Húnavaka - 01.05.1962, Qupperneq 28
26
HÚNAVAKA
Tekjur hásesta á bát svipuðum og ég er með ættu að nema yfir
árið 100—150 þúsund krónum, sé allt affallalaust og meðalaflaár.
Þrátt fyrir þetta eru þó alltaf dálitlir erfiðleikar á þvi að fá menn
á bátana, sem hér mun m. a. skapast af því, að hér á staðnum eru
ekki svo margir starfandi sjómenn, sem þörf er fyrir nú.
Mikill munur er orðinn á aðstöðu sjómannanna frá því, sem áður
var, hvað snertir búnað um borð og auðveldari vinnutilhögun. Síld-
veiði, sé mikill afli, var nokkuð erfið með skorpum, en síðan kraft-
blokkin kom er þetta leikur einn nema þá helzt löndunin.
Ég er ekki svartsýnn á útgerð héðan frá Skagaströnd, og ef við
fáum aðstöðu til að eignast stór og góð skip, þá sé ég enga ástæðu fyrir
ungt fólk, sem skapa vill sér framtíð við þennan atvinnuveg, að leita
annað til lífsbjargar. Það sem aðallega hefur vantað hér, er að okkar
skip hafa ekki verið nógu stór og vel útbúin, en við vonum að á þessu
verði bráðlega breyting.
Þó að ef til vill megi hafa eitthvað hærri tekjur af þvi að róa við
Breiðafjörð en héðan, þá er aðstaða hér betri. Löndunarskilyrðin eru
góð og afsetningarmöguleikar fyrir afla þeirra báta, sem hér eru nú,
góðir. Höfnin skemmist að vísu af sandi og verður að ráða bót á því.
A útgerð trillubáta hefi ég hæpna trú, nema svo sem 2-3 mánuði af
árinu.
Sé aflandsvindur, teljum við sæmilegt sjóveður, þó að vindhraði
sé 5—6 vindstig. Öðru máli gegnir, ef vindur stendur af norðri, þá eru
mun erfiðari sjóar.
Frá engum svaðilförum get ég sagt, að vísu er alltaf eitthvað að
gerast, en vondu veðrin gleymast fljótt.
— Og þá er það unga konan, Guðrún Sigurðardóttir. Hún er ánægð
með að vera sjómannskona og óskar sér ekki annars hlutskiptis betra.
Henni eru þessi störf heldur ekki með öllu framandi. Faðir hennar hefur
lengst af ævi unnið við útgerð, og frændur hennar margir gengið sömu
braut. 13 ára gömul fluttist hún hingað vestan af Ströndum, og hefur
hún átt hér heima síðan. Nokkuð finnst henni taka í, þegar bóndinn
þarf að fara á vertíð í fjarlægar verstöðvar, en um það þýðir ekki að
sakast, þetta fylgir starfinu.
Talstöðvar bátanna og útvarp heimilanna létta hér margri konu
stundirnar. Með bátum er alltaf fylgzt úr landi, frá því sjóferð er hafin
og þar til henni er lokið. Konan í landi getur jafnvel fylgzt með veiðum