Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 Fýll á flugi Þessi flotti fýll sem einnig er oft nefndur múkki flaug yfir höfnina í Vestmannaeyjum og virti fyrir sér skipin stór og smá sem lágu þar við höfnina í stilltu veðri. Eggert „Henni varð altaf jafnmikið um í hvert skifti sem líf hennar var eyðilagt.“ Þessi orð, sem voru viðhöfð um Sölku Völku, koma í hug þegar ákveðnir ráða- menn hugsa upphátt og segja hug sinn all- an, rétt eins og engir séu til að leggja við hlustir. Áföll Þegar hafðar eru uppi spurnir um það hvaða áföll og atburðir hafi mest áhrif á líf fólks sammælast flestir um að eftirfarandi hafi mest áhrif:  Ástvinamissir Með því er átt við missi maka, for- eldris, barns, systkinis eða annars er nærri manninum stendur.  Upplausn heimilis Hjónaskilnaður og höfnun.  Atvinnumissir Brottrekstur eða gjaldþrot atvinnu- rekenda  Föll í eigin fjármálum Persónulegt gjaldþrot og eignamiss- ir Dauðaferlið Svissneski sálfræð- ingurinn Elisabeth Kü- bler-Ross, en hún starf- aði í Bandaríkjunum, setti fram kenningu sína um dauðaferlið í bók sinni „On Death and Dy- ing“. Kenning hennar um dauðaferlið er sú að maðurinn upplifi ást- vinamissi í þrepum, allt frá högginu sem kemur við dauðann, tilfinn- ingaleysi og doða, til saknaðar og eft- irsjár, upplausnar, örvæntingar og rótleysis, uppgjörs, og að síðustu enduruppbyggingar og sköpunar nýs lífs án þess sem fallinn er frá. Hver og einn getur mátað eigin reynslu við kenningu Elisabeth Kübler-Ross. Sá er þetta ritar hefur upplifað sáran ástvinamissi og í kjölfar ást- vinamissisins atvinnumissi og síðar niðurlægingu og höfnun af manna- völdum. Starfsmissir Fall á prófi er talið hreinn barna- leikur samanborið við að missa at- vinnuna. Þó eru prófið og starfið um margt hin ytri merki sjálfsvirðingar. Maðurinn er í eðli sínu samvisku- samur og vill sinna starfi sínu vel. Auk umbunar fyrir starfið vill mað- urinn fá hrós fyrir vel unnið verk, jafnframt því sem hann hefur unun af því að dást að því sem hann hefur gert vel. Algengasta ástæða starfsmissis er vegna skipulagsbreytinga, gjald- þrots eða breytinga, eða vegna þess að starfsmaðurinn er útbrunninn eins og það er kallað, eða þá af þeim sökum að umburðarlyndi vegna áfengisneyslu hefur dvínað frá því farið var að bjóða upp á meðferð- arúrræði við slíkri meinsemd. Flutningar Því er þetta rifjað upp, að sumir ráðamenn hafa tekið sér fyrir hend- ur, til eigin hreystimerkis, að ráðsk- ast með störf fólks. Þannig telur sjávarútvegsráðherra rétt og eðlilegt að flytja Fiskistofu til Akureyrar, með manni og mús, án þess að ræða það við starfsfólkið. Starfsfólk frétti það með sama hætti og aðrir lands- menn, í fjölmiðlum! Áform af þessu tagi eru árás á sjálfsvirðingu starfs- manna Fiskistofu, starfsfólks, sem hefur lagt sig fram um að gera vel í störfum sínum. Næst er til að taka að landshluta- nefnd fyrir Norðurland vestra hefur ákveðið að gera tillögu um að flytja að minnsta kosti tvær stofnanir í Skagafjörð, þ.e. Landhelgisgæsluna og RARIK. Hagkvæmni Í engu þessara tilfella liggja fyrir nokkrar athuganir á hagkvæmni þeirra flutninga, sem lagðir eru til. Hvað þá að metin séu áhrif á lífskjör í landinu með þessum fyrirhuguðu flutningum. Flutningarnir kunna að bæta hag nokkurra en rýra hag ann- arra og þó mest heildarinnar. Síðan er velt upp möguleika á flutningi Landspítala milli bæj- arhluta í Reykjavík, frá Hringbraut að Háaleitisbraut, og áhugavert er að reikna hagkvæmni slíks út þótt ekki væri nema á munnþurrku. Þetta hefur hvorki verið rætt við starfs- menn né aðra hagsmunaaðila, en aðrir eru greinilega búnir að velta þessu mikið fyrir sér með því að sjá fyrir um jarðgöng og söluhagnað eigna. Framganga og atferli Framganga og atferli sjávar- útvegsráðherra varðandi áform um flutning Fiskistofu er dæmigert um það á hvern veg ekki á að standa að breytingum og hvernig sumum fer það ekki vel að hugsa upphátt. Fram- ganga af þessu tagi dregur úr trausti á stjórnvöldum og stjórnmálamönn- um þegar þörf er á að efla traust. Framganga landshlutanefndar Norðurlands vestra eflir ekki hag- sæld í landinu og því síður vangavelt- ur um flutning Landspítala á Háa- leitisbraut. Tapað tafl Nær er að spyrja hví landsbúinn vill ekki búa í Skagafirði. Eða þá hví byggðaröskun hefur orðið á þeim 70 árum sem liðin eru frá lýðveld- isstofnun. Kann að vera að margt hafi verið gert með röngum hætti? Og svo er haldið áfram með sama hætti og áður. Með einum sviknum leik tapast taflið! Eftir Vilhjálm Bjarnason » Áform af þessu tagi eru árás á sjálfsvirðingu starfs- manna Fiskistofu, starfsfólks, sem hefur lagt sig fram um að gera vel í störfum sínum. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er alþingismaður. Átök í lífinu og atvinnumissir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.