Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1. M A Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 101. tölublað 103. árgangur
+ 16 ÁRA12 – 16 ÁRA2 – 11 ÁRA
FLUG
FRELSI
FLUG
FÉLAGAR
FLUG
KAPPAR
is
le
ns
ka
/s
ia
.is
FL
U
73
75
4
04
/1
5
FLUGINNEIGNIR
LÆGRA VERÐ FYRIR FERÐAGLAÐA
Bókanlegt í síma 570 3030
Nánari upplýsingar á FLUGFELAG.IS
TÍU FERÐIR
49.900 kr.
SEX FERÐIR
68.550 kr.
SEX FERÐIR
49.500 kr.
FÓTBOLTINN 2015 ÁKAFLEGA ERFITTEN GEFANDI
LEIKVERK 40 SÍÐNA BLAÐAUKI
UM PEPSÍ-DEILD KARLA
ENDATAFL 46
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Hvert og eitt aðildarfélag Starfs-
greinasambandsins hefur ákvörð-
unarrétt um það hvernig það beitir
sínum verkfallsrétti og getur látið
kjósa um frekari verkfallsheimildir
á einstaka stöðum og herða á þeim
ef svo ber undir,“ segir Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness. Hann segir að fé-
lagið sé svo sannarlega að skoða
hvort herða eigi á verkfallsaðgerð-
um hjá Speli sem á og rekur Hval-
fjarðargöngin. „Viðbragðsáætlun
sem Almannavarnir hafa gefið út
um Hvalfjarðargöng gerir ráð fyrir
veigamiklu hlutverki starfsmanna
gjaldskýlanna. Við hörmum því að
menn skuli ekki virða neyðaráætl-
unina með þessum hætti og við
teljum þetta því kolólöglegt.“
Buðu Speli undanþágu
Verkföll hjá aðildarfélögum
Starfsgreinasambandsins hófust í
gær og voru þar á meðal starfs-
menn gjaldskýlanna við Hvalfjarð-
argöng. Segir Vilhjálmur að for-
svarsmönnum Spalar hafi verið
boðið að sækja um undanþágu til
þess að uppfylla neyðaráætlunina.
„Þeir í hroka sínum óskuðu ekki
eftir þeirri undanþágu. Ég er bú-
inn að vera í sambandi við þá sem
starfa í gjaldskýlinu, alls átta
manns, og þeir eru leiðir, sárir og
reiðir yfir því að það skuli vera
gengið í þeirra störf og ekki óskað
eftir undanþágu,“ segir Vilhjálmur
og bætir við að verið sé að skoða
málið með lögfræðingum Alþýðu-
sambandsins. „Það er ljóst að við
erum ekki að fara í neinn slag við
Spöl um lokun ganganna. Við
hörmum það bara að þeir skuli
ekki vera tilbúnir til þess að virða
þann rétt sem launafólk á.“
Að öðru leyti segir Vilhjálmur að
verkfallið í gær hafi farið vel fram.
„Það var eitt annað atriði sem við
þurftum að hafa afskipti af, það var
í sambandi við strætó. Það byggð-
ist á misskilningi og þegar athuga-
semd var gerð við forsvarsmenn þá
var því kippt í liðinn,“ segir Vil-
hjálmur.
Skoða aðgerðir gegn Speli
Formaður Verkalýðsfélags Akraness fer yfir málefni Spalar með lögfræðingum
ASÍ Óánægja með að ekki hafi verið óskað eftir formlegri undanþágu
MLítilsháttar uppákomur »2
Myndlistarmaðurinn Christoph
Büchel, sem verður fulltrúi Íslands á
Feneyjatvíæringnum sem verður
opnaður 9. maí, skapar í aflagðri
kirkju í Feneyjum verk sem mun
kallast Moskan. Er það unnið í sam-
starfi við samfélög múslima á Íslandi
og í Feneyjum en í hinum gamla,
sögulega hluta Feneyja hefur aldrei
verið byggð moska. Tilgangurinn
með verkinu er að draga athygli að
stofnanavæddum aðskilnaði og for-
dómum í samfélaginu.
Büchel fæddist í Sviss en hefur frá
árinu 2007 starfað á Íslandi. Hann
hefur sett upp viðamiklar sýningar í
söfnum víða um lönd. »4
Íslenski skálinn Moska Büchels
verður í aflagðri kirkju frá 10. öld.
Moska í
íslenska
skálanum
Fjölmörg börn
sem missa for-
eldri sitt missa
um leið tengsl við
stóran hluta fjöl-
skyldu sinnar. Á
vegum rannsókn-
arstofnunar Ár-
manns Snævars
um fjölskyldu-
málefni er að
hefjast rannsókn
á málefninu. Á Landspítalanum
starfar sérfræðiteymi en efla mætti
umfang þess og vægi. Sérfræðingar
eru sammála um að aukin fræðsla og
stuðningur geti skilað sér í auðveld-
ara bataferli syrgjandi barna, en
samningur um umgengni fjölskyldu-
meðlima við barn, gerður ef foreldri
þess er dauðvona, getur haft mjög
jákvæð áhrif. Sorgarferli barna er
ólíkt fullorðinna, nauðsynlegt er að
veita því meiri athygli svo ekki komi
fram frekara rof á tengslum. »22
Minni tengsl
þegar for-
eldri deyr
Börn Gæta þarf
að umgengni.
Starfsmenn Spalar í Hvalfjarðargöngunum
lögðu niður störf frá klukkan 12 á hádegi í gær,
eins og aðrir félagsmenn Starfsgreinasambands-
ins, og stóð það til miðnættis. Akstur um göngin
var gjaldfrjáls meðan á verkfallinu stóð. Deilt er
um það hvort um verkfallsbrot hafi verið að
ræða.
Hörð átök eru um þessar mundir á vinnumark-
aði. Auk þessa hálfs sólarhrings verkfalls 10.000
félagsmanna SGS hafa tæplega 700 félagar í
BHM nú verið í verkfalli í tæpar þrjár vikur og
fleiri félög huga að aðgerðum.
Gátu ekið gjaldfrjálst um Hvalfjarðargöng
Morgunblaðið/Golli
1. maí haldinn hátíðlegur í dag í skugga verkfalla og vinnudeilna