Bókasafnið - 01.10.2008, Side 8

Bókasafnið - 01.10.2008, Side 8
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 20086 un eftir árum eða tímabilum er einungis hægt að miða leit þar við titla tímaritanna. Á vefsíðu Evrópubókasafnsins eru samtals fjögur gagnasöfn undir hatti Íslands. Beinn aðgangur er að tveimur gagnasöfnum Landsbókasafns, auk þeirra tveggja fyrrnefndu sem falla undir sameiginlegu vef- gáttina. Þetta eru kortavefurinn Forn Íslandskort http://kort.bok.hi.is/ og Sagnanet http://sagnanet.is/. Þessir vefir eru ekki leitarbærir um vefgátt Evrópu- bókasafnsins en hægt að komast beint í þá um tengil í vefslóðina. Á þann hátt er einnig beinn aðgangur að Gegni og Tímarit.is. Meginstefna Evrópubókasafnsins er að bjóða fjöltyngt notendaviðmót. Samt er talið viðunandi að á sömu síðu geti birst texti á tveimur tungumálum. Þetta táknar í stórum dráttum að efstu lög vefsins og leitarumhverfi má þýða á hvaða tungumál þátt- tökusafnanna sem er. Að öðru leyti ríkja þrjú tungu- mál, enska, franska og þýska. Tungumálablandan kemur spánskt fyrir sjónir og hlýtur að teljast lýti á vefnum. Það er umhugsunarefni hvort gagnasöfn- unum í íslenska framlaginu sé betur borgið með eða án þeirrar íslensku þýðingar sem nú birtist á hluta vefviðmótsins. Hvað er þarna að finna? Evrópubókasafnið er samlag fjörutíu og sjö þjóð- bókasafna. Samlagið inniheldur ríflega 270 gagnasöfn, misjöfn að stærð og gerð. Hartnær 180 gagnasöfn eru leitarbær gegnum vefgátt Evrópubókasafnsins og jafnframt er vísað á eigin vefslóð hvers og eins. Tæplega hundrað gagnasöfn eru einungis leitarbær um eigin vefslóð. Stutt umfangslýsing er gefin fyrir hvert gagnasafn. Þar kemur fram hvort gagnasafnið er leitarbært gegnum vefgátt Evrópubókasafnsins og jafnframt birt eigin vefslóð gagnasafnsins. Á forsíðu vefs Evrópubókasafnsins er mögulegt að takmarka leitina við flokk gagnasafna með hlið- stæðu innihaldi. Þar raðast saman bókfræðiskrár þjóðbókasafna, stafræn gagnasöfn, hljóðrit og nótur, myndir, handrit, kort, tímarit, barnaefni og síðasti flokkurinn er lokaritgerðir og doktorsritgerðir. Þessi flokkun gefur yfirlit um eðli og innihald gagnasafn- anna en mismörg gagnasöfn tilheyra hverjum flokki. Leit í tveimur fyrstnefndu flokkunum getur skilað niðurstöðum úr upp undir fimmtíu gagnasöfnum en fimm gagnasöfn falla undir barnaefni, svo að dæmi séu tekin. Þegar leit er takmörkuð við lokaritgerðir og doktorsritgerðir skila sér niðurstöður úr einungis einu gagnasafni. Leitarkerfi Evrópubókasafnsins er hægfara og þunglamalegt. Ekki er í boði að leita í öllum gagna- söfnunum samtímis enda reynir bið eftir niðurstöðum á þolinmæðina þótt minna sé lagt undir. Á vefnum er varað við að leita í fleiri en fimmtán gagnasöfnum í einu. Á yfirlitssíðu um gagnasöfnin er úr nokkrum möguleikum að spila við að velja gagnasöfn til að leita í samtímis. Val eftir löndum gefur kost á að velja í einu lagi öll gagnasöfn viðkomandi lands eða merkja við einstök P L Á N E T A N 2 0 0 7 Gullbrá og birnirnir þrír. Myndin er úr bók í stafrænu serbnesku barnabókasafni. Í þessu gagnasafni er hægt að komast í 127 barnabækur. Stafræna serbneska barnabókasafnið var upphaflega liður í alþjóðlegu verkefni sem unnið var á árunum 2002–2007. Afrakstur þess er alþjóðlegt stafrænt barnabókasafn http:// www.childrenslibrary.org/ og serbneska framlagið birtist líka í Evrópubókasafninu.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.