Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015
Björk Eiðsdóttir tekur
fyrir allt sem varðar konur
á ögrandi, áhugaverðan,
spennandi, fræðandi og
skemmtilegan hátt.
KVENNARÁÐ
við miðlum af reynslu
www.hringbraut.is
skólamenn hjá Matvælastofnun og
Dýralæknafélag Íslands boðað verk-
fall. Verði af öllum þessum verkföllum
munu um 120 félagsmenn BHM bæt-
ast við þá 580 sem nú þegar eru í
ótímabundnu verkfalli.
Óvíst með frekari aðgerðir
„Það var fín stemning og samstaða
á fundinum,“ sagði Páll Halldórsson,
formaður BHM, að fundi loknum.
„Fólk er ákveðið í að fylgja eftir þeim
kröfum sem settar hafa verið fram og
stendur þétt á bak við þær. Fyrir okk-
ur sem í þessu stöndum er ómetanlegt
að fá slík skilaboð.“
Er frekari aðgerða af þessu tagi að
vænta? „Það hefur ekkert slíkt verið
ákveðið í augnablikinu. En það ræðst
allt af því hvað þetta tekur langan
tíma og við verðum að sjá til með það.“
Næsti fundur í deilunni hefur verið
boðaður í dag – hvað farið þið með inn
á fundinn? „Ríkið hefur ekki lagt neitt
bitastætt fram ennþá og við munum
ítreka enn frekar þær kröfur sem við
höfum verið með. Í raun og veru ger-
ist lítið fyrr en það fæst meira inn í
þetta. Það vantar einfaldlega meiri
peninga af hálfu ríkisins.“
Menntun verði metin til launa
Tilboð ríkisins hljóðar upp á allt að
3,5% launahækkun. Spurður hversu
miklu muni á því tilboði og kröfugerð
BHM segist Páll vilja forðast að nefna
tölur eða prósentur í þessu samhengi.
„Þetta er flókið mál. Við erum t.d. að
tala um stofnanir sem hafa verið fjár-
sveltar mjög lengi, við erum að fást við
almenna launaþróun annarra háskóla-
stétta sem hafa verið að semja upp á
síðkastið. Það er hægt að benda á
læknasamningana sem dæmi um það.
Það sem við erum fyrst og fremst að
fara fram á er að menntun verði metin
til launa. Hvað við komumst svo langt
í því í þessari atrennu er erfitt að
segja. Ég á ekkert endilega von á að
hægt verði að leysa þetta í einum
kjarasamningi.“
Kemur skammtímasamningur til
greina? „Það gæti verið tiltekin
lausn.“
Páll segist ekki hafa orðið var við
annað en að almenningur hafi al-
mennt skilning á grunnkröfum BHM.
Öðru máli sé að gegna um ráðamenn.
„Það virðist vera mikill ótti hjá yfir-
völdum um að kröfur okkar ógni verð-
stöðugleikanum. Ég segi hinsvegar: ef
við byggjum ekki hér samfélag sem
nýtir sér menntun til framtíðar, þá er
það ógn við almenn lífskjör í landinu.“
Guðmundur H. Guðmundsson,
varaformaður samninganefndar rík-
isins, segist ekki geta svarað til um
hvort á fundinum á morgun verði
lagðar fram tillögur sem séu nær
kröfugerð BHM en fyrri tilboð rík-
isins sem hafa hljóðað upp á allt að
3,5% hækkun. „Það get ég ekki tjáð
mig um,“ segir Guðmundur. „Þessi
deila er hjá ríkissáttasemjara og þarf
að fá að hafa sinn gang þar. Það verð-
ur að koma í ljós hvað gerist þar. En
ég held að það sé alveg ljóst að þetta
er ekki að leysast í augnablikinu, það
er næsta víst.“
Skoruðu á ríkið að semja
BHM hélt samstöðufund og afhenti ályktun Ekki að leysast í augnablikinu, segir varaformaður
samninganefndar ríkisins Það vantar einfaldlega meiri peninga frá ríkinu, segir formaður BHM
Morgunblaðið/Golli
Hvatning Páll hrópaði hvatningarorð við dyr fjármálaráðuneytisins.
Í gær bættust 17 ljósmæður á Sjúkrahúsinu á Akureyri í
hóp þeirra 135 ljósmæðra á Landspítalanum sem þegar
voru í verkfalli. Hvorugur ljósmæðrahópurinn er þó í
verkfalli alla daga vikunnar, þær á Akureyri eru tvo
daga í viku og á Landspítala er verkfall þrjá daga í viku.
Áslaug Íris Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Ís-
lands, segir fyrirkomulagið hafa verið ákveðið af BHM.
„Eðli starfsemi þessara tveggja spítala, á Akureyri og
Landspítala, er gjörólíkt og verkföllin taka því mið af
því,“ segir Áslaug. Hún segir nokkuð hafa borið á mis-
skilningi varðandi verkfallsvörslu og hvað megi og megi ekki gera. „En ég
legg áherslu á að allir eru tilbúnir til að gera sitt besta á meðan við erum í
þessum aðgerðum. Verkfall er aldrei kjöraðstæður.“
Hún segist ekki hafa orðið vör við annað en að verkfallsaðgerðir ljós-
mæðra mæti skilningi í samfélaginu. „Engum er stefnt í voða og allir fá þá
þjónustu sem þeir þurfa. Auðvitað eru af þessu óþægindi, t.d. fyrir fólk sem
hefur beðið í margar vikur eftir að fara í sónarskoðun og hlakkað mikið til
þess. En ég hef ekki heyrt annað en að fólk hafi almennt skilning á þessu.“
„Verkfall er aldrei kjöraðstæður“
Flóabandalagið, sem samanstendur af Eflingu, Hlíf í
Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur,
er enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Nýr fundur í
deilunni hefur ekki verið boðaður, en Sigurður Bessason,
formaður Eflingar, segist eiga von á að hann verði hald-
inn um miðja næstu viku. Flóabandalagið hefur lagt
áherslu á að semja til eins árs, ekki sé nægilegt traust til
staðar gagnvart ríkisvaldinu að semja til lengri tíma. Við-
ræðum hefur ekki verið vísað til ríkissáttasemjara.
„Við höfum verið að vinna með einstaka samninga inni í
fyrirtækjunum. En við eigum aðalkjarasamninginn alveg ókláraðan,“ segir
Sigurður. Hann segir að í þessum fyrirtækjasamningum, sem eru samhliða
almennum kjarasamningi Flóabandalagsins, felist ýmis atriði sem tengist
viðkomandi vinnustöðum. „Allt sem lýtur að peningahlutanum, þessum beinu
launahækkunum, bíður þar til aðalkjarasamningnum verður lokið.“
Flóabandalagið og SA deila enn
„Við vorum að ganga frá kjörgögnum og allt er að verða
tilbúið fyrir atkvæðagreiðsluna okkar sem byrjar klukk-
an átta á mánudaginn,“ sagði Björn Snæbjörnsson, for-
maður Starfsgreinasambandsins, SGS, í samtali við
Morgunblaðið í gær. SGS tilkynnti í gær víðtækar verk-
fallsaðgerðir sem bresta munu á í lok apríl og í maí, ná-
ist samningar ekki fyrir þann tíma. Um er að ræða alls-
herjarverkfall sem ná myndi til tíu þúsund félagsmanna
SGS. Ástæðan er að mati SGS m.a. tilraunir SA til að
tefja fyrir atkvæðagreiðslum, en Félagsdómur dæmdi
fyrri atkvæðagreiðslu SGS um verkfallsboðun ólögmæta. Þessi síðari at-
kvæðagreiðsla mun standa í viku, til mánudagsins 20. apríl.
Meginkrafa SGS hefur verið að lágmarkslaun hækki í 300 þúsund krón-
ur innan þriggja ára. Næsti fundur í kjaradeilu félagsins og Samtaka at-
vinnulífsins hefur verið boðaður klukkan 11 í dag og segist Björn vera hóf-
lega bjartsýnn á að hann beri árangur.
Hinn 30. apríl verður fyrsta allsherjar vinnustöðvun aðildarfélaga SGS
frá kl. 12.00 til miðnættis. Næst verður vinnustöðvun dagana 6-7. maí og
19-20. maí og hinn 26. maí hefst svo ótímabundin vinnustöðvun.
SGS boðar víðtækar aðgerðir
Morgunblaðið/Golli
Samstaða Félagar í BHM báru kröfuspjöld þar sem lögð var áhersla á að menntun yrði metin til launa. Eftir hádegið í gær voru rúmlega 3.000 BHM-félagar ekki við vinnu,
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Rúmlega 2.300 félagsmenn BHM
lögðu niður störf á hádegi í gær og
kom hluti þeirra saman á samstöðu-
fundi á Lækjartorgi. Þaðan var geng-
ið fylktu liði að efnahags- og fjármála-
ráðuneytinu þar sem afhent var
áskorun til ráðherra um að stjórnvöld
forgangsröðuðu í þágu þekkingar og
að menntun yrði metin til launa.
„Menntun kostar, laun þurfa að fela í
sér hvata til menntunar. Ísland verð-
ur að vera samkeppnisfært um há-
skólamenntað starfsfólk,“ er meðal
þess sem kemur fram í áskoruninni
þar sem skorað er á stjórnvöld að
ganga til samninga hið fyrsta.
Eftir hádegið í gær voru því rúm-
lega 3.000 BHM-félagar ekki við
vinnu, því 560 félagsmenn í fimm fé-
lögum BHM hafa verið í verkfalli frá
7. apríl og í gær hófst ótímabundið
verkfall 17 ljósmæðra á Sjúkrahúsinu
á Akureyri. Vinnustöðvunin í gær
hafði áhrif víða í samfélaginu, m.a. á
ýmsa stoð- og félagsþjónustu.
Félag háskólamenntaðra starfs-
manna Stjórnarráðsins hefur boðað
tímabundið verkfall frá 20. apríl,
semjist ekki fyrir þann tíma og sama
dag hafa náttúrufræðingar og há-