Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 44

Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 44
44 „Það var heillandi fyrir ung- an mann eins og mig að fara á sjóinn og ekki skemmdi fyrir að á þessum árum var töluvert um siglingar til Englands og Þýska- lands. Þú getur ímyndað þér hvort það hafi ekki verið gaman fyrir sautján til átján ára peyja að sigla til erlendra hafna!“ Á vertíð í Eyjum í 25 ár! Árið 1989 var heldur rólegt yfir útgerðinni á Siglufirði og þá bauðst Valmundi að fara á ver- tíð í Eyjum. Hann ákvað að slá til en hafði í hyggju að snúa heim að henni lokinni. Það varð þó ekki og þessi vertíð sem hófst fyrir um aldarfjórðungi má segja að standi enn. „Mér bauðst til að byrja með pláss á togbátnum Frigg VE 41 hjá Magna Jóhannssyni og það var mjög skemmtilegur tími. Það var aldrei dauður tími í róðrum með Magna. Árið 1991 fór ég á Þórunni Sveinsdóttur, sem þá kom ný til Eyja og var þar með Sigurjóni Óskarssyni og fé- lögum á trolli. Skipinu var síðan breytt í frystitogara en ég fór ekki nema örfáa túra eftir þær breytingar. Þetta frystitogaralíf átti ekki við mig þannig að ég hætti og færði mig aftur tíma- bundið yfir á Frigg, þar til hún var seld. Þá fékk ég pláss á Frá VE en árið 1998 til 2000 tók ég Stýrimannaskólann og var eftir það stýrimaður og afleysinga- skipstjóri á Frá þar til ég hætti á sjónum árið 2009,“ segir Val- mundur. Unnið að hagsmunamálum sjómanna í yfir 30 ár Valmundur byrjaði í verkalýðs- málununum í heimabæ sínum Siglufirði í kringum 1980. Þá var hann fenginn til þess að taka að sér formennsku í sjómanna- deild Verkalýðsfélagsins Vöku en Hafþór Rósmundsson var þá forystumaður þess félags. Allar götur síðan hefur Valmundur á einn eða annan hátt komið að félagsmálum sjómanna. Árið 2007 var Valmundur kjörinn formaður Sjómanna- félagsins Jötuns í Vestmanna- eyjum og þegar hann kom í land tveimur árum síðar gerðist hann starfsmaður á skrifstofu þess í Eyjum og hefur verið þar síðustu rúm fjögur ár. „Áður en ég tók að mér formennsku í Jötni hafði ég verið stjórnar- maður þar síðan 1994, var vara- formaður um tíma áður en ég tók við formennskunni. Það var síðan vissulega stór ákvörðun fyrir mig að gefa kost á mér til formennsku í Sjómannasam- bandinu. En ég hef undanfarin ár verið þar í stjórn þannig að ég kem ekki alveg blautur á bak við eyrun inn í þetta. Starfið leggst afskaplega vel í mig. Ég ræddi við alla fulltrúa á Sjó- mannasambandsþinginu og ég finn að menn treysta mér vel í starfið. Það er mjög mikilvægt veganesti,“ segir Valmundur. Ekki auðveld ákvörðun Valmundur segir að vissulega hafi hann þurft að velta því vel fyrir sér með fjölskyldunni áður en ákvörðun var tekin um að gefa kost á sér til formennsku í Sjómannasambandinu. Ekki að- eins sé um að ræða að taka að sér nýtt og krefjandi en jafn- framt spennandi starf, heldur ekki síður að flytjast búferlum frá Vestmannaeyjum, þar sem þeim hjónum hafi alla tíð líkað vel að búa, til höfuðborgar- svæðisins. „Ætli það hafi ekki verið í endaðan september sem Sævar Gunnarsson orðaði það við okkur í stjórn Sjómanna- sambandsins að hann myndi ekki leita eftir endurkjöri á Sjó- mannasambandsþinginu. Í kjöl- farið komu nokkrir félagar mínir í stjórninni að máli við mig og spurðu hvort ég væri tilbúinn að taka slaginn. Eftir að hafa hugsað málið í hálfan mánuð „Það hafa komið fram hugmyndir um ein sterk sjómannasamtök og ég hefði ekki á móti því að slíkt yrði að veruleika því þannig yrði slag- kraftur okkar meiri.“ Formaður Jötuns ávarpar gesti á sjómannadaginn í Vestmannaeyjum. Mynd: Óskar P. Friðriksson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.