Ægir - 01.10.2014, Page 6
6
Á tímamótum sem þeim þegar nýtt ár gengur í garð og það gamla
kveður má líta um öxl og velta fyrir sér ótal þáttum sjávarútvegsins,
hvort rekstur skipa eða vinnslna gekk vel eða illa, hvort afurðaverð var
ásættanlegt eða ekki á árinu og þannig mætti áfram lengi telja. Þegar
allt kemur til alls er hins vegar vert að byrja á að velta fyrir sér því sem
mikilvægast er, þ.e. sú þróun yfir lengri tíma að því betur verður fátíð-
ara að mannslíf glatist í sjósókn við Íslandsstrendur. Það er sannarlega
dýrmætasta tölulega staðreyndin um sjávarútveginn fyrir þjóðarbúið
og milljarða hagnaður í krónum talið skiptir litlu þegar mannslíf eru
annars vegar. Frammi fyrir snörpum lægðakerfum sem minnt hafa
rækilega á sig undanfarnar vikur er full ástæða til að hafa í huga að
einmitt við þessar aðstæður töpuðust því miður mörg mannslíf á ár-
um áður. Og það fyrir ekki svo mörgum árum. Hér í Ægi er fjallað um
eitt af þessum mannskaðaveðrum, páskahretið árið 1963. Eftir það
óveður áttu margar fjölskyldur um sárt að binda.
Tölur sýna að á árabilinu 1971-1980 fórust 203 íslenskir sjómenn
en á næsta áratug fækkaði dauðsföllunum niður í 116 og urðu þau 63
á árabilinu 1991-2000. Á tímabilinu 2001-2010 fórst 21 sjómaður við
landið. Þróunin er mikið fagnaðarefni og þökk sé þeim sem starfa öt-
ullega að því að bæta í hvívetna öryggi sjómanna. Eitt slys er einu slysi
of mikið en eins og við höfum verið minnt á að undanförnu eru veður-
guðirnir máttugir sem fyrr. Sjósókn við landið verður aldrei 100%
öruggt starf þó margt hafi breyst frá fyrri tíð í öryggismálum.
Því er minnt á þennan þátt hér að eitt af því sem rís hvað hæst í
heildarmynd sjávarútvegsins við árslok 2014 er sú staðreynd að komin
er nokkur hreyfing á endurnýjun skipastólsins og er ekki vanþörf á. Ný
skip eru ekki aðeins spurning um hagkvæmni í rekstri og bætta afla-
meðferð; þau eru líka betri vinnustaðir fyrir sjómenn. Og líka öruggari
vinnustaðir. Það eru þannig fjölmargir þættir sem búa að baki þeim
tveimur orðum sem algengast er að notuð séu um þessa þróun; þ.e.
„aukin fjárfesting.“ Hún er eftirsóknarverð, ekki vegna þess að tilfinn-
anlega þurfi að koma hagnaði í lóg eða skuldsetja útgerðarfyrirtækin,
heldur vegna þess að fjárfesting er merki um framþróun. Það að eitt-
hvað sé gert betur en í dag og skili sem bestum árangri til framfara.
Sjávarútveginn einkennir líka nú um stundir aukin nýting hráefnis
úr hafinu við landið. Gangi villtustu draumar margra eftir hvað þetta
varðar geta stærðargráður ávinningsins orðið slíkar að fæstum hefði
órað fyrir þeim. Ef það er eitthvað sem okkur ætti að hafa lærst á und-
anförnum árum þá er það að útiloka ekki að þetta gangi eftir. Með
hreinleika auðlindarinnar að vopni, öfluga fiskistofna og margt van-
nýtt hráefnið í sjónum, rannsóknir, þekkingu og síðast ekki síst viljann
til að reyna eitthvað nýtt þá geta okkur orðið ýmsir vegir færir inn í
framtíðina.
Árið 2014 var um margt mjög gott fyrir íslenskan sjávarútveg.
Vissulega brást loðnuveiði en af reynslu undangenginna áratuga er
það meiri frétt að loðnan sé stöðug ár eftir ár en að hún bregðist eitt
og eitt ár. Við höfum hins vegar sterkan þorskstofn og margt annað
jákvætt í þróun fiskistofnanna. Líkt og áður höfum við fyrsta og síð-
asta orðið um hversu vel við spilum úr því sem okkur er fært úr spila-
bunkanum frá náttúrunnar hendi í sjávarútvegi; við getum bæði
skemmt fyrir okkur með óvarlegum ákvörðunum en við erum hins
vegar líklegri til að halda áfram á framfarabraut.
Ritstjórn Ægis óskar lesendum og viðskiptavinum gleðilegs sjávar-
útvegsárs 2015 með þökk fyrir árið sem er að líða.
Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar
Við lok sjávarútvegs-
ársins 2014
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5100 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
Forsíðumynd: Dalvíkurhöfn / Friðrik Vilhelmsson
ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
R
itstjórn
a
rp
istilll
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
www.danfoss.is
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður
er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu
skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar
hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum
sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan
og skilvirkan búnað.