Bókasafnið - 01.10.2008, Síða 18
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 200816
ingur, flutti afmælisávarpið að þessu sinni. Hún rakti
þróun og stöðu greinarinnar í Háskóla Íslands og
greindi jafnframt frá námsframboði og eðli grein-
arinnar. Að því loknu héldu nemendurnir Ingibjörg
Hallbjörnsdóttir, Sigurborg Brynja Ólafsdóttir,
Sigmar Þormar, Guðrún Ingibjörg Svansdóttir, Sara
Stefánsdóttir, Ólöf Benediktsdóttir, Hafliði Ingason,
Hrafnhildur Tryggvadóttir og Stefán Þór Björnsson
erindi um lokaverkefni sín sem allt voru rannsókn-
ir innan bókasafns- og upplýsingafræði. Jóhanna
Gunnlaugsdóttir skorarformaður annaðist fund-
arstjórn. Í lok málþinganna tveggja voru léttar veit-
ingar í boði félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.
Á sjálfu afmælisárinu stóð skorin fyrir fjölmörg-
um atburðum á eigin vegum. Skorin kom jafnframt
að fyrirlestra- og ráðstefnuhaldi annarra aðila í til-
efni af afmælinu. Á afmælisárinu voru haldnir sjö
hádegisfundir í Þjóðarbókhlöðu, sá fyrsti 13. sept-
ember. Efni hans var markaðssetning bókasafna og
haldin voru tvö erindi. Hið fyrra héldu bókasafns- og
upplýsingafræðingarnir Ingibjörg Rögnvaldsdóttir og
Erla Kristín Jónasdóttir en hið síðara Svanhildur
Eiríksdóttir bókmenntafræðingur. Fundarstjóri var
Kristín Ósk Hlynsdóttir. Samvinna skólasafns við
Ingibjörg Baldursdóttir, Anna Björg Sveinsdóttir og Kristín Ósk
Hlynsdóttir á fundi um skólasöfn.
Frá fundi um markaðssetningu bókasafna. Fremst má þekkja
Bryndísi Áslaugu Óttarsdóttur, Óskar Guðjónsson og Erlu
Kristínu Jónasdóttur sem hafði framsögu á fundinum.
Gestir á fundi um skráningu korta og mynda.