Morgunblaðið - 10.04.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ellefu íslensk fyrirtæki á sviði jarð-
varma sækja alheimsráðstefnu
greinarinnar, World Geothermal
Congress, í Melbourne í Ástralíu
dagana 19.-24. apríl næstkomandi.
Búist er við að um 100 manns frá
Íslandi sæki ráðstefnuna og sýn-
ingu sem haldin verður samhliða,
að sögn Berglindar Steindórsdótt-
ur, sýningarstjóra hjá Íslandsstofu.
Ráðstefnan er sú stærsta á sviði
jarðvarma í heiminum og er haldin
á fimm ára fresti. Hún er m.a. sótt
af jarðhitasérfræðingum, vísinda-
mönnum, tæknifræðingum og for-
ystumönnum á sviði orkumála víða
að úr heiminum. Íslendingar taka
mjög virkan þátt í sjálfri ráðstefn-
unni og halda yfir 80 fyrirlestra og
erindi um tækni- og vísindarann-
sóknir í jarðhita.
Ráðherra tekur við keflinu
Reiknað er með að um 3.000
manns sæki þingið í Melbourne og
tekur hún til allra þátta greinarinn-
ar. Síðasta ráðstefna var haldin á
Balí á Indónesíu, en þar áður í
Tyrklandi og Japan.
Á síðasta ári var tilkynnt að
næsta heimsráðstefna yrði haldin á
Íslandi í fyrsta skipti og tekur
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað-
arráðherra formlega við keflinu í
Melbourne. Það var íslenski jarð-
varmaklasinn, samtök stofnana og
fyrirtækja í greininni, sem form-
lega stóð að umsókninni.
Berglind segist fastlega gera ráð
fyrir að svipaður fjöldi eða jafnvel
enn fleiri sæki Ísland heim af þessu
tilefni vorið 2020. „Ísland er vel
þekkt í þessari grein og nýtur virð-
ingar, auk þess sem Ísland er vin-
sælt ferðamannaland um þessar
mundir þannig að ég hef trú á að
fjöldinn verði ekki minni á ráðstefn-
unni hér heldur en í Melbourne,“
segir Berglind.
Sameiginlegur þjóðarbás
Fyrirtækin sem taka þátt í ráð-
stefnunni í Melbourne eru Efla,
Encora, Iceland Geothermal, Ís-
lenski orkuháskólinn, Ísor, Jarðbor-
anir, Landsvirkjun, Mannvit, Orku-
stofnun, Verkís og ThinkGeoEn-
ergy.
Samhliða ráðstefnunni er haldin
sýning þar sem fyrirtækin munu
kynna þá þjónustu og vörur sem
þau hafa upp á að bjóða í greininni
á sameiginlegum íslenskum þjóð-
arbás, sem Íslandsstofa heldur utan
um.
Um 100 manns sækja
heimsþing jarðvarmans
Morgunblaðið/RAX
Hellisheiðarvirkjun Íslendingar flytja um 80 erindi á ráðstefnu sérfræðinga um jarðvarma á ráðstefnu í Melbourne.
Ellefu íslensk fyrirtæki eiga fulltrúa á ráðstefnu í Melbourne í Ástralíu Næsta
heimsráðstefna haldin hér eftir fimm ár Búist við um eða yfir þrjú þúsund gestum
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um
breytingu á efnalögum, sem m.a.
tekur til gufugleypibúnaðar á bens-
ínstöðvum. Tekur frumvarpið á öðru
þeirra dómsmála sem Eftirlitsstofn-
un EFTA (ESA) hyggst höfða gegn
Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum
sökum þess að stjórnvöld hafa ekki
innleitt reglur Evrópska efnahags-
svæðisins á réttum tíma.
Fram kemur í frumvarpinu að því
er ætlað að innleiða tilskipun Evr-
ópuþingsins og ráðsins frá árinu
2009 þar sem gerð er krafa um gufu-
gleypibúnað á bensínstöðvum. Hlut-
verk gufugleypibúnaðar er að koma í
veg fyrir að losun á rokgjörnum líf-
rænum efnum frá íblönduðu elds-
neyti hafi skaðleg áhrif á heilsu
fólks. Í tilskipuninni er mælt fyrir
um að slíka gufugleypa skuli setja
upp á nýjum bensínstöðvum og bens-
ínstöðvum sem undirgangast meiri
háttar endurnýjun þar sem árleg
bensínsala er meiri en 500 þúsund
lítrar, eða í þeim tilvikum þegar
bensínstöð er staðsett undir íbúðar-
húsnæði eða vinnusvæði en í slíkum
tilvikum er viðmiðið meira en 100
þúsund lítrar á ári. Þá skal setja upp
gufugleypa á öllum bensínstöðvum
þar sem árleg bensínsala nemur
meira en 3 milljónum lítra á ári.
Í mati á áhrifum í frumvarpinu
segir að skylda uppsetningar gufu-
gleypa verða frekar takmörkuð hér-
lendis þar sem árleg sala bensíns á
stórum hluta bensínstöðva hérlendis
nær ekki 500 þúsund lítrum á ári.
Hafa þegar sett upp búnað
Fjórar bensínstöðvar selja meira
en 3 milljónir lítra af bensíni á ári og
þær hafa þegar sett upp nauðsyn-
legan búnað eða eru rétt í þann
mund að ljúka uppsetningu. Á 103
bensínstöðvum verður einungis skylt
að setja upp gufugleypa ef þær und-
irgangast meiri háttar endurnýjun
eða nýjar stöðvar verða byggðar. Þá
er ein bensínstöð á Íslandi undir
íbúðarhúsnæði og er talið ólíklegt að
fleiri slíkar stöðvar verði reistar.
vidar@mbl.is
Frumvarp þegar
fyrir Alþingi
Tekur á öðru dómsmáli ESA
Morgunblaðið/Ásdís
Bensín Frumvarp liggur fyrir Al-
þingi um innleiðingu tilskipunar.
Yfir 30 íslensk fyrirtæki kynna
vöru sína og þjónustu á sjávar-
útvegssýningunni í Brussel 21.-23.
apríl. Talsverð umsvif tengjast
sýningunni af hálfu sýnenda, en
ekki síður má reikna með að fjöl-
margir áhrifamenn í íslenskum
sjávarútvegi sæki Brussel heim
þessa daga.
Flest verða íslensku fyrirtækin
undir hatti íslenska þjóðarbássins
sem Íslandsstofa skipuleggur.
Sýningin í Brussel er tvískipt og
verður þetta í 23. sinn sem ís-
lenskir þjóðarbásar eru skipulagð-
ir í Brussel. Nokkur stærri fyrir-
tækjanna og þau sem telja má
alþjóðleg verða þó með eigin bása
á sýningunni, sem er sú stærsta á
sviði sjávarútvegs í heiminum. Fyr-
ir löngu er uppselt í sýningarpláss
í Brussel.
Tæplega 20 íslensk fyrirtæki
tóku þátt í sjávarútvegssýningunni
í Boston í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði.
Yfir 30 íslensk fyrirtæki
STÆRSTA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN HALDIN Í BRUSSEL
Sex íslensk skip eru nú í færeyskri
lögsögu og bíða þess að kolmunninn
gefi sig suður af Færeyjum og veður
lagist. Skipin héldu til hafnar í gær og
þess er að vart vænta að gott veiði-
veður verði fyrr en á sunnudag. „Það
er ekkert að frétta,“ sagði skipstjóri
sem rætt var við í gær.
Fram eftir mars veiddist vel af kol-
munna á alþjóðlegu hafsvæði vestur
af Írlandi, en þá voru íslensku skipin
á fullum krafti á loðnuvertíð. Þar
voru m.a. rússnesk og norsk skip, en
nú hefur kolmunninn fært sig norðar
í ætisgöngu sinni og veiði hefur síð-
ustu daga verið í lögsögu ESB. Enn
hafa þó litlar fregnir borist af kol-
munna í færeyskri lögsögu, að því
undanskildu að Rússar hafa veitt
smáan kolmunna þar síðustu daga.
Búið að veiða 20 þúsund tonn
Aflamark íslenskra skipa í kol-
munna í ár er rúmlega 192 þúsund
tonn og er búið að veiða um 20 þús-
und tonn. Þar af hafa Hoffell SU 80
og Jón Kjartansson SU111 komið
með um 4.600 tonn að landi hvort
skip. Auk þessara tveggja skipa eru
Beitir NK, Börkur NK, Vilhelm
Þorsteinsson EA og Aðalsteinn Jóns-
son SU byrjuð á kolmunnaveiðum.
Fleiri eru í startholunum, t.d. Hákon
ÞH, Birtingur NK og Grandaskipin
þrjú; Faxi, Lundey og Ingunn. Að há-
marki mega tólf íslensk veiðiskip
stunda veiðar á kolmunna samtímis
innan færeyskrar lögsögu.
Fram kemur á heimasíðu Síldar-
vinnslunnar að rúmlega 4.000 tonnum
af kolmunna var landað í Neskaup-
stað fyrir páska.
Efast um að kvótinn náist
Samkomulag náðist ekki meðal
strandþjóða um skiptingu kolmunna-
kvóta ársins og juku Norðmenn kvóta
sína verulega frá síðasta ári. Í Fisk-
aren komu nýlega fram efasemdir um
að nokkrar norsku útgerðanna næðu
kvótum sínum í ár þrátt fyrir að vel
hefði veiðst undanfarið. aij@mbl.is
Bíða afla-
frétta og
veðurs
Enn lítið af kol-
munna við Færeyjar