Bókasafnið - 01.10.2008, Page 14
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 200812
T3.4 Lagfæring og meðferð á UNICODE stafatöfl-
unni í Manuscriptorium
Samkvæmt verklýsingu er Landsbókasafn ekki beinn
aðili að þessum verkþætti en hann er mjög mik-
ilvægur fyrir safnið. Í fyrsta verkhluta er lagt til að
búið verði til tól er breytir skráningarfærslum sem
eru á TEI P4 yfir í TEI P5 – er hér um að ræða tvær
mismunandi gerðir af sama staðli sem er notaður
til að lýsa handritum. Jafnframt þarf að búa til tól
sem breytir skráningarfærslum sem eru á MARC21
sniði yfir í TEI P5. Þegar því er lokið verða til skrán-
ingarfærslur yfir handrit Landsbókasafns á TEI P5
og þannig mögulegt að búa til samskrá yfir handrit
þriggja stofnana: Landsbókasafns, Stofnunar Árna
Magnússonar og Den Arnamagnæanske Samling.
4. Viðmót notenda (WP4)
Fjórði verkþátturinn er að þróa notendaviðmót.
Markmiðið er að kanna möguleikann á því að búa til
nokkurs konar sérsöfn eða efnisflokka innan stafræna
handritasafnsins. Þetta er gert með það í huga að
fullnægja þörfum notenda, að bæta aðgengi þeirra,
að þeir geti dregið efni í flokka til frekari úrvinnslu.
Einnig skal kannað með hvaða hætti er hægt að koma
á gagnvirkni á milli gagnasafnsins, þ.e. uppsetningar
og framsetningar þess, og notandans. Í þessum þætti
eru fimm verkhlutar og á Landsbókasafn aðild að
þremur þeirra og skal skila af sér vinnu sem nemur
4 mm.
T4.1 Greining á þörfum notenda með það í huga að
skipta upp efni gagnasafnsins
T4.2 Búa til sérsöfn innan safnsins fyrir notendur
T4.3 Búa til sýndarskjöl til kennslu og rannsókna
T4.4 Mat á leitum innan gagnasafnsins
T4.5 Innleiðing á flóknum samsettum leitum í
gagnasafni
Ávinningurinn fyrir Landsbókasafn er sá að nú stend-
ur fyrir dyrum endurhögun og uppbygging á Sagna-
netinu og vafalaust mun eitthvað af þessari vinnu
gagnast safninu.
5. Viðmót fyrir þá sem leggja til efni (WP5)
Fimmti verkþátturinn felur í sér þróun og innleiðingu
á tækjum til að vinna frekar með lýsigögn sem eru til
staðar og stafrænar endurgerðir, þ.e. með hvaða hætti
þeim verði komið fyrir í Manuscriptorium. Þetta
felur í sér nánari úrvinnslu á því sem fer fram í þriðja
verkþætti – Stöðlun lýsiganga. Landsbókasafn er aðili
að öllum verkhlutum og skal skila af sér vinnu sem
nemur 3 mm.
T5.1 Veftól til að forma lýsigögn og gögn sem eru
tengd handritum
T5.2 Greining og þróun á tólum til að vinna með
stór útvær (global) gagnasöfn
T5.3 Tilraunainnleiðing á stórum gagnasöfnum frá
völdum þátttakendum
T5.4 Samþætting eða innsetning á gögnum inn í
Manuscriptorium
Innan verkefnisins verður komið upp nauðsynlegum
samskiptaleiðum og þær sérsniðnar að þörfum hvers
þátttakanda. Þróaðar verða sérhæfðar lausnir til gera
þeim, sem ekki hafa yfir að ráða eigin vefviðmóti,
kleift að opna aðgang að sínum gögnum.
6. Aðgengi fyrir notendur og fjöltyngi (WP6)
Sjötti verkþáttur felur í sér innleiðingu leitarvélar sem
leitar samtímis í gagnasafninu á mörgum tungumálum,
t.d. dönsku, tékknesku, pólsku, þýsku, portúgölsku,
ungversku og rússnesku. Samkvæmt verklýsingu á
Landsbókasafn ekki aðild að þessum verkþætti og er
það skiljanlegt því ekki hafa enn verið búin til hér á
landi tól sem eru líkleg til að gagnast á þessu sviði.
7. Prófun og mat (WP7)
Í sjöunda verkþætti – er varir allt verkefnið – skal
meta hvernig hefur tekist til varðandi þau forrit eða
tæki sem búin hafa verið til. Þar er verið að draga
saman og meta allt sem hefur verið unnið í öðrum
verkþáttum og skal Landsbókasafn skila af sér vinnu
er samsvarar 7 mm.
7.1 Skilgreining á mati
7.2 Prófun og mat á aðgengi og notum, aðlögun
tækja og tóla
8. Kynning og not (WP8)
Áttundi og síðasti verkþátturinn felur í sér kynningu
á því með hvaða hætti ENRICH verkefnið kunni
að gagnast notendum, í sem víðustum skilningi þess
orðs. Ennfremur að kynna með hvaða hætti væri hægt
að halda áfram með verkefnið. Einn þátturinn er að
halda ráðstefnu fyrir hugsanlega notendur og fá við-
brögð þeirra við framtakinu. Þessi verkþáttur skiptist
upp í fimm verkhluta og á Landsbókasafn aðild að
tveimur þeirra og skal skila af sér vinnu sem nemur
2,5 mm.
T8.1 Kynningaráætlun búin til
T8.2 Kynningarefni búið til
T8.3 Vefsetur sett upp og viðhaldið
T8.4 Notkunaráætlun
T8.5 Skipulag á ráðstefnu
Þátttaka Landsbókasafns
Ein meginástæða þess að Landsbókasafn tekur þátt
í ENRICH verkefninu, fyrir utan það að leggja til