Reykjalundur - 01.06.1958, Qupperneq 47
maður, þunglyndislegur á svip, á að gizka
rúmlega fertugur. Hann hafði mikið dökkt
skegg og einkennilegt augnaráð, biðjandi og
starandi. Einnig honum féll einkar vel félags-
skapur Helenu, og sat hann hjá henni löng-
um stundum. Henni fannst sem hann væri
gæddur augnaráði Rómeós og mælsku Oth-
ellós ,og hann töfraði hana með sögum frá
fjarlægum heimshlutum. Henni duldist ekki,
að hann var í bónorðshug — og hafði raunar
beðið hennar oftar en einu sinni, undir rós.
Frá fyrstu kynnum fann Helena til mik-
illar, næstum yfirþyrmandi vellíðunar í ná-
vist þessa manns. Rödd hans minnti hana á
einhvern leyndardómsfullan hátt á liðna
tíma — og daga æskuástar hennar. Tilfinn-
ing þessi óx hröðum skrefum, Helena gaf
henni lausan tauminn og brátt tók hún að
trúa því, að hann hefði verið mikilvæg per-
sóna í þeim leik. Og samkvæmt kvenlegri á-
lyktun (jú, konur beita stundum rökum) og
með því að leiða hjá sér allar venjulegar
vangaveltur um staðreyndir, komst hún að
þeirri niðurstöðu, sem brátt varð að vissu, að
þarna væri hennar elskulegur eiginmaður
kominn til hennar aftur. Hún þóttist skynja
í augum hans ást, sem ekki yrði um villzt.
Og ennfremur þóttist hún sjá í þessum sömu
augum djúpa þrá og iðrun, sem vakti sára
meðaumkvun hennar. En allir vita, að slík
meðaumkvun og samúð er oft undanfari
endurgoldinnar ástar.
En hún lét sem ekkert væri. Eiginmaður,
sem hverfur fyrir næsta götuhorn og skýtur
svo allt í einu upp kollinum tuttugu árum
síðar, getur tæplega vænzt þess, að inni-
skórnir hans bíði á þægilegasta stað og eld-
spýtur til að kveikja í vindlinum með. A
undan verður óhjákvæmilega að fara afplán-
un, útskýringar, jafnvel fordæming í bili.
Fyrst hlýtur maðurinn að þola nokkra vist í
hreinsunareldi iðrunarinnar, og síðan fengi
hann e. t. v. umbun ástar sinnar, ef hann
reyndist nógu auðmjúkur. Þess vegna sýndi
hún þess engin merki, að hún vissi neitt eða
grunaði hið minnsta.
Og vinur minn, blaðamaðurinn gat ekki
komið auga á neitt skemmtilegt við þetta!
Maður, sem sendur var á stúfana til að skrifa
Reykjalundur
COLGATE’S ER BEZT
H. Ólafsson & Bernhöft
OLÍUFÉLAGIÐ h. f.
Sambandshúsinu
Sími 24390
REYKJAVÍKURHÖFN
Hafnarhúsinu. — Sími 12951.
KIDDABLTÐ
Garðastr. 17. — Njálsg 64. — Bergst.str. 48
Sími 1-1379 Sími 1-4063 Sími 1-2737
L í T I Ð I N N í
BÆKUR og RITFÖNG
Austurstræti 1 og Laugaveg 100
45