Bókasafnið - 01.10.2008, Qupperneq 50

Bókasafnið - 01.10.2008, Qupperneq 50
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 200848 bókasafns- og upplýsingafræðinganna nauðsynlegt að auka tæknikunnáttu sína til að geta betur sinnt efnisleit og alhliða upplýsingaöflun og -miðlun fyrir sérfræðinga. Þá virðist þurfa að auka kynningar- og leiðbeiningar- starf, sem e.t.v. kallar á meiri menntun bókasafns- og upplýsingafræðinga í kennslufræði til að geta útbúið hvers kyns leiðbeiningar og kennsluefni og hreinlega lært að markaðssetja bókasöfnin og upplýsingamið- stöðvarnar. Allir virtust bókasafns- og upplýsinga- fræðingarnir gera ráð fyrir að rafræna efnið muni aukast og að bókasöfn framtíðarinnar verði meira upplýsingamiðstöðvar. Þeir gera þó allir ráð fyrir „að áfram þurfi að halda utanum og matreiða upplýsingar til handa sérfræðingunum, á hvaða vettvangi sem það verður gert“ eins og einn sagði. Þjónusta sérfræðibókasafna og bókasafns- og upplýsingafræðinga Klugkist (2001) segir bókasafns- og upplýsingafræðinga eiga að bjóða upp á hágæðaþjónustu og að nýta hvert tækifæri til að auglýsa hvaða efni, þjónustu og aðstoð sem sérfræðibókasöfn bjóða upp á. Cotta- Schønberg (2005) leggur einnig mikla áherslu á þjónustuhlutverkið. Niðurstöður rannsóknarinnar benda líka til að þótt ýmiss konar færni, góð fagleg menntun og tæknikunnátta sé nauðsynleg fyrir bókasafns- og upplýsingafræðinga til að geta sinnt starfi sínu sem best virðist viðmótið og þjónustulundin skipta notendur miklu máli. Það að vera alltaf til staðar til að aðstoða sérfræðinga, kennara, stúdenta eða hvern þann hóp, sem viðkomandi sérfræðibókasafn eða upplýsingamiðstöð á að þjóna og vill þjóna, er mjög mikilvægt. Og hugsanlega að finnast ekkert erindi svo ómerkilegt að ekki eigi að sinna því með bros á vör. Ef sérfræðingum mæti slæmt viðmót, þótt ekki sé nema í eitt skipti, þá geti það orðið til þess að þeir hætti að nota bókasafnið og neyðist til að fara lengri leið við heimildaöflun. Á a.m.k. einni af þeim stofnunum sem rannsóknin náði til virtist sérfræðingum fjárhagssjónarmið um of vera farin að stjórna rekstri bókasafnsins eða upplýsingamiðstöðvarinnar. Þetta töldu þeir slæma þróun því að ef stjórnvöld teldu nauðsynlegt að stunda rannsóknir á einhverju sviði þá væri rekstur bókasafns þjónusta sem ætti að vera hafin yfir kröfuna um að standa undir sér. Meirihluti viðmælenda óttaðist skilningsleysi stjórnenda stofnana á starfsemi bókasafna og upplýsingamiðstöðva og að viðhorf þeirra væru of neikvæð. Það virðist því mikilvægt að kynna þjónustuna, láta verkin tala og sýna hvers bókasafns- og upplýsingafræðingar eru megnugir. Erlendar rannsóknir sýna að það gæti verið æskilegt að bókasafns- og upplýsingafræðingar gegndu stærra hlutverki sem aðstoðarfólk við rannsóknarvinnu og að gæði háskóla og það hve eftirsóttir þeir séu geti jafnvel ráðist af hæfni bókasafns- og upplýsingafræðinga sem þar starfa. Þetta má t.d. sjá hjá Petersen (2006) og Wakeham og Garfield (2005) og Cotta-Schønberg telur þá eiga að vera „i brændpunktet mellem universitet og biblioteket“ (Cotta-Schønberg, 2005, bls. 18). Einn sérfræðinganna, sem inntur var eftir þessu, taldi á hinn bóginn bókasafns- og upplýsingafræðinga ekki æskilegasta kostinn til að setja í einhverja „púlvinnu“ við rannsóknir eins og hann sagði og hinir höfðu ekki beina skoðun á málinu. Þörf fyrir meiri fagmenntun á sviði náttúrufræða? Talsverð umræða á sér nú einnig stað um menntun bókasafns- og upplýsingafræðinga; hvort ástæða sé að breyta um áherslur þannig að fólk bæti bókasafns- og upplýsingafræðinámi ofan á einhverja faggrein. Þeir bókasafns- og upplýsingafræðingar sem talað var við og einhvern bakgrunn hafa í náttúrufræði töldu hana hafa nýst sér afar vel í störfum á náttúruvísindabókasöfnum. Þeim fannst þó tæplega ástæða til að breyta námi í bókasafns- og upplýsingafræði þannig að það yrði skylda að taka einhverja faggrein og bæta bókasafns- og upplýsingafræði ofan á. Til þess sé starfsvettvangur sérfræðibókasafna og upplýsingamiðstöðva varla nógu stór og fjölbreytilegur. Svipuð afstaða kom fram hjá þeim sem ekki höfðu bakgrunn í náttúrufræði; þeir töldu sig þó, sérstaklega í upphafi starfsferils, stundum hafa saknað þess. Lokaorð Hér hefur verið fjallað um hvaða áhrif Landsaðgangur og annað rafrænt efni hefur haft á sérfræðibókasöfn og upplýsingamiðstöðvar á fjórum náttúruvísinda- stofnunum. Niðurstöður benda til að þótt rafræna efnið sé farið að hafa umtalsverð áhrif á störf og hlutverk bókasafns- og upplýsingafræðinga þá verði áfram þörf fyrir þjónustu þeirra. Þrátt fyrir að sérfræðingar finni orðið sjálfir talsverðan hluta þeirra upplýsinga og heimilda sem þeir þurfa á að halda á rafrænu formi og slíkt efni muni aukast þá verða alltaf einhverjir sem ekki nýta rafræna efnið sem skyldi og þá þurfa bókasafns- og upplýsingafræðingar að aðstoða. Náttúrufræðingar virðast einnig töluvert háðir eldra efni til samanburðar við nýrri rannsóknir. Og það efni verður áfram einungis að finna á bóka- söfnum og upplýsingamiðstöðvum. Leiðbeiningar- og kennsluhlutverki þarf að gefa meiri gaum. Meirihluti sérfræðinga kvartaði undan skorti á leiðbeiningum við leitir og notkun rafræns efnis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.