Morgunblaðið - 31.03.2015, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. „Takk fyrir ad halda framhja mer…“
2. Fundust látin í faðmlögum
3. Áttu að mæta í matarboð í gær
4. Sjaldgæft að fólk finnist seint
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurður Sigurðsson, munnhörpu-
leikari og söngvari, var útnefndur
heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur
við setningu Blúshátíðar í Reykjavík á
laugardaginn var. Þrennir stór-
tónleikar fara fram á hátíðinni í vik-
unni á Hilton Reykjavík Nordica, þeir
fyrstu í kvöld kl. 20 með KK bandi,
Blúsbandi Björgvins Gíslasonar og
blúsaðasta bandi Músíktilrauna,
Deffice. Annað kvöld leika blús-
kempurnar Bob Margolin og Bob
Stroger með Blue Ice band og fleiri
hljómsveitir munu stíga á svið. Á
fimmtudaginn, skírdag, leikur Debbie
Davies með Blue Ice Band og Vintage
Caravan mun einnig troða upp. Á
myndinni sést heiðursfélaginn Sig-
urður leika á munnhörpu.
Sigurður útnefndur
heiðursfélagi
Söngkonan Stína Ágústsdóttir
kemur fram á djasskvöldi Kex hos-
tels í kvöld með hljómsveit sinni
Súkkulaðidrengjunum. Hljómsveit-
ina skipa Árni Heiðar Karlsson sem
leikur á píanó, Gunnar Hrafnsson á
kontrabassa og Einar Scheving á
trommur. Stína og Súkkulaðidreng-
irnir munu flytja vel valda djass-
standarda og dálítinn blús í tilefni af
Blúshátíð í Reykjavík og lofa að vera
í „súkkulaði-, páska- og
vorfíling“, eins og segir
í tilkynningu. Tón-
leikarnir hefjast kl.
20.30 og verða um
tvær klukkustundir að
lengd með hléi.
Kex hostel er að
Skúlagötu 28 í
Reykja-
vík.
Stína og Súkkulaði-
drengirnir djassa
VEÐUR
Það dró til tíðinda í Olís-
deild karla í handknatt-
leik í gærkvöld. Valsmenn
tryggðu sér deildarmeist-
aratitilinn með því að
leggja Stjörnuna að velli í
Garðabænum og með því
tapi féllu Garðbæingar úr
deildinni. Afturelding
lagði ÍR, FH vann stór-
sigur á Akureyri, Haukar
lögðu Fram og HK, sem er
fallið, lagði Íslandsmeist-
ara ÍBV í Eyjum. »2-3
Valur meistari
og Stjarnan féll
„Ég er í skýjunum. Loksins náði ég
þessu meti en ég hef beðið eftir því
frá árinu 2012,“ sagði Eygló Ósk
Gústafsdóttir við Morgunblaðið eftir
að hafa sett nýtt Norðurlandamet í
200 metra baksundi í gær. Hún
tryggði sér þar með
keppnisrétt á Ól-
ympíuleikana í
Ríó. »1
Eygló Ósk komin
með farseðil til Ríó
Haukar gerðu góða ferð til Kefla-
víkur þar sem þeir lögðu heima-
menn í fjórðu viðureign liðanna í
átta liða úrslitum Dominos-
deildarinnar. Haukarnir náðu þar
með að knýja fram oddaleik sem
fram fer á Ásvöllum á fimmtu-
daginn en þann sama dag mæt-
ast Njarðvík og Stjarnan í odda-
leik suður með sjó. »4
Haukarnir knúðu
fram oddaleik
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Hinn 19 ára Þórsteinn Einarsson
hlaut hin virtu austurrísku Ama-
deus-verðlaun fyrir lag sitt, Leya, á
sunnudag. Amadeus-verðlaunin eru
helstu tónlistarverðlaunin í Aust-
urríki og vann Þórsteinn ásamt
þremur öðrum til verðlauna í flokki
lagahöfunda.
„Ég er bara steinhissa á því að
hafa unnið þetta. Ég bjóst alls ekki
við þessu,“ segir Þórsteinn í samtali
við Morgunblaðið, en hörð sam-
keppni var í þessum verðlaunaflokki
að hans sögn.
„Meðal annars voru tilnefndir
strákarnir í Tagträumer, en sú sveit
var valin besta hljómsveit ársins.
Annar þeirra er mjög góður vinur
minn og það var því mjög óþægilegt
að keppa við hann um þessi verð-
laun. En hann vann ein verðlaun og
ég líka, þannig að þetta kemur út á
jöfnu,“ segir Þórsteinn glaður í
bragði.
Hvað ef allt saman klúðraðist?
Hann segist ekki hafa haft lagið
lengi í hausnum. „Ég var með fram-
leiðandanum mínum í fyrsta skipti í
hljóðverinu síðasta sumar, en þá var
ég nýfluttur til Vínar. Mér fannst
þetta vera dálítil áhætta sem ég var
að taka og hugsaði hvað ég myndi
gera ef þetta klúðraðist allt saman,“
segir Þórsteinn.
„Þá fékk ég þessa hugmynd að
stelpu með stóra drauma sem býr
ekki við góðar aðstæður heima fyr-
ir. Úr varð þessi persóna, Leya,
sem er með stóra drauma og fer í
borgina til að reyna að láta þá ræt-
ast. Það misheppnast og hún hverf-
ur í hyldýpi fíknar og þunglyndis.“
Stundaði kokkanám í Salzburg
Þórsteinn hefur leikið tónlist um
þónokkurt skeið þrátt fyrir ungan
aldur. „Ég var í lítilli hljómsveit á
Íslandi með vinum mínum og hef
eiginlega alltaf verið í tónlist síðan
ég var krakki. Ég kláraði kokkanám
í Salzburg fyrir skömmu en núna er
það bara tónlistin,“ segir Þórsteinn.
Með plötusamning við Sony
„Ég fékk plötusamning hjá Sony í
ágúst og undanfarið hef ég bara
verið að vinna að gerð þeirrar
plötu.“ Plata Þórsteins kemur út í
september næstkomandi í Aust-
urríki en hún hefur ekki enn fengið
nafn.
„Ég er með nokkrar hugmyndir
en vil helst ekki segja neitt um það.
Eftir plötuna áætla ég svo að fara í
tónleikaferðalag um Austurríki.
Vonandi fær platan góðar viðtökur
þar og jafnvel á Íslandi líka.“
Lagahöfundur ársins 19 ára
Þórsteinn Ein-
arsson hlaut Ama-
deus-verðlaunin
Ljósmynd/Vienna Press
Hissa Þórsteinn, annar frá hægri, tekur við verðlaununum á hátíðinni sem fram fór á sunnudag. Alls voru fimm til-
nefndir í hans flokki. „Ég er bara steinhissa á því að hafa unnið þetta,“ segir Þórsteinn í samtali við Morgunblaðið.
Ljósmynd/Vienna Press
Glaðbeitt Þórsteinn með Amadeus-verðlaunin í hendi ásamt meðhöfundum
sínum að laginu, þeim Lukas Hillebrand, Noa Ben-Gur og Alex Pohn.
Á miðvikudag Norðan og norðvestan 8-15 m/s. Bjartviðri sunnan-
og vestanlands, annars snjókoma eða él. Dregur úr vindi og ofan-
komu síðdegis. Frost 2-12 stig, mildast við suðausturströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í norðvestan 10-20 m/s norðaust-
antil síðdegis með snjókomu eða éljum, hvassast á annesjum. Ann-
ars mun hægari vindur. Léttskýjað syðra, en stöku él norðvestantil.