Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 23

Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 23
23 taka fram að þeir vilji komast með „spítu- bátnum.“ Hnúfubakurinn breytti öllu Hnúfubakur var friðaður á fyrri hluta sjötta áratugar síðustu aldar og þá sagður nánast útdauður í Atlantshafinu en Árni segir ljóst að stofninn hafi nú náð sér vel á strik. Og hann segir mikla fylgni vera á milli vinsælda hvalaskoðunarferða og þróunar í hnúfu- baksstofninum. „Á meðan það er mikið af hnúfubak þá verður aukning í hvalaskoðuninni en ég er þess líka fullviss að einhvern tíma kemur bakslag í þessa miklu göngu hnúfubaksins hér á svæðinu. Við vorum á sínum tíma á báðum áttum með að halda áfram þessari hvalaskoðun meðan bara var hægt að sjá hrefnur og önnur smáhveli. En hnúfubakur- inn gjörbreytti okkar aðstæðum og er sá grunnur sem við byggjum á. Það er miklu auðveldara að finna hann en hrefnurnar og meiri upplifun fyrir farþegana að sjá hnúfu- bakinn,“ segir Árni. Auðvelt að ná í þorskinn Eins og áður segir hafa þeir eigendur Níels Jónssonar ehf. skipt yfir í dragnótaveiðar með tilkomu Sandvíkur EA-200 og kann Árni þeim veiðiskap ágætlega. „Dragnótin hefur bæði sína kosti og galla, við erum enn að læra inn á þetta,“ segir skipstjórinn sem vanastur er netaveiðinni á gamla bátnum. Hann segir síðustu netavertíð hafa verið eina þá allra bestu bestu á Norðurlandi frá upphafi. „Þorskgengdin hefur verið að aukast í smáum skrefum mörg undanfarin ár og það er ekki bara meira af þorski en áður heldur er hann líka alltaf að verða stærri og stærri. Það sjáum við líka í sjóstangveiðinni hjá okkur á sumrin. Þetta þýðir auðvitað að það þarf stöðugt minna að hafa fyrir því að sækja þann afla sem við megum veiða,“ segir Árni og staðfestir það sem mikið hefur verið umrætt að lítið er af ýsunni þessi árin og frekast veiði á stærri ýsu. Miðað við síð- ustu fréttir af rannsóknum muni þó aftur birta til í ýsuveiðinni enda segi sagan að ýs- an sveiflist mun meira en þorskurinn. „Þegar ég byrjaði á sjónum á sínum tíma kynntist ég þorskveiði í nót. Þá átti útgerðin 14 tonna bát og í eitt skipti fékkst á hann 100 tonna kast af þorski sem fyllti 11 báta! Við vorum líka með þorsknót á sínum tíma á Níelsi Jónssyni sem við eigum núna en fyrst og fremst hefur verið fiskað í net á honum,“ segir Árni. Veiðidellan þrálát! Ekki verður skilið við Árna skipstjóra án þess að nefna hans stærsta tómstundaáhugamál sem alla tíð hefur fylgt honum; sportveið- ina. Þar er allt undir, ef svo má segja; sjóst- angveiði, stangveiði og skotveiði þó líkast til sé síðastnefnda veiðidellan sínu mest! „Já, það er rétt. Ég er mikið í gæsaveið- inni og rjúpnaveiði þá daga sem hún er leyfð. Ég hef líkast til veitt í öllum landshlut- um, nema þó á Vestfjörðum. Það svæði á ég eftir,“ segir hann og bætir við að eftir mikla fjölgun í gæsastofninum þyki honum ýmis- legt benda til að sá stofn sé að gefa eftir. „Síðan hef ég fjórum sinnum farið í veiðiferðir til Grænlands, bæði veitt þar bleikju á stöng og skotið hreindýr. Sömu- leiðis hef ég veitt í Danmörku, Kanada, Noregi, Skotlandi og í Afríku þangað sem við veiðifélagarnir fórum fyrir 8 árum síðan. Það var mikil upplifun að veiða þessi villtu og stóru Afríkudýr og frábrugðið því sem ég hef veitt áður. Og þar veiddi ég líka há- karl á stöng! Veiðiskapurinn hefur alltaf fylgt mér, hvort sem er á sjónum eða frítímanum. Þetta er í eðlinu,“ segir Árni Halldórsson. Sjóstangveiði er fastur liður í hvalaskoðunarferðum Níelsar Jónssonar. Þessi rígvæni þorskur fékkst á stöngina síðastliðið sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.