Morgunblaðið - 10.04.2015, Side 10

Morgunblaðið - 10.04.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 sem gleður Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur, fjölklippur, sandblásturstæki og margt fleira. Sýningarvélar á staðnum og rekstrarvörur að auki - fyrir fagfólk í léttum iðnaði og lítil verkstæði IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Orðaleikarnir. Fallegt orð ogóneitanlega frumlegra enlestrarhátíð, lestrar-skemmtun eða eitthvað álíka yfir – hvað skal segja – lestrar- hátíð kannski? Meistaranemarnir fimm í verkefnastjórnun í Háskól- anum í Reykjavík, sem standa fyrir Orðaleikunum í húsakynnum skólans á morgun, eru að minnsta kosti hæst- ánægðir með nafnið. Einn þeirra, Kolbrún S. Ásgeirsdóttir, segir hópn- um engin launung á að Orðaleikarnir dragi að nafninu til dám af Hungur- leikunum, þriggja binda doðröntum, sem árið 2008 glæddu lestraráhuga ungmenna víða um heim. Líkt og er markmið Orðaleikanna. Hérlendis vitaskuld. Á jákvæðu nótunum „Hluti af námi okkar á fyrra ári í verkefnastjórnun, MPM Master of Project Management, er að skipu- leggja verkefni í þágu samfélagsins. Þrjátíu nemendum var skipt í fimm hópa sem máttu velja sér viðfangs- efni. Ýmsar hugmyndir voru viðraðar í hópnum mínum, til dæmis um mat- arsóun, en á endanum völdum við að vekja áhuga 8 til 11 ára barna á lestri. Okkur er öllum hugleikin umræðan undanfarin misseri um þverrandi lestraráhuga og lestrarfærni barna. Hugmyndin gengur út á að nálgast efnið með jákvæðum hætti en ekki sem vandamál. Við viljum sýna börn- um fram á að lestur sé skemmtun og að það sé skemmtilegt að læra að lesa,“ segir Kolbrún. Fimmmenningarnir byrjuðu að skipuleggja Orðaleikanna upp úr ára- Orðaleikarnir í þágu samfélagsins Andrés Önd og íslenskur þýðandi hans, Ævar vísindamaður, Ólafur handknatt- leikskappi og ýmis fágæti og furðuverk eru meðal þátttakenda á Orðaleikunum. Fimm meistaranemar í verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík standa fyrir viðburðinum sem ætlað er að vekja áhuga 8-11 ára krakka á lestri. Morgunblaðið/Golli Gaman saman Afrakstur skipulagsvinnunnar eru fjölbreyttar smiðjur og skemmtiatriði sem standa gestum Orðaleikanna til boða. Morgunblaðið/Ómar Smáforrit Ólafur Stefánsson, fyrrverandi atvinnumaður í handknattleik, ætlar að segja krökkunum frá smáforriti til að auka skilning á námsbókum. List án landamæra er meðal stærstu utangarðslistahátíða í Evrópu og er haldin árlega hér á Íslandi. Hátíðin fagnar fjölbreytileikanum og stuðlar að jafnrétti í menningarlífinu. Markmið hátíðarinnar er að brjóta niður múra milli samfélagshópa og gerir það með- al annars með því að stuðla að sam- starfi listamanna með ólíkan bak- grunn. Ákveðið var að efna til þessarar hátíðar á Evrópuári fatlaðra árið 2003 og hefur hún verið haldin árlega síðan. List án landamæra leggur áherslu á já- kvæða birtingarmynd fólks með fötlun sem fullgildra þátttakenda í samfélag- inu. Hátíðin verður formlega sett í dag kl. 17.30 í Ráðhúsi Reykjavíkur og sam- hliða setningu hátíðarinnar verður samsýningin Meistarar opnuð. Þeir listamenn sem sýna verk sín þar eru Atli Viðar Engilbertsson, Gígja Thor- oddsen, Hrefna Daníelsdóttir, Ásgeir Valur Sigurðsson og Karl Guðmunds- son, en Karl er listamaður hátíðarinnar í ár. Karl hefur fengið mikla athygli fyrir verk sín sem hann meðal annars gerir með því að keyra hjólastól yfir striga. Að gera tilraunir með form, liti og ný- stárlegan efnivið hefur alla tíð ein- kennt myndsköpun Kalla. Undanfarin ár hafa þessar tilraunir leitt af sér inn- setningar þar sem áhorfendur verða gjarnan þátttakendur í gegnum sam- skipti við listaverkið. Mikið verður um dýrðir á opnuninni í dag, kynnar verða Maggi mix og Salka Valsdóttir Reykjavíkurdóttir. Valur geislaskáld fer með ljóð og Reykjavík- urdætur stíga á pall ásamt góðu fólki. Auk þess verður sýnd stuttmynd um samstarf Íslenska dansflokksins og Klettaskóla, en þau vinna saman að dansverkinu Stjörnustríði 2, sem sýnt verður í heild sinni hinn 21. apríl við opnun Barnamenningarhátíðar í Hörpu. Vefsíðan www.listin.is Snillingur Hér er Kalli að búa til verkin sín, keyrir á hjólastólnum yfir striga. Kalli er listamaðurinn í ár Kalli Frumlegur listamaður. Í tilefni af 100 ára afmæli kosninga- réttar kvenna árið 2015 tekur Hér- aðsskjalasafnið á Akureyri nú þátt í þjóðarátaki um söfnun á skjölum kvenna. Svo virðist sem konum hafi ekki þótt jafn merkilegt og körlum hvað þær voru að fást við og skrifa um og bréf frá konum enduðu mjög gjarnan á fyrirmælum um að viðtak- andi ætti að brenna þau að lestri loknum. Skjöl kvenna hafa því síður skilað sér inn á söfnin en skjöl karla. Því er fólk hvatt til að stuðla að varð- veislu þeirra með því að koma þeim í örugga geymslu. Skjöl eru t.d. bréf, dagbækur, póstkort, teikningar, kvæði, smásögur, ljósmyndir, ræður, erindi og ýmis fróðleikur, eldri sem yngri. Héraðsskjalasafnið á Akureyri er aðili að söfnunarátakinu og tekur við skjölum bæði karla og kvenna. Hádegisfyrirlestrar verður í dag í Héraðsskjalasafninu kl. 12-13, þar sem Svanhildar Bogadóttur mun fjalla um mikilvægi þess að varðveita einkaskjöl kvenna til jafns við karla. Einnig verða til sýnis nokkur skjöl kvenna sem varðveitt eru á safninu og munu skjalaverðir í stuttu máli gera þeim skil og segja frá því hvað safnið hefur að geyma. Hádegisfyrirlestur og þjóðarátak í að safna skjölum kvenna „Brenndu þetta snifsi að lestri loknum,“ sögðu konur gjarnan Fel ég þig svo Guði á vald Hér gefur að líta brot úr Ameríkubréfi frá Önnu So- fíu Davíðsdóttur, þar sem hún talar um bréf sitt sem ljótt og ómerkilegt klór. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.