Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 1984. Nýja heimilið fékk nafnið Ljósheimar og voru þar rými fyr- ir 26 einstaklinga. Þessi fram- gangur Hafsteins lýsir vel metn- aði hans og eljusemi að koma verkefnum áfram. Hafsteinn var glaðvær og hafði létta lund og átti auðvelt með að hrósa fólki fyrir framgöngu og dugnað. Við hjónin þökkum Hafsteini samfylgdina í gegnum árin og vottum börnum hans, tengda- börnum, barnabörnum og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúð. Einnig vottum við vinkonu Hafsteins, Ingu Pálsdóttur, inni- lega samúð. Hafsteinn er lagður af stað í sitt hinsta ferðalag og við vitum að vel verður tekið á móti honum. Guð blessi minningu Hafsteins Þorvaldssonar. Esther og Sigurður. Ég var 14 ára þegar ég kynnt- ist Hafsteini fyrst, þá sem pabba Aðalbjargar og Vésteins sem ég, á þeim árum, æfði frjálsar íþrótt- ir með, auk þess sem við Aðal- björg erum skólasystur og jafn- öldrur. Ég á góðar minningar frá þessum árum frá Engjaveginum þar sem Hildur tók á móti okkur krökkunum svöngum eftir æfing- ar með góðri kvöldhressingu og notalegheitum. Hafsteinn hvatti okkur til dáða, jákvæður og áhugasamur um allt það sem við vorum að gera. Nú síðustu árin hafa kynni mín af Hafsteini endurnýjast, þó auð- vitað hafi ég fylgst með honum og hans störfum í gegnum tíðina. Kynnin urðu með öðrum hætti þar sem honum og mömmu hafði orðið vel til vina. Það var aldrei leiðinlegt að vera nálægt Haf- steini. Enn var hann jákvæður og hafði áhuga á því sem var að ger- ast í kringum sig. Ræddum við saman um ýmis mál og voru þar íþróttir efst á baugi. Hafsteinn fylgdist vel með á þeim vettvangi. Ég minnist þess, þegar hann, þá kominn yfir áttrætt, fór á körfu- boltaleik í Þorlákshöfn, þar sem léku Þór Þorlákshöfn og Grinda- vík. Eldmóðurinn var enn sem fyrr og ekkert stöðvaði hann í að sýna stuðning sinn í verki. Ung- mennafélagið hér á Selfossi var honum mjög kært og sýndi hann því einstaka ræktarsemi og höfð- ingsskap. Hafsteinn og mamma hafa not- ið þess að ferðast mikið saman síðustu árin, bæði innanlands sem utan. Á síðasta ári fór sjón- inni að hraka og ekki þótti ráð- legt að hann keyrði langar leiðir. Þessu var tekið með æðruleysi og í stað þess að keyra austur á Fá- skrúðsfjörð til að heimsækja vini var bara tekinn strætó. Hann var stoltur af sínu fólki, börnum og afkomendum, og mátti svo sannarlega vera það. Einnig gladdist hann með mömmu vegna hennar fólks sem væri það hans eigið. Nú í vetur hafði heilsunni hrakað, en fram að því fannst manni þau alltaf eins og ungling- ar. Einstaklega virk í félagslífi og alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég veit að ég tala fyrir hönd systkina minna og fjölskyldu að Hafsteinn var innilega velkominn í okkar hóp. Jafnframt er okkur ofarlega í huga þakklæti fyrir hve góður hann var mömmu. Nú er skarð fyrir skildi. Mamma hefur misst góðan vin og börnin hans og fjölskylda frá- bæran pabba, tengdapabba og afa. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Blessuð sé minning Hafsteins Þorvaldssonar. Anna Guðmundsdóttir. Ólíkt Hafsteini þá get ég ekki flutt langa ræðu. Heilsan ræður því, en hugurinn er klár. Hafsteinn var góður maður, hann var hlýr og yfirbragð hans mótandi. Þegar Hafsteinn kom, hvort sem var upp að Geysi eða við önnur tækifæri, þá lyftist og léttist lundin því hann var glað- sinna, hress og kátur maður. Hispurslaus var hann og braut- ryðjandi í huga og verkum. Mér þótti vænt um Hafstein og þakka samfylgd og vinskap allan. Már Sigurðsson, Geysi. Fremstur í foringjaliði í félagsskap aldraðra gekk. Kunni þá snilld í því sniði að sníða og knýta þar hlekk. Sá hlekkur var fljótlega fundinn að flytja þeim öldruðu rétt. Réttur sem raunhæft var bundinn með ráðdeild hjá þessari stétt. (Hj. Þ.) Fallinn er til feðra sinna mikill félagsmálaforingi, Hafsteinn Þorvaldsson. Eitt af fjölmörgum málum, sem hann beitti sér fyrir, var að sameina eldri borgara til félagslegrar samstöðu og hags- bóta í lífi þeirra. Þar vann hann mikið brautryðjandastarf. Árið 1976 ákvað hreppsnefnd Selfoss að koma félagsmálum eldra fólks í skipulagt ferli í sam- vinnu við eldri borgarana. Mikill einhugur var meðal hreppsnefnd- arinnar gagnvart þessu verkefni og fylgdi Hafsteinn málinu ótrauður áfram. Þegar Félag eldri borgara á Selfossi var svo formlega stofnað í sept. 1980 skráði Hafsteinn sig í félagið, og sá eini sem ævifélagi. Þessi ævi- félagi okkar varð meðal þeirra fremstu í félagslífi eldra fólksins á Selfossi allar stundir síðan. Hann tók að sér forystu í söng- starfinu þegar Hörpukórinn var stofnaður 1990 og var formaður kórsins mörg fyrstu árin. Hann var virkur félagi í kórnum og stóð vaktina með sóma og fullri reisn til síðustu stundar. Þá vann hann einnig að þess- um málum á vegum Landssam- bands eldri borgara. Á fleiri svið- um í félagslífi eldri borgara var Hafsteinn frumkvöðull og vak- andi áhugamaður. Þeir félagar fv. formenn UMFÍ, Pálmi heitinn Gíslason og Hafsteinn, settu af stað vekefni til eflingar íþróttum meðal eldri ungmennafélaga. Þar gafst mér tækifæri til að vinna með þeim og kynnast eldmóði þeirra til hagsbóta fyrir eldra fólkið. Þetta er sýnishorn fé- lagslegra afreka í þágu eldri borgara sem eftir Hafstein liggja að leiðarlokum. Hafsteinn kom víða við á mörgum sviðum félagsmála og alls staðar hafði hann einstakt lag á að tendra áhuga meðal áheyr- enda sinna og hrífa þá með til fé- lagslegra verka og átaka. Allir sem kynntust Hafsteini minnast hans með innilegri þökk fyrir hans ómetanlega framlag sem hann veitti eldri borgurum í sam- tökum og félagslífi þeirra. Við söknum hans og minnumst góðs drengs. Innilegar samúðarkveðj- ur eru fluttar til hans nánustu. Hjörtur Þórarinsson. Í nokkrum orðum viljum við þakka vini okkar, Hafsteini Þor- valdssyni, samfylgdina sem hefur verið okkur ómetanleg og sann- arlega sett mark sitt á Héraðs- sambandið Skarphéðin. Oft leið- beindi Hafsteinn okkur og var það gert án allra fordóma og af þeirri hógværð og réttsýni sem var svo sterkur þáttur í skapgerð hans. Hann var ávallt hvetjandi og óþreytandi við að sannfæra okkur um að allir góðir hlutir væru framkvæmanlegir, en það þyrfti að vinna að þeim. Haf- steinn var maður gegnheill og lét hvorki gaspur né glaum samtím- ans stjórna lífi sínu. Hann bjó yfir öryggi og festu sem eru bestu eiginleikar hvers manns. Hann hafði þrautseigju, reglusemi, heiðarleika og vinnu- semi að leiðarljósi. Hafsteinn var í hópi þeirra sem ungmennafélagsandinn hafði blásið eldmóði í brjóst. Hann hreifst af þeirri bjartsýni og glaðværð sem ungmenna- félags- og íþróttahreyfingin bar með sér. Hann hafði alla tíð mik- inn áhuga á framfara- og þjóð- þrifamálum en sá áhugi einskorð- aðist ekki við íþróttir heldur náði til flestra þátta daglegs lífs. Hann vann alla tíð að framförum í sam- félaginu og sparaði þar hvorki tíma né fyrirhöfn. Sagt hefur verið að óbrigð- ulasta einkenni menningarþjóðar sé að þjóðin þoli að heyra hverja skoðun sem er, setta fram og rædda opinberlega. Snilld þess er málið flytur ræður því hvort hún leggur eyrun við. Þannig var það þegar Hafsteinn mætti á fundi og héraðsþing okkar Skarphéðins- manna og flutti magnaðar hvatn- ingarræður sínar, þá hlustuðu allir. Hann var mikill félagsmála- maður og þeim gáfum gæddur að tengja saman íslenska tungu og íslenska menningu. Hafsteinn er einn af merkisberum íslensks máls og lagði sig fram um að vernda arf þjóðarinnar, tungu- málið okkar. Hafsteinn var mikilvægur hlekkur í vinakeðju Skarphéðins- manna. Hann kom með gleði inn í starf okkar og með eldmóði sín- um flutti hann birtu og yl. Hann var skemmtilegur sagnamaður, góður leiðbeinandi og ávallt tilbú- inn að leggja HSK lið. Hafstein einkenndi mikil lífs- gleði, kraftur og hlýtt og glað- vært viðmót. Hann var áræðinn og fylginn sér ef svo bar undir, en ávallt sanngjarn. Hann gerði kröfur til sín og annarra og vissi sem var að enginn getur þrifist í samfélagi við aðra menn án þess að koma fram af heilindum. Þegar við héldum héraðsþing okkar nú fyrir skömmu var skarð fyrir skildi, Hafsteinn átti ekki heimangengt og við fundum að nú hafði orðið breyting á hjá okk- ur í HSK. Það vantaði manninn sem ávallt kvaddi sér hljóðs og sagði okkur á sinn skemmtilega hátt frá gömlum afrekum Skarp- héðinsmanna. Við í HSK eigum eftir að sakna þess að Hafsteinn brýni okkur til góðra verka, það var gott að eiga hann að með hreinskilni sína og óbilandi kraft allt fram á síðasta dag. HSK félagar þakka Hafsteini samfylgdina, góðvild og greiða- semi í áranna rás, munum hann á þingum og íþróttaviðburðum þar sem hann jók okkur gleði á góð- um stundum. Börnum hans, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ástvinum vottum við einlæga hluttekningu. Guðríður Aadnegard, formaður HSK. Kveðja frá Hörpukórnum Hafsteinn Þorvaldsson vinur okkar og söngfélagi er fallinn frá eftir stutta en snarpa sjúkrahús- vist. Ég kynntist honum fljótlega eftir að fjölskylda hans fluttist að Syðri-Gróf, við störfuðum bæði í ungmennafélagi okkar sveitar og hittumst á þeim vettvangi og eitt sinn lékum við saman í leikþætti sem settur var upp. Seinna áttum við samstarf þegar hann var framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands og ég gjaldkeri hjá Sambandi sunnlenskra kvenna en stór hluti af starfi þess sam- bands var stuðningur við sjúkra- húsið. Að lokum hittumst við í síðasta félagsmálaverkefni okkar beggja, sem er kór eldri borgara á Selfossi, Hörpukórinn. Eins og kunnugt er var Haf- steinn mikill félagsmálamaður og gegndi mörgum ábyrgðarstörf- um bæði í heimahögum og á landsvísu en í þessum kveðjuorð- um ætla ég að halda mig við starfið í Hörpukórnum. Kórinn hóf starfsemi árið 1990 og var fyrstu 10 árin deild innan félags eldri borgara. Á þeim ár- um stóðu forystumenn félagsins fyrir því að farin var söng- og skemmtiferð til Ítalíu í samvinnu við Eldeyjarkórinn í Reykja- nesbæ. Af okkar hálfu var Haf- steinn framkvæmdastjóri þeirrar ferðar. Á þessum tíma mótaðist starfið og þá hófst einnig sam- starf fimm kóra eldri borgara, sem enn er við lýði, og var Haf- steinn einn af upphafsmönnum að því og stóð fyrir fyrsta kóra- mótinu. Árið 2000 fékk Hörpu- kórinn sjálfstæða stjórn og var Hafsteinn fyrsti formaður hans og leiddi kórinn í fimm ár. Hann hafði yndi af söng, sér- staklega ættjarðarlögum og því sem sungið var í ungmenna- félagsstarfinu. Þegar við vorum ung var oft sungið við upphaf og endi hvers fundar, oft óskaði hann eftir að lagið „Ég vitja þín æska“ væri sungið og síðan þá minnir þetta lag mig á Hafstein. Þegar hann söng var það ekki með neinni hálfvelgju heldur var sungið af krafti og innlifun. Hafsteinn var sérstaklega vel- viljaður maður í garð samferða- manna sinna, það var eins og hon- um þætti vænt um alla og bætti oft við „vinur minn“ þegar hann minntist á fólk. Hann átti auðvelt með að tala, var mælskur og hrif- næmur og gat haldið ræður fyr- irvaralaust. Hann var glöggur að sjá tækifæri fyrir Hörpukórinn að koma fram og syngja og var sérstaklega vandvirkur í öllum störfum og eftirminnileg er söng- ferð til Akureyrar. Þá ferð skipu- lagði Hafsteinn ásamt Aðal- björgu dóttur sinni, hann ók þá til Akureyrar nokkrum dögum áður til að tímasetja ferðina svo allar áætlanir stæðust. Hann naut þeirrar gæfu að geta ferðast og notið lífsins á efri árum en strax og hann kom heim mætti hann á söngæfingar kórs- ins og sæti hans þar var ekki autt nema þrjár síðustu vikurnar. Hörpukórsfólk kveður nú fyrr- verandi formann sinn og söng- félaga með þökk fyrir samveruna allan þennan tíma og biður hon- um blessunar á öðru tilverusviði, fjölskyldunni sendum við einlæg- ar samúðarkveðjur. F.h. kórsins, Arndís Erlingsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Hafstein Þorvaldsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORSTEINA SIGURÐARDÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavík, áður Njörvasundi 6, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 27. mars. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. apríl kl. 15. . Hafliði Benediktsson, Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, Helga Benediktsdóttir, Jónas R. Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Haukur Hauksson, Erna Benediktsdóttir, Steindór Gunnarsson, Birna Benediktsdóttir, Daníel Guðbrandsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna fráfalls INGIBJARGAR SESSELJU SIGURÐARDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis að Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á „Frúargangi“, deild A3 á Grund, fyrir frábæra umönnun og hlýju í hennar garð. . Hreiðar Ögmundsson, Katrín Gunnarsdóttir, Jón Ögmundsson, Anna Sigríður Indriðadóttir, Birgir Ögmundsson, Guðrún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURVEIG JÓNASDÓTTIR, Álfhóli 3, Húsavík, lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 2. apríl. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 11. apríl klukkan 14. . Sigmundur Óli Eiríksson, Jóhannes Sigmundsson, Anna Ársælsdóttir, Rúnar Hrafn Sigmundsson, Veigar Þór Jóhannesson, Magnea Björt Jóhannesdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, GÍSLA STEINSSONAR, Neðstaleiti 7, sem lést 17. mars. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakots fyrir góða umönnun. . Ólöf Thorlacius. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR RAFNAR HALLDÓRSSON tæknifræðingur Heiðarbæ 16 Reykjavík verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 13. apríl kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. . Kristín Sigurbjarnardóttir, Sigurbjörn Búi Sigurðsson, Helga Ásgeirsdóttir, Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Auður Ólafsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, Ámundi V. Brynjólfss., barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÍMUR JÓSAFATSSON, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík miðvikudaginn 8. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. . G. Úlfhildur Grímsdóttir, Jón Snorrason, Hlynur N. Grímsson, Elísa G. Halldórsdóttir og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og amma, KRISTRÚN INGA GEIRSDÓTTIR, Skálatúni 1, Akureyri, lést fimmtudaginn 2. apríl á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 13.30. . Ómar Svanlaugsson, Herborg Rósa Árnadóttir, Guðrún Petra Árnadóttir, Davíð Kr. Hreiðarsson, Rannveig Inga Ómarsdóttir, Þórir Rafn Hólmgeirsson, Katrín Ósk Ómarsdóttir, Ómar Svan Ómarsson, Harpa Hrönn Önnudóttir, Geir Örn Ingimarsson, Herborg Káradóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.