Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 9
; v ***** bS
.
'íf'
■ 1/ ..
T'í í
-, . : 5 . P
FRÁ SETNINGU 11. I'INGS S. í. 15. S.
ÞÓRÐUR BENF.DIKTSSON FORSETI SAMBANDSINS SETUR ÞINGIfi
Þá gerðust þriðju stórtíðindin í berkla-
vamamálum íslendinga fyrir 20 árum, sem
við í dag minnumst sérstaklega. Sjúklingarn-
ir sjálfir tóku til sinna ráða, stofnuðu félög og
samband til þess að leysa vanda sinn með
stofnun Reykjalundar, sem er, ekki einungis
orðinn ástfóstur þjóðarinnar, heldur og undr-
unarefni allra útlendinga, sem leggja hing-
að leið sína. Reykjalundur er kjörstaður
þeirra, sem enn hafa takmarkað vinnuþrek
eftir hælisvist, milhspor frá hælinu til hins
borgaralega lífs í landinu. Þar að auki hefir
Samband íslenzkra berklasjúklinga með
höndum stórfellda félagslega hjálp og fyrir-
greiðslu til handa þeim mönnum, sem tekið
Reykjalundur
hafa upp störf í atvinnufylkingum þjóðarinn-
ar.
En í allri sögu þessara mála gnæfir þó hæst
sú staðreynd, að berklasjúklingarnir sjálfir
fundu lausnarorðið: „Styðjið sjúka til sjálfs-
bjargar“. Orðið, sem er markað á fánann yfir
þessum ræðustól og sem gæðir sigurhreimi
hvert það orð, sem héðan er talað.
Ég hverf í huganum meira en hálfa öld
aftur í tímann til þeirrar kynslóðar, sem reis
úr rústum íslenzkrar þjóðreisnar á síðari
hluta 19. aldar, þegar ekkert var til í þessu
landi, gert af mannahöndum, nema torfbæir
7