Reykjalundur - 01.06.1958, Qupperneq 37
Garðar Jóhannesson
F. 17. des. 1904. — D. 20. nóv. 1957.
Garðar Jóhannesson formaður Sjálfsvarn-
ar að Kristneshæli lézt í Landsspítalanum 20.
nóv. 1957. Lauk þar með stríði við berkla-
veikina, er staðið hafði hátt á annan tug ára.
Garðar veiktist 1940 og kom það ár á Krist-
neshæli. Útskrifaðist hann 1945, en varð að
fara aftur á hælið eftir þriggja ára bil, 1948.
Frá því var hann bundinn við heilsuhæli og
sjúkrahús til dauðadags.
Enda þótt kraftar Garðars væru oft veikir
á hælisvistarárum hans, vann hann jafnan
mörg störf og mikilvæg fyrir samsjúklinga
sína á Kristnesi og samband vort.
Arum saman var hann formaður Sjálfs-
varnar, í stjórn vinnustofanna að Kristnesi,
formaður Styrktarsjóðs sjúklinga þar og for-
maður bókasafns þeirra.
Fulltrúi á þingum S.Í.B.S. var hann oftar
en einu sinni og umboðsmaður Vöruhapp-
drættisins 1949—’51 og 1954—’56.
Öllum, sem kynntust störfum Garðars, ber
saman um, að þau hafi verið leyst af hendi
með óvenjulegri reglusemi, dugnaði og trú-
mennsku.
Garðar Jóhannesson var maður yfirlæt-
islaus og prúður í framkomu, traustur pg
REVKJALUNpiJIt
vandur að virðingu sinni í hvívetna. Mér
kom hann fyrir sjónir sem sú gerð manna,
sem tamara er að gera kröfur til sjálfra sín en
annarra.
Með Garðari Jóhannessyni er genginn einn
úr þeirra hópi, sem fórnað hafa veikum kröft-
um fyrir gott málefni og mun hans minnst
sem eins af ágætustu félögum S.Í.B.S.
Á. G.
Námskeið
í félagsmálum öryrkja
í Bommersvík
Dagana 24. júlí til 2. ágúst í sumar hélt
sænska berklavarnasambandið námskeið í
félagsmálum.
Námskeiðið var haldið í félagsheimili sunn-
an Stokkhólms. Sóttu það sextíu manns víðs-
vegar að úr Svíþjóð. Danir, Finnar, Norð-
menn og Islendingar sendu einnig fulltrúa á
námskeiðið.
Þessa tíu daga voru flutt tuttugu og fimm
erindi um öryrkjamál, og voru allir fyrir-
lestrarnir fluttir af færustu sérfræðingum.
Svíar standa sennilega fremst allra þjóða
í því, er lýtur að tryggingum almennings og
gera mjög mikið til að hjálpa öryrkjum og
gera þeim kleift að sjá sjálfum sér og sínum
farborða. Sænska berklavarnasambandið
hefur unnið mikið að þessum málum og á
drjúgan þátt í þeim framförum, sem orðið
hafa á þessu sviði síðasta áratuginn.
Námskeiðið var bæði ánægjulegt og lær-
dómsríkt. Það var afbragðsvel skipulagt, fé-
lagsandinn góður og umhverfið fagurt.
Síðan Norræna berklavarnasambandið var
stofnað, hefir náin samvinna verið með
bræðraþjóðunum.
Þetta námskeið var einn þáttur þess góða
samstarfs.
G. L.
35