Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 5

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 5
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 3 og fjölmiðla innan ESB, að þjóðbókasöfnum Evrópu bæri að beita sér í umræðunni um stafræna endurgerð safnefnis sem aðgengilegt verður um Veraldarvefinn. CENL brást mjög ákveðið við þessum ummælum og segja má að EDL project, TELplus og EDLNet verk- efnin séu ásamt öðrum, svo sem ENRICH sem TEL á aðild að, beint svar við þessum tilmælum. Ávinningur Ávinningur Landsbókasafns Íslands – Háskólabóka- safns af því að taka þátt í EDL verkefninu, TELplus og ENRICH verkefnunum felst fyrst og fremst í því að öll verkefnin byggjast á verkþáttum sem Landsbókasafn hefur lengi haft á verkefnaáætlun vegna fyrirhugaðrar þjóðbókagáttar safnsins, en skort fé og þar með mannafla til að vinna að þeim. Þrátt fyrir að verkefnin feli í sér ýmsa auka verkþætti, eink- um þýðingar, kynningarstarfsemi, ferðakostnað og kostnað við aðild að Evrópubókasafninu, er hlutur þeirra tiltölulega lítill miðað við hina sem nauðsyn- legir eru. Því er ekki nema að litlu leyti um að ræða útgjöld til viðbótar þeim sem ráðgerð hafa verið. Styrkir til verkefnanna eru 50% af áætluðum kostnaði og geta þeir fært Landsbókasafni allt að 255 þúsund evrur (um 24 millj. kr. m.v. núverandi gengi) í tekjur ef safnið skilar vinnuframlagi sem nemur 53 mm, eða um fjórum og hálfu ársverki. Þegar tekið hefur verið tillit til allra þátta, s.s. þýðinga, kynning- arstarfsemi, ferðakostnaðar og kostnaðar við aðild að Evrópubókasafninu, mun Landsbókasafn ekki þurfa að bæta mjög miklu við og þetta fé nýtist því vonandi mjög vel til að flýta fyrir því að safnið geti komið á fót fyrirhugaðri þjóðbókagátt. EDLNet verkefnið er af allt öðrum toga. Lands- bókasafn á sæti í stjórnunarhópi verkefnisins (EDL Management Board) en er ekki beinn þátttakandi við framkvæmdina og því er ekki gert ráð fyrir vinnu- framlagi af hálfu safnsins og þess vegna ekki styrkjum á móti nema vegna ferðakostnaðar. Sérstaklega verður fjallað um þessi verkefni hvert fyrir sig en í eftirfarandi er gerð nokkur grein fyrir hvern- ig aðgangur að safnefni innan Evrópubókasafnsins virkar en það er um vef Evrópubókasafnsins, svokall- aða TEL gátt. Aðgangsleiðir TEL gáttin veitir aðgang að miklum fjölda gagnasafna og býður upp á leit í þeim. Notandinn getur valið að tengjast beint ákveðnu gagnasafni, t.d. Gegni, og fær hann þá aðgang að því um Vefinn. Meginnotagildi TEL felst hinsvegar í því að notandinn getur leitað samtímis í mörgum gagnasöfnum með því að velja ákveðin gagnasöfn og gefa upp leitarorð. Þá er leitað í þeim gagnasöfnum sem valin eru og birtar niðurstöð- ur sem notandinn getur notað til að finna gögnin ef þau eru á stafrænu formi eða tilvísun í þau, t.d. ef um bókasafnskerfi er að ræða. TEL notar tvær aðferðir við leit. Önnur byggist á notkun svokallaðs Z39.50 staðals til að tengjast bók- fræðilegum skrám safnanna, leita í þeim, safna nið- urstöðum og birta í notendaviðmóti TEL. Sendur er leitarstrengur til þess kerfis sem leita á í, t.d. Gegnis, og sér þá viðkomandi kerfi um leitina og skilar nið- urstöðum til baka. Z39.50 staðallinn er orðinn nokk- uð gamall og ljóst að þetta er ekki vænleg lausn til frambúðar og dugir alls ekki til að veita góðan aðgang að stafrænum gögnum. Hin aðferðin kallast Open Archives Initiative (OAI) og byggist á því að lýsigögnum hvers gagna- safns er varpað í staðlað lýsigagnasnið og þau vistuð á þann veg að hægt er að safna þeim hvaðan sem er. Þannig verða til OAI lýsigögn í aðildarsöfnunum og er þeim safnað þaðan í eitt gagnasafn hjá TEL og gert miðlægt efnisyfirlit yfir efnið, leitað er í því og niðurstöður birtar notandanum. Það mun t.d. verða gert fyrir lýsigögn fyrir gagnasöfn Landsbókasafns, Tímarit.is, Forn Íslandskort og Sagnanetið og vænt- anlega síðar fyrir Gegni. Meginkosturinn er að leitað er í stöðluðum gögnum í einu gagnasafni, sem er mun hraðvirkara en að nota Z39.50 aðferðina. Einnig að sá sem býr til gögnin er óháður þeim sem safnar þeim, býr til efnisyfirlitið og aðgangsvefinn. Því stefnir Evrópubókasafnið að því að fá aðildarsöfnin til að koma upp OAI lýsigögnum fyrir öll þau gagnasöfn sem TEL gáttin veitir aðgang að. Með þessum aðferðum veitir Evrópubókasafns- vefurinn aðgang um eina gátt að stafrænum gögnum helstu þjóðbókasafna Evrópu og tengdri þjónustu svo sem: • Aðgang að mörgum ólíkum gagnasöfnum um Netið. • Samtímaleit í þessum gagnasöfnum. • Beinan aðgang að stafrænum gögnum. • Notendaviðmót á mörgum tungumálum. Þótt TEL gáttin hafi verið í notkun í tvö ár er ýmislegt sem virkar ekki sem skyldi. Ein ástæðan er sú að upphaflega var gert ráð fyrir að veita aðgang að til- tölulega fáum gagnasöfnum en þeim hefur fjölgað mjög. Áætlað er að nýtt notendaviðmót verði innleitt í maí 2008. Tengillinn http://www.theeuropeanlibrary.org/por­ tal/index.html veitir aðgang að TEL gáttinni og þar er hægt að fá allar upplýsingar um Evrópubókasafnið og aðgang að þeim gagnasöfnum sem í boði eru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.