnis farið illa á Íslandi, en enn og
aftur er búið að sá í jarðveg
gleymskunnar og í þetta skiptið á
allt að verða betra. Í þetta skiptið
er boðað að skattgreiðendur og
sveitarfélög á landsbyggðinni þurfi
ekki að borga fyrir að hreinsa upp
eftir eldisfyrirtækin. Þess í stað er
látið í veðri vaka að hægt verði að
sjá íbúum byggðarlaganna fyrir
ótakmarkaðri vinnu. Í þetta skiptið
muni peningarnir ekki renna í vasa
örfárra fjarstaddra eigenda sem
þurfi ekki að bera neinn kostnað
eða skaða. Í þetta skiptið verði öfl-
ugt eftirlit og strangt umsókn-
arferli sett á laggirnar til að fá að
setja upp laxeldi í sjókvíum
Ekki voru eldismenn lengi að
ljúka við að „kanna möguleikana“
og „skoða aðstæður“ á Vest-
fjörðum. Nú berast fréttir af
áformum um lygilega uppbyggingu
á laxeldi í Eyjafirði
auk þess sem hýrum
augum er horft til
Austfjarða. Við Eyja-
fjörð eru rómaðar sjó-
bleikjuár og ef áætl-
anir um laxeldi næðu
fram að ganga yrði ey-
firska sjóbleikjan inn-
an tíðar minningin ein.
Ef draumar fiskeld-
ismanna rættust
myndi nánast hver ein-
asti fjörður verða und-
irlagður af kvíaeldi af
einum eða öðrum toga
og villtir laxfiskstofnar deyja út.
Þetta eru engar dómsdagsspár.
Slíkur hefur endirinn orðið alls
staðar þar sem sjókvíaeldi hefur
verið leyft. Alls staðar.
Íslendingar – miklu
klárari en allir aðrir
Eftir Árna Vilhjálm
Jónsson
»Hér á landi virðast
menn þó sannfærðir
um að þeir viti og kunni
svo miklu betur til verka
en t.d. frændur vorir
Norðmenn.
Árni Vilhjálmur
Jónsson
Höfundur er veiðimaður og áhuga-
maður um verndun villtra fiskstofna.
Eigið eftirlit með
eldvörnum ætti að
vera sjálfsagður lið-
ur í rekstri og
gæða- og öryggis-
málum fyrirtækja
og stofnana. Fyrir
því eru margar rík-
ar ástæður:
· Eldvarnir draga
verulega úr líkum á
að eldur og reykur valdi tjóni á
rekstri og eignum.
· Eldvarnir draga verulega úr
líkum á að eldur og reykur skaði
starfsfólk, viðskiptavini og skjól-
stæðinga.
· Miklum fjármunum er varið til
eldvarna í byggingum. Til að
tryggja virkni þeirra og nýtingu
fjárfestingarinnar þarf reglulegt
eftirlit og viðhald.
· Síðast en ekki síst kveður
reglugerð á um skyldu til eigin eld-
varnaeftirlits.
Eldvarnabandalagið hefur útbú-
ið leiðbeiningar, veggspjald og gát-
lista sem auðvelda fyrirtækjum og
stofnunum að innleiða eigið eld-
varnaeftirlit. Gögnin eru meðal
annars aðgengileg á vef Mann-
virkjastofnunar, mvs.is.
Einfalt en mikilvægt
Í langflestum tilvikum er eld-
varnaeftirlit sáraeinfalt. Einföld
atriði geta þó skipt sköpum um af-
drif fólks, eigna og reksturs ef eld-
ur verður laus.
Eins og dæmin sanna þarf ekki
mikinn eldsvoða til að rekstur
raskist mikið eða stöðvist. Reynsl-
an sýnir einnig að miklar líkur eru
á að fyrirtæki fari í þrot ef rekst-
urinn stöðvast vegna eldsvoða. Við-
skiptavinirnir fara einfaldlega ann-
að þegar fyrirtæki er lokað vegna
bruna.
Vandað eigið eftirlit stuðlar að
auknum skilningi eigenda og
starfsfólks á mikilvægi eldvarna og
getur dregið verulega úr hættu á
að eldur komi upp. Og komi eldur
engu að síður upp eru miklar líkur
á að ráða megi niðurlögum hans
fljótt og draga úr tjóni hafi rétt
verið staðið að eldvörnum og fyrstu
viðbrögðum.
Eldvarnabandalagið
Við hvetjum forsvarsmenn fyr-
irtækja og stofnana til að huga að
innleiðingu eigin eldvarnaeftirlits
og leita ráða hjá viðkomandi trygg-
ingafélagi eða slökkviliði. Einnig
má benda á að allmörg fyrirtæki
hafa sérhæft sig í eldvörnum og
eftirliti með þeim. Við mælum með
því að leitað sé til fagfólks ef eðli og
umfang starfseminnar kallar á
slíka aðstoð.
Eldvarnabandalagið er sam-
starfsvettvangur um auknar eld-
varnir bæði á heimilum og vinnu-
stöðum. Aðild að því eiga:
Eignarhaldsfélagið Brunabóta-
félag Íslands, Félag slökkviliðs-
stjóra, Landssamband slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna, Mann-
virkjastofnun, Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins, TM hf., Vátrygginga-
félag Íslands hf. og Vörður trygg-
ingar hf.
Eigið eldvarnaeftirlit
– þinn hagur, þín ábyrgð
Eftir Garðar H.
Guðjónsson og
Kristján
Einarsson
Garðar H Guðjónsson
» Í langflestum til-
vikum er eldvarna-
eftirlit sáraeinfalt. Ein-
föld atriði geta þó skipt
sköpum um afdrif fólks,
eigna og reksturs ef eld-
ur verður laus.
Garðar er verkefnastjóri Eldvarna-
bandalagsins, Kristján er slökkviliðs-
stjóri og fulltrúi í stýrihópi Eldvarna-
bandalagsins.
Kristján Einarsson
mbl.is
alltaf - allstaðar
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdóms-lögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttar-lögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Sími 511 8090 • www.yndisauki.is
Partýbakkinn frá Yndisauka
hentar við öll tækifæri
Partýbakkinn inniheldur 4 tegundir af spjótum,
kjúklingur satay, naut teriyaki, hörpuskel og
baconvafinn daðla, tígrisrækja með peppadew.
Bakkanum fylgja 2 tegundir af sósum.
Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá,
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það sama,
glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta.