Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 24
24
LED lýsing er bylting
í íslenskum skipum
Nú í dimmasta skammdeginu
ríður á að góð vinnulýsing sé í
borð í bátum og skipum. LED
lýsingartæknin hefur heldur
betur hafið innreið sína í ís-
lenska skipaflotann. Þeir sem
hafa reynt samanburðinn við
hefðbundna ljósakastara segja
mikinn mun bæði á ljósmagni
og orkuþörf. Fyrirtækið Ledlýs-
ing í Hlíðarsmára 11 í Kópavogi
sérhæfir sig í LED ljósabúnaði
og hefur selt hundruð LED kast-
ara í skipaflotann. Hermann
Auðunsson, eigandi fyrirtækis-
ins, segir áðurnefnda þætti
skipta höfuðmáli við val á ljósa-
búnaði á skipin.
„Það spilar verulega inn í að
geta sparað allt að 80% orkunn-
ar sem að jafnaði fer í að drífa
hefðbundna kastara um borð.
Ég held þó að menn meti mest
er hve birtan er þétt í þessum
kösturum þrátt fyrir mikla dreif-
inu. Síðan skemmir það nátt-
úrulega ekki fyrir að ljósin þola
bæði titring og högg og allt
viðhald sem fylgir hefðbundn-
um kösturum, svo sem að klifra
reglulega upp í möstur jafnvel í
svarta myrkri og brjáluðu veðri
til þess að skipta um perur,
heyrir nú sögunni til,“ segir Her-
mann.
Þeir sem prófa vilja fleiri kastara
Frá því fyrirtæki Hermanns hóf
að selja LED kastara í skip hér á
landi fyrir um tveimur árum
hefur hann unnið með fram-
leiðanda búnaðarins að því að
mæta þörfum á norðlægum
slóðum fyrir aukinn þéttleika
auk þess sem með kösturunum
má fá sérstakar festingar úr 316
stáli til að mæta erfiðustu að-
stæðum sem þekkjast á sjó.
„Eðlilega voru menn varkárir
í fyrstu enda ekki þekkt sú
hugsun að hægt væri að fjár-
festa í varanlegri lýsingu til nota
utandyra við þessar erfiðu að-
stæður. Hjólin fóru þó fyrst al-
mennilega að snúast eftir að
einn af stærri þjónustuaðilum
útgerða hér á höfuðborgar-
svæðinu fór að kaupa þá í
Hermann Auðunsson í Ledlýsingu ehf. í Kópavogi með LED kastara sem þykir mikil bylting í lýsingum um borð í skipum.
Horft aftur trolldekkið á togaranum Reval Viking. Þessi birta er frá ein-
um 400W LED kastara frá Ledlýsingu ehf.
T
æ
k
n
i