Morgunblaðið - 31.03.2015, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Er hægt að hreinsa burtutilfinningar – jafnvel til-finningar annarra semtengjast sameiginlegri
fortíð? Þessari áhugaverðu spurn-
ingu veltir Kristín Eiríksdóttir fyrir
sér í nýjasta sviðsverki sínu,
Hystory, sem Sokkabandið frum-
sýndi á Litla sviði Borgarleikhússins
um liðna helgi.
Kristín vakti verðskuldaða athygli
sem leikskáld þegar Þjóðleikhúsið
frumsýndi fyrir rétt rúmum tveimur
árum fyrsta sviðsverk hennar,
Karma fyrir fugla, sem hún samdi
ásamt Kari Ósk Grétudóttur. Með
Hystory sýnir Kristín svo um munar
að hún hefur meistaralega góð tök á
leikritunarforminu. Leiktexti henn-
ar er meinfyndinn þótt innihaldið sé
átakanlegt, en sagt hefur verið að
áhrifaríkasta leiðin til að fá áhorf-
endur til að meðtaka erfitt innihald
sé að láta þá hlæja – því þannig ratar
efnið beint í hjartastað. Texti Krist-
ínar hreinlega smýgur inn undir
húðina á manni í kröftugri, fyndinni
og átakanlegri sýningu.
Í Hystory hittast þrjár konur um
fertugt til að ræða málin í fyrsta sinn
í aldarfjórðung. Þær voru bestu vin-
konur allan grunnskólann, en hafa
ekki talast við síðan leiðir skildi
skyndilega um fimmtán ára aldur,
þegar þær fóru verulega út af spor-
inu og frömdu ódæði sem hefur litað
líf þeirra síðan. Til að byrja með
endurspegla samræðurnar raunald-
ur þeirra. Fljótlega renna hins vegar
nútíð og fortíð saman með mjög
áhrifamiklum hætti samtímis því
sem veröld leikhússins og raunveru-
leikans skarast. Kristínu tekst listi-
lega vel að fanga tungutak ólíkra
aldursskeiða samtímis því sem hún
byggir upp spennandi verk með
áhugaverðum persónum.
Æskuvinkonunum Dagnýju, Lilju
og Beggu hefur vegnað misvel í líf-
inu síðan leiðir skildi. Dagný lærði
félagsfræði og sinnir háskóla-
kennslu, Lilja starfar í móttöku
fasteignasölu og er sú eina sem eign-
ast hefur börn meðan Begga er bæði
atvinnu- og heimilislaus. Þrátt fyrir
ólíkar aðstæður þeirra þegar verkið
hefst kemur fljótlega í ljós að þær
eiga ótrúlega margt sameiginlegt,
bæði sem gerendur og fórnarlömb.
Þetta er undirstrikað með áþreifan-
legum hætti í búningum Evu Signýj-
ar Berger, en konurnar þrjár klæð-
ast eins fötum alla sýninguna.
Lengst af eru þær í dökkum síðum
skyrtum, sem minna á fangabún-
inga, og svart/hvítum rándýrs-
mynstruðum buxum, sem aftur
minnir á hversu óútreiknanlegar og
hættulegar þær geta verið.
Á sviðinu eru brúnir pappakassar
sem geyma ýmsa mikilvæga muni úr
fortíðinni sem konurnar þrjár neyð-
ast til að gramsa í bæði í eiginlegri
og óeiginlegri merkingu. Öll um-
gjörð; lýsing Valdimars Jóhanns-
sonar, tónlist Högna Egilssonar og
Valdimars, hljóð Baldvins Magn-
ússonar og leikmynd og búningar
Evu Signýjar, undirstrikar þá stig-
mögnun sem í verkinu verður. Ljós,
tónlist og hljóð eru markvisst notuð
til að brjóta upp senur með áhrifa-
ríkum hætti.
Lykilþemu verksins snúast um
ótta og ógn, reiði og óbeislaða útrás
hennar sem haft getur skelfilegar
afleiðingar. Dagný, Lilja og Begga
eru allar brotnir einstaklingar og
fengu augljóslega ekki nauðsyn-
legan stuðning frá nánustu aðstand-
endum í æsku. Reiðin kraumar enn
undir niðri og áhorfendum verður
fljótt ljóst hversu stutt er í kvikuna
með tilheyrandi ógn.
Leikkonurnar þrjár ná undir
styrkri leikstjórn Ólafs Egils Egils-
sonar meistaralega vel að beisla
þessa tilfinningar, sýna áhorfendum
hvenær þær missa stjórn á sér og
hvernig þeim tekst að endurheimta
stjórnina. Þær sveiflast á örskots-
stundu frá því að vera grimm óarga-
dýr sem brjóta allt og bramla í
kringum sig yfir í litlar stúlkur sem
leika sér með bleiku Barbí-hestana
sína. Greinilegt er að leikstjórinn
hefur í samvinnu við leikhóp sinn
nostrað við hvert einasta smáatriði
og náð ótrúlegu orkustigi sem þjón-
ar leiktextanum mjög vel auk þess
sem samleikurinn var óaðfinn-
anlegur.
Persónur verksins tala ýmist sam-
an eða beint til áhorfenda í einræð-
um. Þetta beina samband við áhorf-
endur skapar spennu sem gerir það
að verkum að leikhúsgestir bíða í of-
væni eftir því hvað gerist næst og
velta því samtímis fyrir sér hvort
þeim sé raunverulega óhætt í návist
þessara taugaveikluðu og óútreikn-
anlegu kvenna. En titill verksins
sameinar með snjöllum hætti ann-
ars vegar taugaveiklunina og hins
vegar fortíðina sem bindur kon-
urnar saman.
Elma Lísa Gunnarsdóttir fer með
hlutverk Dagnýjar, sem kallað hefur
vinkonurnar tvær á sinn fund. Elma
Lísa sýnir okkur konu sem trúir á
mikilvægi þess að horfast í augu við
fortíðina og hefur í því skyni leitað
sér aðstoðar hjá fagmanneskju.
Netlute, róandi tónlist og hugleiðsla
skilar henni þó ekki tilætluðum ár-
angri. Elma Lísa sýndi frábærlega
hvernig persóna hennar reynir ár-
angurslaust að hafa stjórn á aðstæð-
um sínum og tilfinningum. Hún náði
að sýna áhorfendum inn í kviku per-
sónu sinnar og hefur undirrituð ekki
séð Elmu Lísu betri á sviði áður.
Birgitta Birgisdóttir leikur Lilju,
sem framan af virkar feimin og
heldur sig til baka. Með líkamstján-
ingunni dró hún upp trúverðuga
mynd af konu sem er svo utan við
sig að hún borðar vörur úti í kjörbúð
áður en hún uppgötvar að hún hefur
gleymt veskinu. Söngur hennar í
gluggatjöldunum var frábærlega út-
færður og textameðferðin, þegar
hún datt inn í upprifjun á sam-
skiptum sínum við strák á unglings-
árum, með fullan munninn af Hubba
Bubba-tyggjói, var framúrskarandi
enda skildist hvert einasta orð.
Arndís Hrönn Egilsdóttir leikur
Beggu og dregur upp mjög sann-
færandi mynd af brotinni konu sem
verið hefur fremur óheppin í lífinu.
Hún var óhugnanlega góð þegar
hún datt inn í manískar einræður
sínar. Eintalið um nýju hlaupaskóna
og samskiptin við þjónustufull-
trúann í bankanum var hrikalega
fyndið atriði.
Það er ekki á hverjum degi sem
nýtt íslenskt leikrit er frumsýnt sem
er svo vel skrifað og hugvitssamlega
sviðsett að maður vonar eiginlega að
sýningin taki aldrei enda – eða byrji
hreinlega strax upp á nýtt þurfi
henni endilega að ljúka. Uppfærsla
Sokkabandsins á Hystory er hreint
út sagt mögnuð og í raun skyldu-
áhorf fyrir allt leikhúsáhugafólk.
Með fortíðina í farteskinu
Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson
Kröftug „Uppfærsla Sokkabandsins á Hystory er hreint út sagt mögnuð,“
segir m.a. í leikrýni, en meðal leikara er Arndís Hrönn Egilsdóttir.
Borgarleikhúsið
Hystory bbbbb
Eftir Kristínu Eiríksdóttur. Handritaráð-
gjöf: Hrafnhildur Hagalín. Leikstjórn:
Ólafur Egill Egilsson. Leikmynd og bún-
ingar: Eva Signý Berger. Lýsing: Valdi-
mar Jóhannsson. Tónlist: Högni Egils-
son og Valdimar Jóhannsson. Hljóð:
Baldvin Magnússon. Leikarar: Arndís
Hrönn Egilsdóttir, Birgitta Birgisdóttir
og Elma Lísa Gunnarsdóttir. Sokka-
bandið frumsýndi á Litla sviði Borg-
arleikhússins 27. mars 2015.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Rauða hrafnsfjöðrin, verðlaun fyrir
forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins
í íslenskum skáldverkum, var veitt á
aðalfundi Lestrarfélagsins Krumma
föstudagskvöldið sl. Viðurkenn-
inguna hlaut Soffía Bjarnadóttir fyr-
ir bók sína Segulskekkja sem JPV
gefur út.
Að þessu sinni voru tilnefndar,
auk Segulskekkju, bækurnar
Hverafuglar eftir Einar Georg, Elí-
asarmál – Sögur og greinar Elíasar
Mar, Rogastanz eftir Ingibjörgu
Reynisdóttur, Gæðakonur eftir
Steinunni Sigurðardóttur, Englaryk
eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur,
Hrímland eftir Alexander Dan Vil-
hjálmsson, Ástarmeistarinn eftir
Oddnýju Eiri Ævarsdóttur, Öræfi
eftir Ófeig Sigurðsson og Ástin ein
taugahrúga: enginn dans við Ufsa-
klett eftir Elísabetu Jökulsdóttur.
Kaflinn úr Segulskekkju er svo-
hljóðandi: „Amma er með kræki-
berjasafa á rassinum. Hún lokar
augunum til að fá ekki ofbirtu í aug-
un. Guð hefur fullkomið typpi. Ekki
of stórt og ekki of lítið. Það er alveg
hreint afbragð. Amma breiðir út
faðminn í berjalynginu. Gefur sig
alla. „Þú mátt eiga mig,“ segir
amma. Guð brosir blíðlega og sleikir
krækiberjasafann af rassinum á
henni.“
Soffía Bjarnadóttir hlaut
Rauðu hrafnsfjöðrina
Verðlaunaafhending Lárus Blöndal afhenti Soffíu verðlaunin.
Í ár bjóðum við upp á egg úr
68% gæðasúkkulaði frá Brasilíu
Bjóðum einnig upp á
súkkulaðiegg úr
„Dulcey Blond“ súkkulaði,
mjólkursúkkulaði
og hvítu súkkulaði.
Eggin eru fyllt með
handgerðu konfekti og
málshætti.
Súkkulaðie
gg
fyrir sælkera
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík | Sími 566 6145 | mosfellsbakari.is
MOSFELLSBAKARÍ