Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 15

Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 15
aði fyrir framan húsið. Hreppstjórinn kom æðandi inn. Hann leit valdsmannslega á mig. „Jæja?“ spurði hann stuttaralega. „Það er brunagildra í kjallaranum“, svar- aði ég rólega. „Eg kom niður, þegar hún var að því komin að kveikja í húsinu. Það slaknaði á valdsmannssvipnum. „Er það mesti glæpurinn í sögu norskrar saka- málasögu?11 „Það hef ég ekki hugmynd um“, svaraði ég og setti upp furðusvip. „Nú, — það sögðuð þér stúlkunni á sím- stöðinni. „O, já“, svaraði ég brosandi. „Fólki hættir stundum til að gera úlfalda úr mýflugunni, þegar það heyrir eitthvað svona. Eg sagði víst eitthvað á þá leið, að hér hefði verið framinn stórglæpur. Og við erum mörg hér í húsinu — það hefði getað orðið alvarlegt.“ Frásögn mín var víst ekki mjög sannfær- andi. Hreppstjórinn sneri sér við og gekk út til lögregluþjónsins, sem með honum var. „Við skulum líta í kringum okkur“, sagði hann. „Hvar eru kjallaradyrnar?“ Eg sagði honum það — og varð svo allt í einu dauðskelkaður, því vitaskuld vottaði ekki fyrir neinni brunagildru í kjallaranum! Það var bót í máli, að hreppstjórinn hafði ekki beðið mig að koma með sér. Eg hljóp niður kjallarastigann, leitaði að kassa en fann engan, þaut upp aftur — og þarna stóð ágæt- ur kassi! Eg greip hann og þaut niður aftur, bókstaflega eins og elding. Og til að full- komna kraftaverkið lá kertisstubbur á gluggasillunni. Eg greip kertið, neri því um kassann, til þess að geta sýnt, hvar það hefði staðið. Eg hafði engar eldspýtur, til að bræða vax, svo að ég lagði kertið á miðjan kassann, fleygði nokkrum tuskum og bréfarusli að því og þaut svo upp í anddyrið. Hreppstjórinn kom inn ásamt lögreglu- þjóninum. „Jæja, við skulum líta á gripinn“, sagði hann. Þeir héldu niður í kjallarann og ég á eftir, til þess að dást að handaverkum mínum. — „Nú, og þarna er gildran", sagði hreppstjór- ixm. „Það virðist vera ein af þessum venju- legu....“ Reykjalundur Hann þagnaði.. .. og starði. Og sama gerði lögregluþjónninn. Eg hef aldrei haft neitt við þá að athuga — jafnlyndir, rólegir menn, sem skrifa húsgögn- in manns upp í bækur sínar og segja: „Gott veður í dag“, um leið og þeir fara. — En nú fékk ég allt í einu illan bifur á þeim. Ætluðu þeir sér e. t. v. að fara að gagnrýna eitthvað þessa ágætu brunagildru mína? Og var ég ekki saklaus eins og nýfætt barn? Ekki gat ég gert að þessari vitleysu um líkin, sem reyndust svo engin vera. Ætli ég hafi ann- ars minnst nokkuð á þau í símann? Lögregluþjónninn klóraði sér bak við eyr- að og leit varfærnislega á yfirboðara sinn. „Hm“, sagði hann. „Hm“, sagði hreppstjórinn líka. Það var óhugnanlegt samtal. „Mesti glæpur, sem framinn hefur verið í Noregi“, sagði hreppstjórinn háðslega. „Að minnsta kosti einhver sá furðulegasti“, bætti lögregluþjónninn við. „Já“, sagði ég. Þeir virtu mig vandlega fyrir sér. Hrepp- stjórinn lyfti öðrum handleggnum og lagði lófann á enni mér. „Hm“, sagði hann. „Þessi brennugildra kemur mér kunnuglega fyrir sjónir. Segið mér eins og er, maður minn — eruð þér vel hraustur?“ Ég var hreint ekki svo viss um það, svo að ég tók þann kostinn að þegja. En ég skildi ekki, hvað væri athugavert við brunagildr- una. „Hm! Þér ættuð skilið að fá hundrað ára fangelsi fyrir þessa brunagildru.“ „Að minnsta kosti!“ sagði lögregluþjónn- inn. „Jæja“, hugsaði ég með mér. — „Það býr eitthvað undir þessu!“ „Því að ég get semsé sagt yður“, hélt hreppstjórinn áfram, „að ég á þessa fyrir- myndar brunagildru yðar. Ég lagði þennan kassa frá mér í anddyrið, þegar ég kom. Og nú er hann orðinn að brunagildru. Þér hljót- ið að vera með fullan hausinn af lausum skrúfum!“ Mér þótti þessi yfirlýsing fjandi óþægileg. „Ja, hérna!“ sagði ég og var alveg ráðþrota. 13

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.