Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 2
Malín Brand
malin@mbl.is
Yfirlýsing frá OECD var birt í gær
þar sem vakin er athygli á að
vinnuhópur OECD um mútu-
greiðslur telur að Ísland hafi ekki
með fullnægjandi hætti innleitt
samning OECD um baráttu gegn
mútugreiðslum til erlendra opin-
berra starfsmanna í alþjóðlegum
viðskiptum.
Ísland fær frest fram í október til
að skila skýrslu um innleiðingu
ábendinga hópsins, sem alls eru
sautján talsins. Aðeins tvær þeirra
hafa þegar verið innleiddar og var
það gert árið 2012. Ráðherranefnd
var stofnuð til að innleiða það sem
út af stendur.
Innanríkisráðuneytið svaraði fyr-
irspurn blaðamanns um seinagang-
inn skriflega og þar segir eftirfar-
andi: „Innanríkisráðuneytið vill
taka fram að ýmsar ástæður eru
fyrir því að innleiðing framan-
greindra aðgerða er ekki lengra
komin en raun ber vitni. Ástæðan
er einkum sú að vegna efnahags-
ástands hefur ekki verið unnt að
setja nægilegt fé og mannafla til að
sinna þessu verkefni og það því
ekki hlotið forgang.“
Ófullnægjandi svör
Ennfremur kemur fram í svari
ráðuneytisins að innanríkisráðu-
neytið hafi í síðasta mánuði sent
OECD upplýsingar um hvernig
brugðist yrði við tilmælunum.
„Vinnuhópur OECD taldi svörin
ekki fullnægjandi og samþykkti að
gefa út fyrrnefnda yfirlýsingu þar
sem Ísland er hvatt til að innleiða
Ísland hefur ekki orðið við
óskum OECD um hert eftirlit
Barátta gegn mútugreiðslum stutt komin að mati OECD
Á meðal verkefna
» Setja þarf upp þjálfun fyrir
saksóknara varðandi upptöku
á hagnaði vegna mútu-
greiðslna og að gerð sé krafa
um upptöku fjár í málum er
tengjast erlendum mútubrot-
um.
» Löggæsla og saksóknarar
þurfa að fá þjálfun varðandi
rannsókn og saksókn erlendra
mútubrota. Sérstök rannsókn-
arúrræði lögreglu þurfa einnig
að ná til rannsóknar á erlend-
um mútubrotum.
» Endurskoðendur og skatt-
rannsóknarsérfræðingar eiga
að fá viðeigandi þjálfun varð-
andi erlend mútubrot.
að fullu tilmæli OECD og er veittur
til þess frestur fram í október.“
Norðurlönd taki sig á
Alls tekur fjörutíu og eitt land
þátt í baráttunni gegn mútu-
greiðslum til erlendra opinberra
starfsmanna í alþjóðlegum viðskipt-
um. Þar á meðal eru nágrannalönd-
in Svíþjóð, Danmörk, Noregur og
Finnland.
Athugasemdir hafa verið gerðar
við framvindu innleiðingar tilmæla
OECD hjá þeim öllum eins og lesa
má um á vef OECD, www.oecd.org.
Svo virðist sem Danmörk og Ísland
séu seinni til að ná markmiðunum
en Finnland og Svíþjóð. Bestur hef-
ur árangurinn verið í Svíþjóð þar
sem stór skref hafa verið tekin, að
því er fram kemur í skýrslu vinnu-
hóps OECD.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Verkfræðinemar við Háskóla Íslands afhjúpuðu í
gær nýjan kappakstursbíl, TS15. Liðið, Team
Spark, fer svo með bílinn í alþjóðlegu kappakst-
urs- og hönnunarkeppnina Formula Student sem
haldin verður á Silverstone-kappakstursbrautinni
í Englandi í júlí. Lið HÍ vann einmitt til verðlauna
á brautinni í fyrra. „Helsti munurinn á þessum bíl
og bílnum í fyrra er að þá bjuggum við til bíl sem
hægt væri að keyra. Núna erum við að gera bíl
sem hægt er að keyra og er samkeppnishæfur við
bestu tækniháskóla í heimi,“ segir Aðalheiður
Guðjónsdóttir, liðstjóri Team Spark.
Morgunblaðið/Þórður
„Samkeppnishæfur við bestu tækniháskóla í heimi“
Verkfræðinemar við HÍ kynntu kappakstursbílinn TS15 til leiks í gær
Ríkissaksóknari ætlar að áfrýja
sýknudómi lögreglumannsins sem
sakaður var um meintar ólögmæt-
ar uppflettingar í málaskrárkerfi
ríkislögreglustjóra, LÖKE. Þetta
staðfestir Garðar Steinn Ólafsson,
lögmaður mannsins, í samtali við
Morgunblaðið.
Í héraði var krafa ákæruvaldsins
að ákvörðun refsingar væri frestað
ef sakfellt yrði og allur málskostn-
aður félli á ríkið óháð niðurstöðu.
Garðar Steinn fékk það staðfest í
dag að ríkissaksóknari héldi sig við
eigin kröfugerð um málskostnað í
héraði en endanleg kröfugerð komi
svo fram í greinargerð.
Garðar segir ákvörðun ríkis-
saksóknara koma sér á óvart, en
þó ekki í opna skjöldu.
„Lögfræðilega er þetta alveg
óskiljanlegt en ríkissaksóknari var
búinn að koma með sínar yfirlýs-
ingar í fjölmiðla og það var emb-
ættinu ekki til framdráttar að hún
væri að gera sig digra því emb-
ættið kemur ekki vel út úr þessu
máli. Því miður kemur þetta ekki
nægilega mikið á óvart,“ segir
Garðar.
Margt undarlegt
Hann segir ekkert benda til þess
að þetta mál hafi yfirleitt átt að
fara af stað og margt undarlegt við
rannsókn þess.
„Það er mjög undarlegt að stofn-
un sem nú liggur fyrir að geti ekki,
samkvæmt Ríkisendurskoðun,
sinnt lögboðnum skyldum sínum,
sé að eyða tíma og peningum í að
eltast við eitthvað sem embættið
sjálft viðurkennir að varði ekki
refsingu.“ malin@mbl.is
Saksóknari
áfrýjar
LÖKE-máli
Fólksbifreið valt á Biskupstungna-
braut vestan við Sogið í gærkvöldi.
Tveir voru fluttir á sjúkrahús í
Reykjavík, annar þeirra með þyrlu,
og eru þeir báðir alvarlega slasaðir.
Alls voru sex manns í bifreiðinni en
hinir fjórir voru fluttir á Sjúkra-
húsið á Selfossi og eru meiðsl
þeirra minniháttar.
Lögreglan á Suðurlandi greindi
frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Slysið varð klukkan 20:30 og
voru lögreglu- og sjúkraflutn-
ingamenn frá Hvolsvelli og Reykja-
vík fengnir til aðstoðar auk slökkvi-
liðsmanna frá Brunavörnum
Árnessýslu. Lögreglumenn voru að
störfum á Biskupstungnabraut í
gærkvöldi og var veginum lokað
um hríð á meðan sú vinna fór fram.
Mikil hálka var á vettvangi þar sem
slysið varð.
Tveir alvarlega slas-
aðir eftir bílveltu
„Þetta er allt í lagi ennþá, enda hef-
ur aðallega verið kalt hingað til,“
segir Þórólfur Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkurborgar, um stöðu
gróðursins í borginni eftir umhleyp-
inga síðustu daga og vikur.
„Það sem getur verið slæmt á
þessum árstíma er ef það er frost á
nóttunni og sól yfir daginn í lengri
tíma og gróðurinn nær að hitna. Sí-
græni gróðurinn þolir það mjög illa
því þá hitna nálarnar yfir daginn og
þorna svo,“ segir Þórólfur en tekur
fram að engin hætta sé á slíku enn.
„Þetta er þó tíminn sem svoleiðis
skilyrði gætu orðið,“ bætir hann við.
Hlýnar um miðja næstu viku
Aðspurður segir Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur ekkert
óeðlilegt við veðrið undanfarið. „Ís-
lenska vorið höktir alltaf í gang. Hér
erum við á mörkum hlýrra og kaldra
loftstrauma þannig að stundum
dembist yfir okkur kalt loft úr norðri
og svo aftur mildara loft úr suðri þar
sem farið er að hlýna,“ segir Einar.
Þá gerir hann ráð fyrir miklu
hreti um helgina um land allt en um
miðja næstu viku muni koma betri
tíð með blóm í haga. „Þá hækkar
loftþrýstingurinn og loftið sem verð-
ur yfir okkur verður suðlægara,“
segir Einar og bætir við að hlýnunin
muni ekki fara fram hjá neinum.
Varðandi afdrif gróðursins í þessum
ætluðu veðurbrigðum segir Þórólfur
það ekki koma að sök nema hlýjinda-
skeiðið reynist langt og á eftir því
komi annað kuldaskeið.
„Við fengum góðan kafla um
páskana en svo hrukkum við strax til
baka, vorið tekur stundum eitt skref
áfram og tvö til baka.“ Ómögulegt er
þó að spá um hvort þessi hlýindi
haldist hér á landi, að mati Einars en
langtímaspár á þessum árstíma séu
ekki áreiðanlegar.
„Íslenska vorið höktir alltaf í gang“
Mikið hret verður um helgina Veður hlýnar um miðja næstu viku Gróðurinn heldur velli þrátt
fyrir kulda á nóttu og sól á daginn Langtímaspár í veðri óáreiðanlegar á þessum árstíma
Ljósmynd/Malín Brand
Vetrarlegt Gróðurinn hefur ekki farið varhluta af vetrarlegu vori þessa árs
en ber sig þó vel. Von er þó á að hlýni í veðri um miðja næstu viku.