Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2014, Side 54

Ægir - 01.10.2014, Side 54
54 Sjómennt – fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga styrk? Kynntu þér rétt þinn á sjomennt.is starfstengt nám eða námskeið • tómstundastyrkir • meirapróf kaup á hjálpartækjum vegna lestrar- eða ritörðugleika PIPA R\TBW A • SÍA • 131721 Átt þú rétt á Félagsmenn Sjómenntar sem unnið hafa í að minnsta kosti sex mánuði á síðastliðnum tólf mánuðum geta sótt um styrk til félagsins: SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA sjomennt.is • sjomennt@sjomennt.is • sími: 514 9601 síðustu þriggja ára þær hæstu frá árinu 1996. Vísitala djúpkarfa hefur farið lækkandi frá árinu 2000 en var þó hærri í ár en í fyrra. Grálúð- ustofninn virðist einnig heldur á uppleið miðað við árin 2004- 2007 þegar vísitalan var í lág- marki en Hafrannsóknarstofnun segir hana þó eiga nokkuð í land með að ná tímabilinu 1997-2002. „Stofnvísitölur steinbíts og hlýra voru lágar líkt og árin 2010-2013. Stofnvísitala ufsa hækkaði frá árinu 2009 til ársins 2012 og hefur haldist svipuð síðan þá. Mest var af ufsa á lengdarbilinu 50-70 cm. Vísitala skötusels jókst eftir að hafa farið ört lækkandi frá ár- inu 2010 og mældist nú svipuð og árið 2012. Haustrallið sýnir að nýliðun skötusels (fjöldi eins árs fisks) hefur verið slök síð- ustu fimm ár sem er í samræmi við stofnmælingu í mars. Stofnvísitala löngu hefur haldist há frá árinu 2007, rúm- lega tvöfalt hærri en hún var á árunum 1996-2006. Stofnvísi- tala keilu hefur einnig haldist há frá árinu 2006 og var mæl- ingin í ár svipuð og verið hefur frá 2009. Stofnvísitala blálöngu lækkaði lítillega og mældist svipuð og árið 2012. Stofnvísitala gulllax jókst um rúmlega helming samanborið við árin 2010-2013 og mældist sú hæsta frá árinu 2000. Þessi mikla aukning frá árinu 2013 helgast af miklum afla á fáum stöðvum og öryggismörk mæl- inganna eru mjög víð. Stofnvísitala skarkola hefur sveiflast mikið frá árinu 2008 og hækkaði mikið í ár samanborið við árið 2013. Sú mikla aukning sem var árin 2008, 2012 og 2014 helgast af því að stór hluti heildaraflans fékkst á fáum stöðvum og öryggismörk mæl- inganna þar af leiðandi við. Stofnvísitölur þykkvalúru og langlúru hækkuðu árið 2014 eftir lækkun árin 2010-2013. Vísitölur þessara tegunda eru háar miðað við árin 1996-2004. Vísitölur sandkola og skráp- flúru eru enn mjög lágar. Vísi- talan hefur hækkað lítillega hjá sandkola frá árinu 2010, en haldist svipuð hjá skrápflúru frá árinu 2008,“ segir í frétt Haf- rannsóknastofnunar. Afla landað á Siglufirði. Mælingar staðfesta að þorskstofninn er sterkur um þessar mundir.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.