Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Áður en þú setur afrek einhvers ann- ars á stall skaltu hugleiða þín eigin. Gefðu þér góðan tíma og rasaðu ekki um ráð fram. 20. apríl - 20. maí  Naut Foreldrar gætu verið strangir við börn í dag. Framkoma þín fer ekki framhjá augum yfirmanns þíns. Farðu í göngutúr í nátt- úrunni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt fortíðin sé fyrir bí er það nú oft svo að þangað má sækja margvíslegan lærdóm fyrir framtíðina. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að læra að láta hlutina vera þér til ánægju en ekki byrði. Geymdu þína peninga til betri tíma og passaðu bara að enginn annar komist með puttana í þá. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur látið aðra ganga fyrir og nú er kominn tími til þess að þú sinnir sjálfum þér. Gættu þess bara að tala ekki of mikið og sýndu öðrum tillitssemi og skilning. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þegar gera þarf áætlanir fram í tím- ann er nauðsynlegt að huga að þörfum heild- arinnar. Sýndu kjark og leyfðu hæfileikum þínum að blómstra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú munt sjá að samvinna skilar betri árangri en að hver sé í sínu horni. Viðhaltu kraftinum með því að vera dálítið kvik, hvort sem þú ert í stuði til þess eða ekki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þig langar að kaupa eitthvað í dag vegna þess að þér finnst að þú verðir einfaldlega að eignast það. Heilsa þín gengur fyrir öllu öðru. Vertu óragur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú kemur öllum á óvart með lausn á gömlu vandamáli. Láttu í þér heyra svo hægt sé að koma þessari hugmynd á framfæri. 22. des. - 19. janúar Steingeit Dagurinn í dag hentar ekki vel til að standa á þínu og ræða við foreldra þína eða yfirboðara um það sem skiptir þig máli. Breyttu nú um og skrifaðu hjá þér það sem þér dettur í hug. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þrátt fyrir að þú hafir miklu að miðla vinnurðu best í einrúmi. Fundir, ekki síst viðtöl, ganga vel og alls ekki eins og þú hafðir áætlað. Meira að segja kjaftasögurnar eru áhugaverðar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það hefur ekkert upp á sig að vera stöðugt að harma það sem menn ekki hafa. Leggðu hausinn í bleyti, því lausnin er ekki eins langt undan og virðist við fyrstu sýn. Bjarki Karlsson yrkir á Boðnar-miði: Hann Óli var fantur og fóli og fláráður glæpamannsdrjóli. Það sannaði meilið, – þeir sett’ann í djeilið – (en það var víst allt annar Óli). Þessi syrpa vorljóða byrjaði á Leir á mánudag með því að Sigrún Haraldsdóttir orti: Vorljóð yrkja vil ég pen, vakta strá í móa, njóta lífsins áður en aftur fer að snjóa. Næsta morgun orti Hjálmar Jónsson „í veikleika augnabliks“: Hríðin af krafti hefur nú hurðirnar mínar barið. Veikist og dofnar von og trú vorið er komið – og farið. Og næsta morgun orti hann og skýrir vísan sig sjálf: Ekki sé ég enn til sólar eftir hrun. Núna liggja allir Ólar undir grun. Höskuldur Búi orti á Leirnum undir hádegi þennan miðvikudag: Enn þó kæli Kári sker hvergi um það skeyti, því ég veit að víst nú er vor á næsta leiti. Ármann Þorgrímsson sagði að sig minnti að það kæmi vor einu sinni á ári: Gloppur þó að séu í mínu minni og margt að hjúpast gleymsku því er ver, vorið kemur alltaf einu sinni á ári, þegar sólin hækka fer. Sigurlín Hermannsdóttir bætti við: Fallvaltleiki finnst hér stór og fátt er eins og spáðum. Vorið kom og vorið fór en vorið kemur bráðum. Davíð Hjálmar Haraldsson var á jákvæðu nótunum, sagði „hlýtt er hér innan við gluggann í gróður- húsinu, flugur suða og loks er þrösturinn kominn og farinn að syngja“. Í sólarylnum sit ég hér sæll og veifa tánum, flugur eru að fjölga sér og fuglar garga í trjánum. Um svipað leyti heilsaði Sig- mundur Benediktsson með ávarps- orðunum Fögnum vori: Gleðiborið geislamor gyllir skor og flóa. Léttum sporum lifum vor látum þorið gróa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vorvísur eftir páska Í klípu „HÆTTU ÞESSUM DAGDRAUMUM OG FARÐU AFTUR AÐ VINNA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VEIT AÐ ÞETTA BER SNÖGGT AÐ, EN ÉG VIL SKILNAÐ!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að lesa barnið þitt í svefn. TÍMI TIL AÐ FARA Á FÆTUR! OG? „TÍMI TIL AÐ FARA Á FÆTUR“... ÞETTA FER ILLA Í MIG! EINS OG ÉG ÞURFI AÐ FARA Í VINNUNA! ÉG ER KÖTTUR! AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ VILJA ÞAÐ... PÖNNUKÖKUR ZÚMM SEGÐU „AH“... ÉG VEIT ÉG SAGÐI AÐ HVÍTLAUKUR VÆRI GÓÐUR FYRIR HEILSUNA... HINS VEGAR... Undanfarna daga hafa KristínIngólfsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Katrín Jakobsdóttir og Jón Gnarr eða Jón Gunnar Krist- insson sagt að þrátt fyrir áskoranir hafi þau ýmist ekki áhuga á að taka við embætti forseta Íslands eða sjái sig ekki í þeirri stöðu. x x x Víkverja finnst ekki tímabært aðvelta sér upp úr hugsanlegum forsetaframbjóðendum enda langt í kosningar. Væntanlegir forseta- frambjóðendur og aðrir sem láta sig dreyma um embættið eru á öðru máli, kanna jarðveginn úti um allt land og heyra í stuðningsmönnum, eins og það heitir á forsetaframbjóð- endamáli, spá og spekúlera, og Vík- verja dettur ekki í hug að almanna- tenglar hafi eitthvað með það að gera. x x x Fjöldi Íslendinga fer í nám erlend-is á hverju ári og sjaldnast er þess getið. Þegar þrír nefndir líkleg- ir forsetaframbjóðendur, Gísli Mar- teinn Baldursson, Þóra Arnórs- dóttir og Jón Gnarr, héldu til Vesturheims á liðnu hausti til þess væntanlega að læra til forseta fór það ekki framhjá nokkrum manni, enda sáu námsmennirnir til þess með viðtölum hér og þar. x x x Víkverji tekur eftir að þremenn-ingarnir virðast vera meira í fjölmiðlum nú en áður, væntanlega með kynningu í huga. Títtnefndur Jón hefur nú tekið af skarið og sagt að hann ætli ekki að verða forseti að svo stöddu og þar sem maðurinn er þekktur fyrir að standa við orð sín er ljóst að hann ætlar ekki að vera forseti að svo stöddu, en hafa ber í huga að langt er í næstu kosningar. Ekkert hefur heyrst frá hinum námsmönnunum um málið sem kemur kannski ekki á óvart þar sem þeir eru önnum kafnir í sjónvarpinu. Þar kemst Gísli Marteinn samt ekki með tærnar þar sem Þóra er með hælana, því hún hefur látið til sín taka á ólíkustu sviðum eins og í handbolta og spurningakeppni. Og svo er hún með reynslu sem forsetaframbjóðandi. víkverji@mbl.is Víkverji Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla hann í lofsöng. (Sálmarnir 69:31) BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 AVIGNON - 203X258 CM KR. 316.200 EINNIG FÁANLEGUR SEM HORNSÓFI 258X237 CM FLINGA 160 CM KR. 16.900 FLINGA 80 CM KR. 9.900 YUMI SÓFABORĐ KR. 55.300BORĐ 2 SAMAN KR. 36.400 SÓFI - FRÁBÆRT ÚRVAL AF ÁKLÆĐUM 3JA SÆTA FRÁ KR. 184.900 SMILE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.