Morgunblaðið - 10.04.2015, Side 1

Morgunblaðið - 10.04.2015, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. A P R Í L 2 0 1 5 Stofnað 1913  83. tölublað  103. árgangur  HÁTÍÐ SEM EIN- BLÍNIR EINGÖNGU Á MYNDLIST ORÐALEIKARNIR GUÐNI HLAUT BÓKMENNTA- VERÐLAUN IBBY VEKJA ÁHUGA KRAKKA Á LESTRI 10 MIKILVÆGAST AÐ VANDA SIG 39SEQUENCES 38 Malín Brand malin@mbl.is Íslenska landnámshænan nýtur mikilla vinsælda í Vesturheimi og þykir einstök í alla staði. Ræktendur leggja mikið upp úr að halda stofn- inum hreinum og reynt er að koma í veg fyrir hvers kyns blöndun við aðra stofna. Í kjölfar greina sem birst hafa um hænurnar í tímaritum ytra er eftirspurnin orðin slík að sumir ræktendur vita ekki sitt rjúk- andi ráð og víða eru biðlistar til árs- ins 2017. Er hænunum lýst sem ákaflega geðgóðum, klókum og forvitnum auk þess sem í þeim er sögð vera seigla sem minni helst á hina norrænu vík- inga. Enda gengur landnámshænan þar gjarnan undir nafninu „Viking Chicken“. Ljóst þykir að stofninn muni eflast til muna vestanhafs með þessu áframhaldi. » 4 Landnámshænan heillar vestra  Anna ekki eftirspurn í Bandaríkjunum Morgunblaðið/Styrmir Kári Hænuungar Ungarnir eru sætir hnoðrar sem gleðja alla sem sjá. „Það var fín stemning og samstaða á fundinum,“ sagði Páll Halldórsson, formaður BHM, að loknum samstöðufundi BHM-félaga sem haldinn var á Lækj- artorgi í gær. Þaðan gekk hópurinn fylktu liði að efnahags- og fjármálaráðuneytinu þar sem afhent var áskorun til ráðherra. Morgunblaðið/Golli Vilja að menntun verði metin til launa 2.300 BHM-félagar lögðu niður störf um hádegisbil í gær Meiri harka færist jafnt og þétt í verkfalls- aðgerðir stéttarfélaganna í kjaraviðræðum þeirra við ríkið. Rúmlega 2.300 félagsmenn Bandalags háskólamanna (BHM) lögðu nið- ur störf í gær. Eftir hádegið voru því rúm- lega 3.000 BHM-félagar ekki við vinnu. Vinnustöðvunin hefur áhrif víða í samfélaginu, m.a. á ýmsa stoð- og fé- lagsþjónustu. Á sama tíma boðar Starfs- greinasambandið (SGS) atkvæða- greiðslu um víð- tækari verkfalls- aðgerðir sem bresta munu á í lok apríl og í maí, náist samningar ekki fyrir þann tíma. Ástæðuna segir SGS vera tilraunir SA til að tefja fyrir atkvæðagreiðsl- unni. Um er að ræða allsherjar- verkfall sem næði til tíu þúsund félags- manna SGS. Á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness, aðildarfélags SGS, kemur fram í tilkynn- ingu að þar sé undirbúningur hafinn fyrir „grjóthart verkfall“. Sjóðir þeirra standi vel og fyrir liggi að félagið muni geta haldið sínum félagsmönnum í verkfalli í rúman mánuð. Að sögn Páls Halldórssonar, formanns BHM, er fyrst og fremst farið fram á það að menntun verði metin til launa. „Hvað við komumst svo langt í því í þess- ari atrennu er erfitt að segja. Ég á ekkert endilega von á að hægt verði að leysa þetta í einum kjarasamningi,“ segir Páll og að- spurður útilokar hann ekki gerð skamm- tímasamnings. „Það gæti verið tiltekin lausn.“ BHM hefur miðað kröfugerð sína við að samið verði til 2-3 ára. Harkan eykst í deilunum  BHM útilokar ekki skammtímasamning Aðgerðir » 17 félög í BHM voru í verkfalli eftir hádegi í gær. Sex BHM- félög eru nú í ótímabundnu verkfalli. » 16 félög Starfsgreina- sambandsins skipuleggja að- gerðir, 30. apríl, 7., 19. og 20. maí og ótímabundið verkfall 26. maí. MSkoruðu á ríkið að semja »6  Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti í gær verkefnislýsingu vegna undirbúnings að nýjum kirkjugarði við Úlfarsfell. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma, sagði þetta þýða að hægt verði að skipuleggja flutning jarð- vegs á svæðið. Landfyllingin þarf að ná réttri hæð svo hægt verði að byrja að móta garðinn. Rætt hefur verið um að nota m.a. jarðveg frá Hlíðarendasvæðinu til fyllingar. Teikningar að nýja garðinum eru fyrirliggjandi. Hann á að verða hringlaga og verður byrjað að jarða innst í hringnum. Undirbún- ingur tekur 6-8 ár en græða þarf upp landið, leggja stíga o.fl. Gert er ráð fyrir að í garðinum rúmist alls 20-22 þúsund grafreitir. »22 Nýr kirkjugarður líklega við Úlfarsfell Úlfarsfell Undirbúningur tekur 6-8 ár.  Takmarkanir sem ófullnægj- andi meginflutn- ingskerfi raf- orku setja stuðla að orkusóun. Á vorfundi Lands- nets í gær kom fram að áætlað fjárhagslegt tap þjóðarinnar hlypi á 3-10 millj- örðum árlega og færi vaxandi. Með því að tengja saman raforkukerfi landsins mætti nýta virkjanir betur og spara orku sem jafngildir einni meðalstórri virkjun. »12 Orkutap kostar 3-10 milljarða króna á ári Raforka Loftlínur eru umdeildar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.