Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 Malín Brand malin@mbl.is Þær eru einstaklega fljótar að læra, for- vitnar, snyrtilegar og harðar af sér. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í lýsingu hinnar bandarísku Amy Fewell á íslensku landnámshænunni. Umfjöllun hennar um landnemann í Bandaríkjunum birtist á vefn- um www.mothernaturenews.com og lýsir hún þar fyrstu fimm mánuðum ræktunar landnámshæna í Virginíu. Íslenska landnámshænan nýtur eindæma vinsælda í Bandaríkjunum og eftir að grein- ar um ágæti hennar birtust í tímaritum og vefmiðlum ætlaði allt um koll að keyra hjá ræktendum. Slík er eftirspurnin að víða hafa orðið til langir biðlistar eftir ungum. Til að mynda hafa bændurnir á Whippoor- will Farm í Winsconsin ekki annað eftir- spurninni og er biðlisti ársins 2017 að fyllast og verðið hækkar í takt við eftirspurnina. Auk þess þarf að greiða 25 dollara til að komast á biðlistann og er gjaldið óaftur- kræft. En af hverju stafa þessar miklu vin- sældir? Hænur víkinganna Fewell skrifar í grein sinni að landnáms- hænan sé af einstökum ævafornum stofni og mikilvægt sé að halda hreinleika stofnsins eins og hægt er. Landnámshænan er ýmist kölluð „Icelandic Chicken“ eða „Viking Chicken“ í Bandaríkjunum og þykir mörg- um hún standa fyrir sama styrk og hinir fornu víkingar, þó hún virðist betri í skap- inu en þeir. Segir ennfremur að samkvæmt blóðsýnarannsókn frá 2004 séu 78% erfða- efnis landnámshænunnar algjörlega einstök og fyrirfinnist ekki í öðrum stofnum í víðri veröld. Virðast flestir metnaðarfullir ræktendur þar ytra sammála um að mikil ábyrgð sé lögð á herðar hvers sem ætlar sér að hefja ræktun á landnámshænum því ekki megi undir nokkrum kringumstæðum leyfa blönd- un stofnsins við aðra, heldur þurfi að hlúa vel að stofninum, enda hafi Íslendingar tak- markað mjög innflutning á dýrum til eyj- arinnar í norðri og þannig tekist að varð- veita einstakan stofn hinnar fróðleiksfúsu og forvitnu landnámshænu. Landnámshænan vappar um Bandaríkin  Biðlistar eftir íslensk- um landnámshænum ytra vegna vaxandi vinsælda Morgunblaðið/Styrmir Kári Hænuungar Íslensku landnámshænurnar þykja fróðleiksfúsar og forvitnar. Guðmundur Jóhannesson, deildar- stjóri veiðieftirlits Fiskistofu, segist undrandi á yfirlýsingum Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- ráðherra hér í Morgunblaðinu í fyrradag, ekki síst vegna þess að starfsmenn Fiskistofu hafi ekki heyrt frá ráðherranum síðan í des- embermánuði í fyrra. Fram kom í hádegisfréttum RÚV í gær að sjávarútvegsráðherra hefði haft samband við fiskistofustjóra í gærmorgun og sagst mundu leggja áherslu á að frumvarpið um flutning Fiskistofu yrði að lögum á þessu þingi. „Ennþá stendur bréfið, sem ráð- herra sendi okkur starfsfólkinu í fyrra þar sem hann útlistaði sína ákvörðun og hvernig staðið yrði að flutningi Fiskistofu, óhaggað,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgun- blaðið í gær. Einstakir þættir gefa eftir Að sögn Guðmundar voru fáir starfsmenn Fiskistofu við störf í gær vegna verkfalls BHM. Guðmundur segir að fjöldi fólks hafi látið af störfum, þótt aðeins hafi hluti þeirra starfsmanna verið í störfum sem átti að flytja norður. Fækkað hafi um 12 til 15 manns og lausráðið hafi verið í nokkrar stöður og ráðið í tvær til þrjár stöður. „Það hefur ekki verið ráðið í líkt því öll þessi störf ennþá. Jafnframt veit ég um fjölda starfsmanna, sem sáu fram á að flytja ætti störf þeirra norður, sem eru í virkri atvinnuleit nú þegar, þannig að öll starfsemi Fiskistofu hefur laskast,“ sagði Guð- mundur. Hann telur að það hafi ekk- ert verið ofsagt í frétt Morgun- blaðsins í gær, þar sem haft var eftir fiskistofustjóra að stofnunin stæði höllum fæti og einstakir þættir í starfseminni væru byrjaðir að gefa eftir. agnes@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Fiskistofa Frá starfsmannafundi um flutning Fiskistofu í fyrrasumar. Starfsemi Fiskistofu laskast  Deildarstjóri á Fiskistofu undrandi Þrátt fyrir að vel megi finna kalda vinda blása og vorið virki fjarri létu þessar stöllur sér fátt um finnast og fengu sér ís á Lækjartorgi. Eins og sjá má líta þær til sólar. Engu líkara er en að þær sjái sumarið í fjarska og er það ekki verri ástæða en hver önnur til þess að gæða sér á ís, enda bragð- ast hann ekkert verr í kuldanum. Nú eru tæpar tvær vikur í sumardaginn fyrsta og því er um að gera að fara að pressa stuttbuxurnar. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Ísinn bragðast ekki verr í kuldanum Dregið hefur úr hraðri aukningu á lungnakrabbameini hjá báðum kynj- um hér á landi en konur hafa tekið fram úr karlmönnum hvað varðar ný- gengi sjúkdómsins og greinast nú hlutfallslega fleiri konur með sjúk- dóminn. Starfshópur um lunga- krabbamein á Íslandi kynnti í gær nýjan bækling um lungnakrabbamein fyrir sjúklinga og aðstandendur. Lungnakrabbamein er annað algeng- asta krabbameinið sem greinist hér- lendis, bæði hjá körlum og konum. Árlega greinast um 160 Íslendingar með lungnakrabbamein en rekja má 90% tilfella þess beint eða óbeint til reykinga. Tómas Guð- bjartsson, hjarta- skurðlæknir og yfirlæknir á Landspítalanum, segir að mjög óvenjulegt sé í al- þjóðlegu sam- hengi að tíðni sjúkdómsins sé hærri hjá konum en körlum. Hann bendir á að íslenskar konur hafi reykt mikið eftir seinni heimsstyrjöld og reykingar algengari hér en hjá konum í nágrannalöndun- um. „Það er sennilega þannig að sum- ar konur sem eru að greinast í dag eru að borga fyrir þessar reykingar,“ segir Tómas og bætir við að hugsan- lega séu konur einnig viðkvæmari fyrir einhverjum af þeim krabba- meinsvaldandi efnum sem er að finna í sígarettum. Senda þarf fólk úr landi Aðspurður segir Tómas að erfitt sé að segja til um hvort kynið leiti frekar eða fyrr til læknis vegna einkenna lungnakrabbameins. „Það eru aðrar jákvæðar fréttir, svo virðist sem lifun sjúklinga sem fara í skurðaðgerð, sem er um þriðjungur sjúklinga, sé heldur að vænkast á Íslandi,“ segir hann og telur ástæðuna hugsanlega vera þá að fólk leiti fyrr til lækna en áður og læknar átti sig fyrr á einkennunum. Enn þarf að senda krabbameins- sjúklinga á hverju ári til Kaupmanna- hafnar í svokallaðan jáeindaskanna (e. PET scanner) en um 100 sjúkling- ar voru sendir þangað í fyrra. Í ár hafa verið sendir helmingi fleiri en á sama tíma í fyrra. Fleiri konur en karlar greinast nú með lungnakrabbamein  Óvenjulegt í alþjóðlegu samhengi  Lífslíkur heldur að vænkast hér á landi Tómas Guðbjartsson „We Are Getting Serious About the Ice- landics!“ segir á vefsíðu eins ræktanda sem hefur ekki undan við að svara fyrir- spurnum um íslensku landnámshænuna. Hjónin á Fayrehale Farm í Massachu- setts stofnuðu Facebook-síðu til að geta miðlað upplýsingum um landnámshæn- urnar því ekki geta þau sinnt ræktuninni, sölunni og upplýsingagjöfinni á sama tíma. Svo virðist sem nokkurs konar æði hafi gripið um sig og eru landnámshænuegg til útungunar seld nokkuð dýrt í samanburði við aðra stofna. Fyrir 6 egg eru greiddir á bilinu 25-35 dollarar en raunar er allur gangur á því hve hátt verðið er, en hjá mörgum ræktendum eru ekki seld færri egg en tuttugu og fimm í einu. 6 egg á 25 dollara SLÆR Í GEGN YTRA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.