Ægir - 01.10.2014, Qupperneq 20
hægt að segja að hann láti mikið á aldrinum
bera. Árni segist aldrei hafa tekið saman töl-
ur um afla bátsins á þessum fjórum áratug-
um „en það er ekki langt frá lagi að reikna
með 250 tonnum að meðaltali á ári,“ segir
hann og það gera 10 þúsund tonn.
Lengstum hefur Níels Jónsson verið á
netaveiðum, fyrst og fremst í mynni Eyja-
fjarðar en nokkur ár var þó róið frá Kópa-
skeri og eina vertíð á Breiðafirði. „Fyrsti vísir-
inn að ferðaþjónustunni var árið 1989 þegar
feður okkar fóru fyrst með fólk sem var í
gistingu á vegum Sveins Jónssonar í Ytri-Vík
í sjóstangveiði en fyrstu hvalaskoðunarferð-
ina fórum við árið 1993. Allar götur síðan
hefur útgerðin verið með þessum hætti hjá
okkur; hvalaskoðun og sjóstöng á sumrin en
fiskveiðar á veturna. Á hverju ár höfum við,
ef svo má segja, klætt bátinn í sparifötin,“
segir Árni en fyrir einu ári keypti fyrirtækið
frambyggðan stálbát frá Stykkishólmi, Sand-
vík EA-200 en á honum hafa þeir frændur
róið á snurvöð. Engu að síður segir Árni ekki
ólíklegt að þeir muni róa líkt og áður á Níelsi
Jónssyni með net eftir áramótin.
Fáir höfðu trú á hvalaskoðun
En hvað þótti mönnum um það fyrir um
aldarfjórðungi að fara að róa með ferða-
menn til að horfa á hvali?
„Það fannst mörgum þetta alveg út í
hött og okkur eiginlega líka! Þetta var líka
miklu erfiðara í hvalaskoðuninni í þá daga.
Það sáust bara hrefnur, höfrungar og hnýs-
ur en svo fór hnúfubakurinn að sýna sig.
Fyrst sást hann bara í fáeinum ferðum yfir
sumarið en varð síðan svo algeng sjón að
sumarið 2011 sáum við hnúfubak í hverri
einustu ferð. Hvalamynstrið hefur breyst
gríðarlega síðustu ár við landið og alveg
sérstaklega hvað varðar hnúfubakinn. Bæði
hefur honum stórfjölgað en þess utan hefur
hann líka fært sig til og virðist halda sig
mest hér á norðurslóðunum. Af því njótum
við góðs því það er mikið sjónarspil fyrir
ferðamennina að sjá hnúfubak og miklu
meiri upplifun en að sjá bara hrefnur og
höfrunga,“ segir Árni sem siglir með þús-
undir ferðamanna yfir sumartímann, að
lang stærstum hluta erlenda ferðamenn.
Hvalaskoðunarfyrirtæki eru nú starfrækt á
Hauganesi, Dalvík og á Akureyri og sigldu
þau með um 20 þúsund farþega í ár. Eftir-
spurnin virðist fara stöðugt vaxandi og
Netaveiði á Níelsi Jónssyni. Um borð eru þeir
frændur og afkomendur stofnandans, Gunnars
Níelssonar frá Birnunesi; bræðurnir Árni og
Halldór Halldórssynir og frændi þeirra Garðar
Níelsson. Mynd: Sigurður Æegisson
Veiðiskapur á hug Árna allan, hvort heldur er á sjónum eða í landi. Hann stundar skot- og stang-
veiðar og hefur farið víða um heim til að stunda sportið, meðal annars til Afríku. Hér er hann við
kúdú-dýr sem hann veiddi í þeirri ferð.
Gleðileggámajól
Þjónusta við
sjávarútveginn
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
Starfsfólk Stólpa Gáma sendir lesendum Ægis jóla- og áramótakveðjur!
Seljum og leigjum frystigáma,
gámahús, geymslugáma og salernishús
í ýmsum stærðum og gerðum.
Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
stolpigamar.is
Frystigámar
Sala og leiga / 10, 20 og 40 ft.
20