Morgunblaðið - 14.04.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
rýnd hjón, einlæg með hjartað á
réttum stað og faðminn opinn
vinum og fjölskyldu. Alltaf var
Kristrún svo stolt af „gamla“ eins
og hún kallaði gjarnan Ómar
sinn, börnum þeirra og barna-
börnum. Hún var svo þakklát
þegar allt gekk vel hjá sínu fólki
og studdi þau af heilum hug þeg-
ar á þurfti að halda, þannig var
Kristrún. Þeirra missir er mikill
en hún lifir í þeim öllum á sinn
fallega hátt.
Ég mun sakna þess að geta
leitað til þín elsku Kristrún mín,
sakna þess að spjalla við þig um
lífið og tilveruna og hlusta á þig
segja sögur með þínum einstaka
húmor, sakna þess að fara á sýn-
ingu án þín. Takk fyrir allt elsku-
leg.
Elsku Ómar og fjölskylda, við
Sölvi sendum ykkur innilegar
samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur
styrk á erfiðum tímum. Minning-
in um yndislegu Kristrúnu okkar
lifir.
Ásdís Erla Guðjónsdóttir.
Fyrir þrettán árum renndi bíll
í hlaðið á Löngumýri og smávax-
in, glaðleg kona steig út, kynnti
sig og bar upp erindið. Hana
langaði til að standa fyrir helg-
arnámskeiði í bútasaumi og hvort
hægt væri að fá aðstöðu hér til
þess. Þarna hófust kynni okkar
Kristrúnar og samstarf sem síð-
an átti eftir að vaxa og dafna með
einstökum hætti. Á skömmum
tíma fjölgaði bútasaumshelgun-
um í fimm á hverju hausti og í
kjölfarið fylgdu prjónahelgar á
vorin. Vinkvennahópar, sauma-
klúbbar af öllu landinu streymdu
norður í hvaða veðri sem var til
að sníða, sauma og prjóna, njóta
samvista og húsmæðraorlofs.
Búðin var nánast flutt hingað,
strangar og stykkjavörur sem
breyttust á einni helgi í ólýsanleg
listaverk. Húsið fylltist af sau-
manið og kvennaklið þar sem
Kristrún var miðpunkturinn í
öllu saman, dyggilega studd af
vinkonum sínum og hjálparhell-
um þeim Sísu frá Blönduósi,
Nancý, Habbý og Auði úr Quilt-
búðinni að Ómari manni hennar
ógleymdum.
Gleðin og krafturinn sem
streymdi frá Kristrúnu ásamt
lipurðinni í mannlegum sam-
skiptum skóp þessar vinsældir og
vináttubönd sem hér voru hnýtt.
Við starfsfólkið á Löngumýri
hlökkuðum til haustsins þegar
fjörið í kringum Kristrúnu byrj-
aði og náði hápunkti á kvöldvök-
unum á laugardagskvöldum þeg-
ar afrakstur hannyrðanna var
sýndur og leynigestir stigu á pall
með frumsamið efni, gjarnan
tengt Kristrúnu og afrekum
hennar.
Andlátsfregn Kristrúnar var
því svo óraunveruleg og óskiljan-
leg okkur sem öllum öðrum. Við
sem kvöddum hana fyrir nokkr-
um dögum brosandi og glaða eftir
einhverja skemmtilegustu
helgina frá upphafi. Heilsan að
batna og spennandi tímar fram-
undan. Á örskotsstundu renna
hjá minningabrot. Hlátrasköll,
tilsvör og tilfinningar sem við
styðjum okkur við fram á veginn.
Það er ljóst að Strúna verður
nefnd á nafn hér á Löngumýri
löngu eftir að hún kveður jarð-
vistina og þá taka sig upp bros
sem strjúka burtu sorgarglýjuna
sem nú grúfir yfir.
Fjölskyldu, ættingjum og vin-
um sendum við okkar einlægustu
samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Jóns Halls og
starfsfólks Löngumýrar,
Gunnar Rögnvaldsson.
Stundum finnst manni gangur
lífsins ósanngjarn. Eins og núna
þegar Kristrún Inga, kona á
besta aldri, er óvænt og skyndi-
lega hrifin burt af sjónarsviðinu.
En um þetta fáum við víst litlu
sem engu ráðið.
Langt er um liðið síðan ég leit
Kristrúnu fyrst augum. Það var
þegar þau voru að draga sig sam-
an hún og Ómar systursonur
minn. Hún vakti strax eftirtekt
mína, dökk á brún og brá, snör í
hreyfingum. Listræn taug var í
henni, einkum lék handavinna í
höndum hennar og rak hún um
langa hríð verslun með slíkar
vörur, fyrst einkum bútasaum en
síðar einnig með hvers kyns
hannyrðavörur. Hélt hún fjöl-
mörg námskeið því tengd víða um
land, við miklar vinsældir.
Kristrún var fljót að ákveða og
drífandi til verka, má vera að hún
hafi á stundum farið nokkuð
geyst. Ekki var lífshlaup hennar
endalaus sælubraut, stundum gaf
á bátinn hjá henni en alltaf kom
hún með fullri reisn út úr slíkum
boðaföllum.
Hún var ræðin kona og
skemmtileg. Ánægjulegt var að
sækja þau heim Ómar og Krist-
rúnu en ekki var síðra að fá þau
hjón í heimsókn. Á seinni árum
fjölgaði heldur heimsóknum
þeirra til okkar og voru þau ætíð
aufúsugestir sem lífguðu upp á
tilveruna.
Auk ferðalaga sem tengd voru
starfi Kristrúnar jókst áhugi
hjónanna á seinni árum á al-
mennum ferðalögum, gönguferð-
um sem öðrum, jafnt innan lands
sem til útlanda. Höfðu þau raun-
ar ákveðið og skipulagt nokkrar
ferðir sem fara átti á næstu mán-
uðum. Bið verður á því að þær
verði farnar. Eftirminnileg er
ferð sem við Guðbjörg urðum að-
njótandi að fara með þeim hjón-
um til Boston síðastliðið haust.
Kom þá vel í ljós, sem raunar var
vitað, að Kristrún átti ákaflega
auðvelt með að bjarga sér á er-
lendri grund, þó að tungumála-
kunnátta hennar væri ekki að
lærðra manna hætti.
Mikill harmur er kveðinn að
nánustu aðstandendum Krist-
rúnar, mestur að Ómari, sem nú
sér á eftir eiginkonu sinni eftir
áratuga hjónaband. Er þá gott til
þess að hugsa að bak við hann
stendur sterkur stofn náinna ætt-
menna hans, sem verður honum
stoð og stytta eftir hans mikla
missi. Góð og gegn kona er
kvödd. Blessuð sé minning Krist-
rúnar Ingu.
Eiríkur Þormóðsson,
Guðbjörg Sigfúsdóttir.
Elsku, kæra vinkona.
Við sitjum hér fjórar saman í
Quiltbúðinni sem þú byggðir upp
af miklum dugnaði og eljusemi og
langar að minnast þín með örfá-
um orðum. Við erum harmi
slegnar að þú skulir vera farin.
Okkur langar að reyna að halda
nafni þínu á lofti og halda áfram
með það frábæra starf sem þú
stóðst fyrir. Þú varst búin að
áorka svo miklu og gerðir svo
margt fyrir konur alls staðar á
landinu. Húsmæðraorlof á
Löngumýri í Skagafirði þar sem
konur komu saman og ýmist
saumuðu, prjónuðu eða hekluðu.
Einnig ferðir þínar um land allt
til að hitta og þjónusta hópinn.
Við eigum svo góðar minningar
með þér í sumarbústöðum, utan-
landsferðum og slúttkvöldunum
þar sem við sungum og dönsuð-
um. Stundirnar eru óteljandi en
minningarnar um þær eru
ógleymanlegar. Margar konur
minnast þín með þessu textabroti
sem þau söngst svo oft þegar þú
varst á Löngumýri og labbaðir á
milli borða.
„Tíminn líður, klukkan tifar,
hjartað slær.“
Þó hjarta þitt slái ekki lengur
þá lifir þú í hjörtum okkar.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún)
Elsku Ómar og fjölskylda,
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Auður, Hrafnhildur, Nancy
og Sigríður Hrönn.
Lífið gefur manni
ýmsar gjafir. Sigga
Ebba var ein af mín-
um. Ég kveð hana í
dag fullur þakklætis fyrir glað-
værðina og góðvildina sem hún
sýndi mér alla tíð og tek með mér
ótal æskuminningar af frábærri
frænku með dillandi hlátur og
stríðnisglampa í augum. Heimur-
inn væri betri ef öll heimili væru
eins og Garðsendi Siggu og
Nonna. Heimili hlýju sem ómaði
ósjaldan af háværum fjölskyldu-
hlátrinum þar sem oft var tekið í
spil frameftir kvöldi og gleðin var
allsráðandi. Þau voru höfðingjar
heim að sækja og besta leiðin fyr-
ir lítinn pjakk til að prófa að vera
konungborinn um stund var að
fara í heimsókn í Garðsenda. Þótt
það sé sorglegt að kveðja Siggu
gleðst ég við tilhugsunina um
endurfundi sómahjónanna í
Garðsenda handan þessa heims.
Það verður mikil gleðistund.
Blessuð sé minning þeirra.
Gunnar Jónsson.
Elsku Sigga. Nú er komið að
ferðalagi þínu til hans Nonna
þíns og annarra þinna nánustu
Sigríður
Ebenesersdóttir
✝ SigríðurEbenesers-
dóttir fæddist 31.
desember 1931.
Hún lést hún 4. apr-
íl 2015. Jarðarför
Sigríðar var gerð
13. apríl 2015.
sem gengnir eru á
undan þér. Við vit-
um að Nonni mun
taka vel á móti þér
með sinni alkunnu
hlýju og með opnum
örmum. Það verða
örugglega miklir
fagnaðarfundir hjá
ykkur og kæmi það
engum á óvart sem
til ykkar þekktu þó
slegið yrði til glæsi-
legrar veislu eins og ykkur var
lagið.
Þú hefur alltaf verið stór og
mikilvægur hluti í lífi okkar hjóna
og barna okkar og verið traustur
vinur í blíðu og stríðu.
Við munum alltaf minnast þín
og Nonna þíns með mikilli hlýju
og munum aldrei gleyma þeim
mörgu og skemmtilegu samveru-
stundum sem við höfum átt í ára-
tugi.
Í minningu okkar um þig koma
upp í hugann nokkrir eiginleikar
þínir eins og trygglyndi, traust
vinátta, hreinskilni, myndarskap-
ur, glæsileiki, gestrisni, slunginn
spilari, fallegur söngur og kímni-
gáfa.
Við þökkum þér fyrir alla sam-
veruna, vináttuna og trygglyndið
í gegnum allt lífið.
Blessuð sé minning þín elsku
Sigga.
Elsku Randver, Ómar, Ebbi,
Gummi, Beta og fjölskyldur. Guð
gefi ykkur styrk til að vinna úr
sorginni.
Kristrún og Jón Kr.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN PÉTURSSON
frá Siglufirði,
til heimilis á Reykjavíkurvegi 40,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
16. apríl kl. 13.
.
Bergljót Ólafsdóttir,
Ásta Björnsdóttir,
Pétur Björnsson, Gróa G. Haraldsdóttir,
Þóra Björnsdóttir, Örvar Már Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
CHRISTHILD FRIÐRIKSDÓTTIR,
áður Beckemeier,
kennari og leiðsögumaður,
Æsufelli 4,
Reykjavík,
lést 23. mars á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð. Bestu þakkir fær starfsfólk Sóltúns,
3. hæð c, fyrir umönnun hennar.
.
Ragnar Bjarnason,
Gottskálk Jón Bjarnason, Arndís Hervinsdóttir,
Heiða K. Þ. Bjarnadóttir, Helgi Magnússon,
Hinrik D. Bjarnason, Kristín Harðardóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær bróðir, mágur og frændi okkar,
HAUKUR SVEINSSON,
lést föstudaginn 27. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
.
Berglind Sveinsdóttir,
Sólveig Sveinsdóttir, Benedikt Ólafsson,
Ingi Geir Sveinsson, Særún Hrund Ragnarsdóttir,
Hinrik Jón Þórisson, Wasana Worpaeng,
Kristín Þórisdóttir,
Ingunn Stella Björnsdóttir
og systkinabörn.
Ástkær og heittelskaður eiginmaður minn
og faðir,
ÞÓRÐUR GUÐMUNDUR
GUÐLAUGSSON,
lést á heimili sínu Hrafnistu í Kópavogi
sunnudaginn 12. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
.
Ólöf Sigurðardóttir,
Aðalsteinn Þórðarson,
Guðlaugur Þórðarson,
Brynja Þórðardóttir,
Ásdís Þórðardóttir,
Þórður Ólafur Þórðarson.
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
HALLDÓR BIRGIR JÓHANNSSON,
lést miðvikudaginn 8. apríl.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 22. apríl kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning til
styrktar börnum hans 0515-14-410555, kt. 201278-5979.
.
Ragna Marí Halldórsdóttir,
Davíð Logi Halldórsson,
Jóhann Halldórsson, Olga Guðmundsdóttir,
Elvar Örn Jóhannsson,
Jóhann Freyr Jóhannsson, Hrönn Veronika Runólfsd.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MATTHILDUR MAGNÚSDÓTTIR,
áður til heimilis að Vallarbraut 6,
Njarðvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi
9. apríl.
Útförin fer fram föstudaginn 17. apríl kl. 15 frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju.
.
Ásthildur M. Kristjánsdóttir, Magnús Jónsson,
Jón Kristjánsson, Jóhanna Óladóttir,
Jónína María Kristjánsdóttir,
Þröstur Kristjánsson,
Kristján Lars Kristjánsson, Erla Finnsdóttir,
Friðleifur Kristánsson, Stefanía Ósk Þórisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ERFIDRYKKJUR AF ALÚÐ
Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju
Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta
Sími: 525 9930 • hotelsaga@hotelsaga.is • www.hotelsaga.is
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
INGEBORG EIDE GEIRSDÓTTIR,
Auðarstræti 15,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum mánudaginn 6. apríl.
Úförin fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 16. apríl kl. 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Ás styrktarfélag.
.
Hlíf Geirsdóttir, Stefán Ásgeirsson,
Ólína Geirsdóttir, Sveinbjörn Björnsson,
Benedikt Geirsson, Helga Möller
og systkinabörn.