Ægir - 01.10.2014, Síða 28
fyrirtækja og almennings til að
ljúka verkinu og hafa haft opinn
söfnunarreikning frá upphafi til
að taka við styrkjum og fram-
lögum.
„Mikið púður hefur farið í
peningaharkið en það tilheyrir.
Auðvitað verðum að geta greitt
það sem greiða þarf. Án ferða-
laga, tæknilegrar þjónustu í
kvikmyndagerð og aðstoðar af
ýmsu tagi komumst við ekki
langt. Það vantar talsvert upp á
að við náum endum saman í að
fjármagna verkið og við erum
afskaplega þakklát fyrir þann
stuðning sem við höfum fengið
nú þegar.
Ég hef kynnt verkefnið víða
og fengið sums staðar betri við-
tökur en ég átti von á en lakari
annars staðar, eins og gengur.
Verkið er komið það langt að
ekki verið staðar numið eða aft-
ur snúið. Við ætlum að ljúka því,
hvernig svo sem við förum að
því.“
Þrír Dalvíkingar sunnan heiða ákváðu að
minnast sjóslysa við Norðurland 1963 með
því að reisa sjö sveitungum sínum, sem fór-
ust með tveimur bátum, bautastein við
Dalvíkurhöfn og að skrá sögu slyssins í
heimildarkvikmynd.
Bautasteinninn er kominn á sinn stað
og var afhjúpaður við athöfn 9. apríl
2013 þegar rétt 50 ár voru liðin frá sjó-
slysunum miklu, kenndum við páska-
hret.
Heimildarmyndin Brotið er þar stödd í
vinnslu að upptökum er að miklu leyti
lokið en mikið er óunnið í eftirvinnslu
og frágangi. Upphaflega var ætlunin
að setja saman 20 mínútna mynd um
sjóslysin á Dalvík en verkefnið óx mjög
í höndum aðstandenda sinna. Nú er
vinnuramminn klukkustundarlöng
mynd með Dalvíkurslysið sem kjarna
máls en fjallað er líka í víðara sam-
hengi um afleiðingar páskahretsins
annars staðar á landinu og um tengd
málefni.
Aðstandendur verkefnisins eru Haukur
Sigvaldason smiður, María Jónsdóttir,
textílhönnuður og nemi í margmiðlun,
og Stefán Loftsson kvikmyndagerðar-
maður. Sigvaldi Stefánsson, faðir
Hauks og afi Stefáns, fórst ásamt
Gunnari, bróður sínum, með vélbátn-
um Val frá Dalvík.
Minningarverkefnið í heild hefur verið
drifið áfram með ómældri sjálfboðavinnu
aðstandenda með Hauk í broddi fylkingar.
Kostnaður hleypur engu að síður á milljón-
um króna og verulega vantar upp á endar
nái þar saman.
Söfnunarreikningur er opinn fyrir frjáls
framlög og styrki, reikningsnúmerið er
301-26-009463, kt. 600207-1720 (Edik).
Þau voru viðstödd minningarathöfnina á Eyjafirði og áttu það semeiginlegt að hafa misst föður 9. apríl 1963.
Frá vinstri: Jóhanna Óladóttir, Guðrún Tómasdóttir, Óli Þór Jóhannsson, Haukur Sigvaldason og Jóhannes
Bjartmarsson.
Bautasteinninn við Dalvíkurhöfn. Hann var tekinn úr hafnargarðinum á Dalvík fluttur suður í
Kópavog þar sem Jón Adolf Steinólfsson, tréskurðarmeistari og listamaður, klappaði í hann lág-
mynd. Haukur Sigvaldason sá um áletruninina. Listaverk sem lætur engan ósnortinn.
Bautasteinn og Brotið
28