Bókasafnið - 01.10.2008, Síða 13
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 11
er skipt upp í fimm verkhluta og á safnið aðild að
fjórum þeirra. Hér skal safnið skila af sér vinnu sem
nemur 1,5 mm. Verkhlutarnir eru þessir:
T1.1 Tæknileg leiðbeining
T1.2 Stjórnun verkefnis og eftirlit með styrk
T1.3 Fjárhagsleg samhæfing
T1.4 Samhæfing stjórnunar
T1.5 Trygging á gæðum
Þessi verkþáttur er hefðbundinn. Tilgangurinn er að
gæta þess að allt það sem lagt er upp með í verklýs-
ingu (description of work) sé leyst af hendi.
2. Undirbúningur fyrir innleiðingu og
lagfæring gagna (WP2)
Með réttu má segja að þessi verkþáttur sé mjög mik-
ilvægur fyrir framgang verkefnisins. Hér bera þátt-
takendur kennsl á gögn sem eru til staðar hjá þeim,
þ.e. skráningarfærslur þar sem handritum er lýst
og stafrænar myndir af þeim, og meta umfang þess
að breyta þeim og laga svo þau komist fyrir í sam-
eiginlegu rými – Manuscriptorium. Einnig fer fram
athugun og greining á þeim lýsigögnum og stöðlum
sem eru nauðsynlegir til að koma gögnum fyrir á
einum stað og búa til gagnaveitu. Í þessum verkþætti
eru fjórir verkhlutar. Landsbókasafn á aðild að þeim
öllum og skal skila af sér vinnu sem nemur 8 mm.
Verkhlutarnir eru þessir:
T2.1 Könnun á aðgengi að gögnum sem eru á
stafrænu formi. Er hér um að ræða frek-
ari úrvinnslu á fyrirspurnum sem voru lagð-
ar fyrir þátttakendur við gerð umsóknar til
Evrópusambandsins
T2.2 Málstofa tæknimanna og þeirra sem leggja til
efni en þar verður farið yfir niðurstöður í T2.1.
Rætt um hvernig skuli leysa úr því sem könn-
unin leiðir í ljós
T2.3 Samræða til undirbúnings á tæknilegum skil-
yrðum fyrir innri samskipti, þ.e. skil á gögnum
í sameiginlega gagnaveitu
T2.4 Skilgreining á stöðlum og þróun á lýsigögnum
til að koma upplýsingum um gögn til skila
Hlutverk Landsbókasafn, eins og annarra í þessum
verkþætti, er að greina frá gögnum sem eru í þeirra
fórum og með hvaða hætti verður hægt að nálgast
þau. Í tilfelli Landsbókasafns er þetta tvíþætt, í fyrsta
lagi eru það skráningarfærslur yfir handrit og prent-
aðar bækur og í öðru lagi stafrænar myndir af fyrr-
nefndum gögnum; hvort tveggja á Sagnaneti.
3. Stöðlun lýsigagna (WP3)
Þriðji verkþátturinn, sem hefur yfirskriftina stöðlun
lýsigagna, hefur það að markmiði að tryggja gagn-
virkni þeirra lýsigagna sem verða lögð í púkkið.
Vandinn er að skráningarfærslur sem eru lagðar til
eru á mismunandi formi. Í fyrsta lagi hefur sumt
verið skráð samkvæmt MASTER staðli (Manuscript
Access through Standards for Electronic Records),
annað eftir MARC staðli – og það á m.a. við um
gögn á Sagnaneti, í þriðja lagi eftir TEI staðli (Text
Encoding Initiative) og í fjórða lagi er ýmislegt á ann-
ars konar gagnaformi sem fellur ekki undir neitt af
ofangreindu. Úr þessum skráningarfærslum þarf að
búa til lýsigögn sem verða nothæf og leitarbær í sam-
eiginlegum gagnagrunni. Til fróðleiks eru hér verk-
hlutarnir sem þarf að leysa:
T3.1 Tól til að breyta skráningarfærslum handrita úr
TEI P4 yfir í TEI P5
T3.2 Innleiðing á OAI safnara fyrir Manuscriptori
um
T3.3 Lagfæring og innleiðing á METS til að stjórna
högun gagna í Manuscriptorium