Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 100. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Eldingin gataði nefið 2. „Hann minntist aldrei á að …“ 3. „Hann hafði stjórn á Scott“ 4. Barðist fyrir lífi sínu í Mosfellsbæ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Karlakórinn Hreimur heldur tón- leika með Ljótu hálfvitunum að Ýdöl- um í Aðaldal á laugardaginn, 11. apríl, kl. 20.30 og í Háskólabíói viku síðar, 18. apríl, kl. 15. Í tilkynningu segir að fertugsafmæli sé ekki verri tími en annar til að fá klikkaðar hugmyndir og framkvæma þær. „Það sannast þessa dagana hjá hinum fjörutíu ára gamla þingeyska karlakór Hreimi. Þar á bæ datt þeim í hug að bjóða hinni þjóðþekktu gleðisveit Ljótu hálfvit- unum í afmælið. Hljómsveitin er vissulega úr sömu sveit, en dvelur að jafnaði í allt öðru tónlistarlandi,“ segir þar. Á tónleikunum muni Hreim- ur og Ljótu hálfvitarnir flytja tónlist á sinn hefðbundna hátt, en jafnframt rugla reytum. Hljómsveitin hafi út- sett nokkur alþekkt lög af efnisskrá Hreims eftir sínu höfði og leiki undir hjá kórnum. Einnig hafi nokkur af lögum Hálfvita fengið karlakórs- meðferð. Um meðfylgjandi mynd seg- ir að eftir skipulagsfund Hreims- manna og Hálfvita á Möðruvöllum hafi verið ákveðið að hafa helgistund í kirkjunni. „Það fór nú bara eins og það fór,“ segir um þá helgistund. Hálfvitar með Hreimi  Ástralski saxófónleikarinn Daniel Rorke og gítarleikarinn Hilmar Jens- son halda tónleika í menningarhús- inu Mengi í kvöld kl. 21. Á tónleik- unum munu þeir bæði spinna og spila ákveð- in tónverk sem sam- eina áferðar- og upp- byggingaratriði sem mætast í litrófi þeirra þátta sem lagðir eru til, eins og því er lýst í tilkynningu. Rorke og Hilmar leika í Mengi Á laugardag Norðan og norðvestan 15-23 m/s og snjókoma, tals- verð á Norður- og Norðvesturlandi. Hægari vindur fyrir austan undir kvöld. Hiti við frostmark en frostlaust með austurströndinni. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt en dregur úr vindi á Suðaustur- og Austurlandi í kvöld. Frost 0 til 5 stig, en allvíða frostlaust yfir hádaginn. VEÐUR Valur og Haukar mætast í undanúrslitum Íslands- móts karla í handknattleik en bæði liðin tryggðu sér sæti þar í gærkvöld. Vals- menn sigruðu Framara í annað sinn á mjög öruggan hátt og Haukar lögðu erki- fjendurna úr FH með fjögurra marka mun á Ásvöllum. Einvígin end- uðu því 2:0 og engir oddaleikir þar. »2 Valur og Haukar í undanúrslitum Kylfingurinn ungi, Jordan Spieth frá Bandaríkjunum, virðist ætla að gera aðra atlögu að sigri á Masters- mótinu sem hófst á hinum glæsilega Augusta National-velli í Georgíuríki í Bandaríkjunum í gær. Spieth fór á kostum á fyrsta hringnum í gær og lék á 64 höggum sem er átta undir pari vallarins og aðeins höggi frá vallarmetsjöfnun. »1 Frábær byrjun hjá hin- um unga Jordan Spieth ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Halda mætti að heimsborgin Toronto í Kanada hefði allt sem slík borg þarf upp á að bjóða en svo virðist sem þörf hafi verið fyrir íslenskt bakarí, miðað við móttökurnar sem Viking Bakery hefur fengið. „Þetta hefur gengið framar öllum vonum,“ segir Birgir Róbertsson bakarameistari sem opnaði bakaríið um miðjan mars sl. og hefur ekki haft undan síðan. Birgir flutti til Kanada í kjölfar bankahrunsins og opnaði bakaríið Reykjavik Café á Gimli í Manitoba 2010. Hann segir að þótt hann hafi byrjað í hjarta Íslendingabyggðar- innar vestra hafi hann alltaf sett stefnuna á Toronto. „Maður þarf að sjá meira af Kanada en Gimli og mig langaði alltaf til Toronto. Ég flutti hingað fyrir um fjórum mánuðum og reksturinn gengur sérstaklega vel.“ Bakaríið er í blönduðu hverfi á Danforth-stræti, ekki langt frá gríska hverfinu. Birgir segir að ekkert bak- arí hafi verið í hverfinu og það sé vel staðsett í göngufæri frá lestarstöð. „Hérna er mikið líf og mikil umferð,“ segir Birgir. „Hverfið er yndislegt og íbúarnir leita ekki langt yfir skammt þegar innkaup eru annars vegar og ég nýt góðs af því. Hér vantaði bakarí og því hefur verið vel tekið.“ Möguleikar með beinu flugi Icelandair flýgur daglega beint frá Íslandi til Toronto og segir Birgir það skipta miklu máli. Hann leggur áherslu á að bjóða upp á íslenskt góð- gæti eins og kleinur, snúða, flatkökur og að sjálfsögðu vínartertur. Auk þess er hann meðal annars með malt- brauð og normalbrauð. „Skandinav- arnir eru sólgnir í kransakökurnar en annars er ásóknin mest í kleinurnar, ekki síst hjá fólki af úkraínskum upp- runa, sem er vant kleinum.“ Birgir bætir við að hann taki eitt skref í einu og hann hafi hug á að nýta sér beina flugið og flytja inn íslenskt sælgæti og harðfisk, þegar fram í sækir. Dagblaðið Toronto Star sagði frá bakaríinu daginn áður en það var opnað og segir Birgir að umfjöllunin hafi haft mikil áhrif. „Það var biðröð fyrir utan fyrsta morguninn og við höfum ekki haft undan síðan,“ segir hann. „Veðrið hefur ekki verið sér- stakt en það hefur ekki skipt máli og við höfum fengið viðskiptavini víðs vegar að,“ segir Birgir, sem er með þrjá starfsmenn í vinnu með sér. Árlegt þorrablót Íslendingafélags- ins í Toronto verður á morgun og í gær höfðu selst 266 miðar. Boðið verður upp á góðgæti frá Íslandi auk þess sem Birgir ætlar að baka flat- kökur og kökur fyrir blótið. „Ég hlakka til að mæta á fyrsta þorrablót mitt í Kanada,“ segir hann. Hefur ekki undan að baka  Fyrsta íslenska bakaríið opnað í Toronto í Kanada Ljósmynd/Reynir Sæm Frumkvöðull Birgir Róbertsson bakarameistari í nýja bakaríinu, Viking Bakery, í Toronto í Kanada. Birgir Róbertsson útskrifaðist sem bakarameistari frá Iðnskól- anum í Reykjavík, en sinnti síðan ýmsum öðrum störfum þar til hann lét aftur reyna á mennt- unina á Gimli í Manitoba í Kan- ada 2010. Þegar hann rak Blúsbarinn á Laugavegi gaf hann sig á tal við kanadíska gesti, sem ráðlögðu honum að fara til Gimli ef hann vildi flytja til Kanada, því þar væri Íslandstengingin mest. Hann segir að Atli Ásmundsson, þáver- andi aðalræðismaður í Winnipeg, hafi líka gefið sér góð ráð, eitt hafi leitt af öðru og hann flutt út sumarið 2009. „Bakaríið gekk mjög vel á Gimli enda mikill ferðamannastraumur þar á sumr- in, en staðurinn leggst í dvala á veturna og þá lokaði ég í tvo til þrjá mánuði,“ segir Birgir. Hann bætir við að hann hafi selt tæki og tól í haust sem leið enda þá kominn tími á að flytja til To- ronto, sem hafi alltaf verið áfangastaðurinn. Kominn á áfangastað BIRGIR RÓBERTSSON BAKARAMEISTARI HEFUR KOMIÐ VÍÐA VIÐ Ævintýraleg karfa sem Stefan Bon- neau skoraði tveimur sekúndum fyrir leikslok tryggði Njarðvík sigur á KR, 85:84, í öðrum undanúrslitaleik lið- anna á Íslandsmóti karla í körfu- knattleik í gærkvöld. „Ég æfi svona erfið skot reglulega,“ sagði Bonneau við Morgunblaðið en staða liðanna er nú jöfn og þau mætast í þriðja sinn á sunnudagskvöldið. » 3 Ævintýraleg sigurkarfa hjá Bonneau gegn KR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.