Bókasafnið - 01.10.2008, Page 25

Bókasafnið - 01.10.2008, Page 25
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 23 þróast annars staðar og hvaða hugmyndir innlendir og erlendir frumkvöðlar um kennslu og stefnumótun hafa um þróun þjóðfélagsins og hvernig bregðast má við í starfi, menntun og endurmenntun stéttarinnar. Eins og áður segir hafði verið ákveðið að hápunkt- ur afmælishaldanna yrði ráðstefna um þróun í kennslu og framtíðarhorfur greinarinnar. Undirbún- ingsnefnd afmælisráðstefnunnar var skipuð þeim dr. Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, þáverandi landsbóka- verði, Guðrúnu Pálsdóttur, fulltrúa Upplýsingar – Félags bókasafns- og upplýsingafræða, og dr. Ágústu Pálsdóttur, dósent í bókasafns- og upplýsingafræði. Nefndin fékk einnig til liðs við sig stóran og öflugan hóp af starfandi bókasafns- og upplýsingafræðingum sem komu að undirbúningi ráðstefnunnar og afmælis- dagskrárinnar um kvöldið með einum eða öðrum hætti. Fljótlega kom upp sú hugmynd að skipa sérstaka skemmtinefnd til að undirbúa dagskrána um kvöldið og að fá í hana bókasafns- og upplýs- ingafræðinga sem hafa útskrifast með 10 ára milli- bili. Í skemmtinefndinni sátu þær Anna Torfadóttir (1976), Rósa Traustadóttir (1986), Hrafnhildur Þorgrímsdóttir (1996) og Hrafnhildur Tryggvadóttir (2006). Ragnhildur Bragadóttir var einnig með í nefndinni en hún tók meðal annars að sér að semja og flytja skemmtiatriði. Auk ráðstefnunefndar og skemmtinefndar lögðu fjölmargir aðilar undirbúningi ráðstefnunnar lið. Má þar nefna að Upplýsing – Félag bókasafns- og upplýs- ingafræða lánaði aðgang að forriti til að halda utan um skráningar á ráðstefnuna og Vala Nönn Gautsdóttir sá um vefsíðugerð fyrir hana. Einnig lagði Háskólinn til aðstoð við bókhaldsumsjón. Jafnframt fengust rausnarlegir fjárstyrkir frá menntamálaráðuneyti, Háskólasjóði Háskóla Íslands, félagsvísindadeild og Upplýsingu. Ráðstefnan Frumkvæði og fagmennska. 50 ára afmæli kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði, sem haldin var í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands föstudaginn 23. mars 2007, var fjölsótt en rúmlega eitt hundrað manns sóttu hana. Ráðstefnan var sett af dr. Ágústu Pálsdóttur sem bauð gesti hennar velkomna og því næst fluttu dr. Kristín Ingólfsdóttir háskóla- rektor og dr. Ólafur Þ. Harðarson, forseti félags- vísindadeildar, ávörp. Fengnir voru tveir erlendir aðalfyrirlesarar sem eru frumkvöðlar í kennslu og stefnumótun, hvor í sinni heimsálfunni, til að fjalla um þróun fagsins, möguleika þess og framtíðarsýn. Dr. Ken Haycock prófessor, sem er yfirmaður School of Library and Information Science, San José State University í Kaliforníu, fjallaði um þróun í bókasafns- og upplýsingafræði á 21. öldinni í sínu erindi. Og Gitte Larsen frá Danmarks biblioteksskole fjallaði um breytingar á hlutverki bókasafns- og upplýs- ingafræðinga og tengsl símenntunar og faglegrar þróunar. Aðrir fyrirlesarar voru dr. Sigrún Klara Hannesdóttir sem hélt erindi þar sem hún rakti hvað áunnist hefði á þeim 50 árum síðan námið hófst og hver framtíðarsýn þess er. Ágústa Pálsdóttir kynnti starfsemi Norslis sem er norrænn rannsóknarskóli um doktorsnám í bókasafns- og upplýsingafræði. Einnig fjölluðu þrír íslenskir bókasafns- og upplýs- ingafræðingar, Þorsteinn G. Jónsson, dr. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir og Ingibjörg Sverrisdóttir, um það hvernig menntunin hefur nýst þeim í starfi og áframhaldandi námi. Í lok ráðstefnunnar fjallaði Ágústa Pálsdóttir um uppbyggingarstarf Sigrúnar Klöru Hannesdóttur við bókasafns- og upplýsinga- fræðiskor og þakkaði henni fyrir hennar mikla og góða frumkvöðlastarf í þágu greinarinnar. Fundarstjórar á ráðstefnunni voru þær Sólveig Þorsteinsdóttir og Gunnhildur Manfreðsdóttir. Að ráðstefnunni lokinni bauð Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn til móttöku í Þjóðarbók- hlöðu en því næst var gengið yfir á Hótel Sögu til hátíðarkvöldverðar í Ársal þar sem snædd var dýr- indis máltíð sem var krydduð með tónlist, söng og gamanmálum. Veislugestir fóru meðal annars í hlát- Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar, Ken Haycock og Gitte Larsen, skemmtu sér vel á hátíðarkvöldverðinum. Mynd: Heiðrún Dóra Eyvindardóttir.

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.