Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 47

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 47
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 45 starfsumhverfi bókasafns­ og upplýsingafræðinga í kjölfar Landsaðgangs og annars rafræns efnis. Notkun bókasafna – heimsóknum fækkar Ýmsum rannsóknum ber saman um að heimsóknum á bókasöfn fækki eftir því sem notkun rafræns efnis vex (sjá Garguilo, 2003; OCLC, 2003; Siebenberg, Galbraith, og Brady, 2004; Tenopir, 2003; Wakeham & Garfield, 2005). Þátttakendur á Fold, Storð og Eykt voru líka sammála um að hefðbundin notkun bókasafna hefði minnkað í kjölfar þess að samið var um Landsaðganginn. Bókasafns- og upplýsingafræðingar þessara stofnana telja vinnu við hefðbundin verkefni, eins og upplýsingaleit og skráningu og utanumhald pappírstímarita, hafa minnkað. Nú sé mest leitað til bókasafnanna eftir eldra efni og efni sem ekki finnst í rafrænu gagnasöfnunum og tímaritunum. Fyrst og fremst sé leitað að ritum sem eru eldri en svo að þau séu í Landsaðgangi eða þeim sem ekki eru í Landsaðgangi. Þetta er þá efni sem bókasöfnin eiga ýmist sjálf eða þurfa að afla annars staðar með millisafnalánum. Millisafnalán eru líka enn umtalsverð þótt þeim hafi fækkað. Þetta á þó trúlega ekki síst við um náttúruvísindageirann þar sem rannsóknir byggjast talsvert á gömlu efni öfugt við það sem er t.d. í læknis- eða erfðafræði. Á Ósi, þar sem þátttökuathugunin fór fram, virtist gegna svolítið öðru máli. Bókasafns- og upplýsingafræðingurinn þar sagði að sér fyndist safnið almennt lítið notað, en tengir það ekki endilega við meiri notkun rafræns efnis. Vinnuálagið á sérfræðingum sé einnig mikið og því e.t.v. lítill tími til lestrar. Hann taldi að eldri starfsmenn virtust finna mest af tilvitnunum í greinar í heimildalistum, sem þeir komi þá gjarnan með í höndunum, og fái aðstoð við að finna það sem þá vantar af þeim, annaðhvort í ritum safnsins eða með því að leita í tölvum. Yngra fólk sé hins vegar sjálfbjarga með flest. Þeir sérfræðingar á Ósi, sem tekin voru viðtöl við; ýmist stutt og óformleg eða formleg studdu að vissu leyti það álit. Sérfræðingur á Storð sagðist nota bókasafnið miklu minna en hann gerði „eftir að allt er komið á netið“ og taldi að álagið á bókasafnið hlyti að hafa minnkað mikið eftir að gagnagrunnarnir komu til sögunnar. Hann bætti þó við að mikið af þeim rannsóknum sem hann stundaði byggðust á „eldgömlum rannsóknum og eldgömlum greinum sem eru alveg nýtanlegar í dag“. Þetta efni taldi hann hvergi fáanlegt á vefnum og það þyrfti þá að panta í gegnum bókasafnið. En þó að hann segðist nota bókasafnið mun minna nú en áður og vildi gjarnan hafa sem allra mest aðgengilegt frá sinni eigin tölvu þá virtist hann samt eiga í svolítilli togstreitu. Hún felst annars vegar í þægindunum af því að finna hlutina sjálfur í sinni eigin tölvu og hins vegar notalegheitunum við það að standa við hillurnar á bókasafninu eða setjast í leskrókinn. Þeir sérfræðingar sem talað var við á Eykt og Fold töldu sig einnig nota bókasafnið minna; helst fari þeir þangað til að leita í handbækur og bækur með myndefni og til að fá aðstoð við að leita að og panta efni sem ekki finnst rafrænt á vefnum. Notkun Landsaðgangs og annars rafræns efnis og upplýsingaleit Sathe, Grady og Giuse (2002) og Smith (2003) benda á að yngra fólk sé að jafnaði duglegra við að tileinka sér nýjungar, svo sem rafrænt efni, heldur en þeir sem eldri eru. Meirihluta þeirra bókasafns- og upplýsingafræðinga, sem talað var við í rannsókninni, bar einnig saman um að yngra fólk væri fljótara að tileinka sér nýjungar, enda oft vant rafrænu efni úr námi. Þeir sérfræðingar, sem talað var við, töldu aðstöðu til upplýsingaöflunar hafa breyst mikið með tilkomu Landsaðgangs og annars rafræns efnis. Bókasafns- og upplýsingafræðingar þurfi ekki lengur að vera milliliðir við að leita í prentuðum skrám eða á geisladiskum. Öll upplýsingaleit og –öflun hafi því verið miklu þyngri í vöfum áður. Tveir sérfræðinganna töldu það mikinn kost að geta leitað sjálfir að efni því að þá rekist þeir oft á áhugaverðar greinar sem ella hefðu farið framhjá þeim. Og sá þriðji sagðist ekki skilja hvernig fólk fór að áður en þessar leitarvélar komu til sögunnar. Sérfræðingarnir töldu sig nú orðið finna sjálfir á bilinu 50-70% af því efni sem þá vantar rafrænt, misjafn eftir því að hvaða efni er leitað. Niðurstöður Törmä og Vakkari (2004) benda til að tveir þriðju hlutar náttúrufræðinga í finnskum háskólum noti rafrænt efni nokkrum sinnum í viku sem er meira en önnur fagsvið. Gagnasöfn og rafræn tímarit Landsaðgangs virðast einnig meira notuð af fólki í raunvísindum en á öðrum fagsviðum (Anna Sigurðardóttir og Pálína Héðinsdóttir, 2006; Áslaug Agnarsdóttir, 2006). Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til að allir viðmælendur nema einn fagni rafræna efninu og noti það mikið og þar virðist efni Landsaðgangs gegna lykilhlutverki. En þrátt fyrir að viðmælendum virðist tamt að tala um Landsaðganginn og telji sig þekkja hann þá er líkast því að sumir sérfræðingarnir geri sér ekki grein fyrir því hvaða efni tilheyri Landsaðgangi eða hvar þeir séu yfirleitt að leita. Þeir eiga líka erfitt með að aðgreina notkun gagnasafna Landsaðgangsins og notkun sérhæfðari gagnasafna, sem öll bókasöfnin sem viðmælendur rannsóknarinnar tengjast, bjóða einnig upp á. Þetta vekur athygli. Segja má að ekki skipti máli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.