Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 31
Stjórnarfundur D. N. T. C.
Tíu ára afmæli sambandsins
Stjórnarfundur Berklavarnarsambands
Norðurlanda, D. N. T. C., var haldinn að
Reykjalundi dagana 2. —5. júlí í sumar.
Var þetta jafnframt afmælisfundur af til-
efni 10 ára afmælis sambandsins, sem stofn-
að var að Reykjalundi sumarið 1948.
Tveir fulltrúar voru mættir til fundarins
frá hverju landanna, þeir sömu og komu sam-
an á sl. sumri til stjórnarfundarins í Dan-
mörku, en venjan er, að fundirnir séu haldn-
ir til skiptis í sambandslöndunum, og þá
jafnframt reynt að haga svo til, að þing
berklavarnasambands viðkomandi lands sé
haldið um svipað leyti, svo gestunum gefist
kostur á að fylgjast með störfum sambands-
ins, og flytja þann lærdóm. sem af því má
draga til síns heimalands.
Teljum við undirritaðir, fulltrúar S. í. B. S.
í stjórn D. N. T. C., að fundir þeir, er við
höfum tekið þátt í, hafi verið okkur til mikils
fróðleiks og auðveldað okkur þau störf, er
S. í B. S. hefir falið okkur. Ánægjulegt er þó
að geta þess, að við höfum ekki aðeins verið
þiggjendur, heldur og veitendur, því félagar
okkar á Norðurlöndum hafa einnig nokkuð
af okkur getað lært.
Yms mál, er alla berklasjúklinga varða,
voru rædd á þessum fundi sem hinum fyrri.
Mörg eru vandamálin við að stríða, og svip-
uð í öllum löndunum. Telja verður þó, að
nokkuð þokist í rétta átt, að dómi berkla-
varnasambandanna, þótt mikið vanti á, að
æskilegasta árangri sé enn náð.
Af þeim 18 málum, sem fundurinn tók til
meðferðar þessu sinni eru það sérstaklega
tvö, sem kunna að vera forvitnileg fyrir les-
endur þessa blaðs, og við viljum sérstaklega
geta.
Vinnuþjálfun, vinnustofnanir og vinnu-
miðlun öryrkja, er starfsemi sem við þekkj-
um því miður alltof lítið til, nema vinnu-
þjálfun sú sem S. í. B. S. stendur fyrir að
Reykjalundi, og alþjóð er kunn, en í ná-
grannalöndum okkar er slík starfsemi í hönd-
um opinberra aðila að mestu leyti.
Sama máli gegnir um vinnustofnanir, að
Frd stjórnarjundi D.N.T.C.
Reykjalundur
29