Ægir - 01.10.2014, Page 49
49
væri vandamál og síðan unnu
málsaðilar að því í sameiningu
að ráða bót á því.“
Sjómannafélögum hefur fækkað
Sjómönnum og sjómanna-
félögum hefur fækkað verulega
á undanförnum árum. „Já það
hafa orðið gríðarlegar breyting-
ar á þeim tíma sem ég hef
gegnt formennsku í Sjómanna-
sambandinu. Ég held að ég
muni það rétt að sjómanna-
deildir og félög innan Sjó-
mannasambandsins hafi verið
34 eða 36 talsins þegar ég varð
formaður en núna eru þau 18.
Sem dæmi eru öll sjómanna-
félög á Austurlandi sameinuð
undir einum hatti, mig minnir
að þau hafi verið tíu fyrir tutt-
ugu árum. Á Snæfellsnesi er
ekki langt síðan að það voru
þrjú sjómannafélög en nú er
þar eitt félag. Og það sama má
segja um Vestfirði, þar er eitt fé-
lag fyrir allt það svæðið.“
Sævar segir að fyrir tuttugu
árum hafi sjómenn innan vé-
banda Sjómannasambandsins
verið á bilinu fimm til sex þús-
und en nú séu þeir innan við
þrjú þúsund. „Ég held að við
hljótum að vera komnir að
ákveðnum mörkum í þessu og
við munum ekki sjá frekari
fækkun sjómanna. Ég neita því
ekki að ég hef miklar áhyggjur
af fækkun í áhöfnum skipa því
það getur leitt til aukinnar
slysahættu. Það býður einfald-
lega heim hættu á aukinni tíðni
slysa ef mönnum um borð í
skipunum er fækkað meira en
góðu hófi gegnir. Það staðfesta
allar rannsóknir, hvort sem um
ræðir vinnu á sjó eða í landi, að
eftir því sem starfsmennirnir
eru þreyttari því minni verður
einbeitingin og líkur á slysum
aukast,“ segir Sævar.
Gengið vel frá hruni
Sævar segist telja að almennt
sé staða íslenskra sjómanna
nokkuð góð í dag. „Öfugt við
marga aðra fara hagsmunir sjó-
manna ekkert endilega saman
við það sem gerist á almennum
vinnumarkaði. Upp úr aldamót-
um, þegar krónan var sem
sterkust, var staðan mjög erfið
og illmögulegt að manna mörg
skip vegna lágra launa og af-
urðaverð var sömuleiðis fremur
lágt. En frá hruni, frá 2008 og
fram á þetta ár, hefur gengið
vel í sjávarútvegi. Þegar gengur
vel hjá fyrirtækjunum eru sjó-
mennirnir yfirleitt að gera það
gott líka. Lágt gengi krónunnar
frá hruni og hátt afurðaverð
gerir það að verkum að afkom-
an hefur almennt verið góð, þó
svo að ég taki skýrt fram að af-
koman er mjög mismunandi
hjá einstaka hópum sjómanna.
Sáttur við að hætta
Fráfarandi formaður Sjómanna-
sambandsins er sáttur við að
hætta á þessum tímapunkti.
„Já, ég er það. Það var alfarið
mín ákvörðun að hætta. En ég
verð hér væntanlega í einhverja
mánuði til viðbótar á meðan
nýr formaður, sem er búsettur í
Vestmannaeyjum, flyst búferl-
um upp á land og kemur sér
fyrir hér á höfuðborgarsvæðinu.
Það er ekkert vandamál fyrir
mig því það vill enginn fá
verkalýðsforingja á áttræðis-
aldri í vinnu,“ segir Sævar og
hlær. Hann segist ekki hafa í
hyggju að fara í golfið þegar
hann lýkur störfum hjá Sjó-
mannasambandinu. „En ég
mun alveg örugglega fara í
göngutúra sem aldrei fyrr. Ég
hef undanfarin tvö og hálft ár
reynt að gefa mér tíma til þess
að fara í göngutúr á hverjum
einasta degi hér í Mosfellsbæ,
þar sem ég bý. Ég sé mest eftir
því að hafa ekki byrjað á þessu
miklu fyrr. Þetta er mér alveg
nauðsynlegt og mér líður ekki
vel ef ég missi úr einn einasta
dag. Ég finn að ég hef gott af
því að hreyfa mig og þegar
mikið er um að vera í vinnunni
jafnast ekkert á við að komast
út í náttúruna til að hreinsa
hugann. Maður kemur endur-
nærður til baka,“ segir Sævar.
Úr austur- og vesturbænum
Það er skemmtileg tilviljun að
bæði fráfarandi og nýr formað-
ur Sjómannasambandsins eiga
ættir sínar og uppruna í Fjalla-
byggð – Sævar er Ólafsfirðingur
en Valmundur er Siglfirðingur.
„Já, það er mjög gaman að
þessu. Eins og vinir mínir og
frændur í Fjallabyggð segja í
dag, þá er Valmundur úr vestur-
bænum en ég úr austurbæn-
um,“ segir Sævar Gunnarsson.
Strandgötu 1 Neskaupstað Sími:4700 800 Fax:4700 801
• Veiðarfæraþjónusta
• Gúmmíbátaþjónusta
• Fiskeldisþjónusta
Stöðug þróun veiðarfæra í samvinnu
við sjómenn og útgerðir.
Fjarðanet er aðili að Hampidjan Group
Neskaupstaður / Fjáskrúðsfjörður / Akureyri / Ísafjörður
www.fjardanet.is fjardanet@fjardanet.is
Víðtæk þekking og reynsla
í uppsetningu og gerð veiðarfæra
Alhliða veiðarfæraþjónusta í höndum fagmanna