Morgunblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Malín Brand
malin@mbl.is
Fyrir fimmtíu árum ákvað landeig-
andi nokkur í Mosfellsdal að leyfa
nokkrum akstursáhugamönnum að
láta gamminn geisa í malargryfjum
á landi sínu. Þetta var í raun upphaf
torfærunnar á Íslandi. „Þetta var nú
þannig að lögreglan hótaði mönnum
fangelsisvist fyrir svona glanna-
skap,“ segir Helga Katrín Stef-
ánsdóttir, formaður Torfæruklúbbs
Suðurlands, en klúbburinn hefur
ásamt Flugbjörgunarsveitinni á
Hellu undirbúið mikla afmælissýn-
ingu í tilefni fimmtíu ára afmælis
torfærunnar. Svo vel vill til að af-
mælisdagurinn, 2. maí, er einmitt á
laugardegi og því vel við hæfi að
efna til veglegrar veislu á aksturs-
íþróttasvæði björgunarsveitarinnar
sem er rétt austan við Hellu.
Benni fyrsti Íslandsmeistarinn
Á því herrans ári 1965 gaf Jóel Jó-
elsson, garðyrkjumaður í Reykjahlíð
í Mosfellsdal, ökumönnum leyfi til að
halda torfærukeppni í malargryfjum
landareignar sinnar og fór Egill Ing-
ólfsson með sigur af hólmi á Willys
CJ5 sem þá var svo gott sem nýr,
eða frá 1964. „Við höfum óskráð
hverjir voru Íslandsmeistarar til
1975 og var Benedikt Eyjólfsson
fyrsti Íslandsmeistarinn í torfær-
unni,“ segir Helga Katrín.
Benedikt hefur aldrei misst áhug-
ann á akstri og akstursíþróttum og
er í dag betur þekktur sem Benni í
Bílabúð Benna. Hann lét hótanir um
fangelsisvist fyrir torfæruakstur
ekki stoppa sig og sömu sögu er að
segja um aðra kappa sem voru
hvergi bangnir á þessum fyrstu ár-
um torfærunnar.
Vikið fyrir tryllitækjum
Til að byrja með var keppt á
venjulegum bílum og veigruðu menn
sér ekki við að bregða sér af bæ á
fjölskyldubílnum til að taka þátt í
torfærunni. „En í dag er þetta allt
annað. Keppt er á sérútbúnum
keppnistækjum og mikil þróun hef-
ur orðið bæði í brautum og bílum á
þessum tíma,“ segir Helga Katrín.
Á morgun, laugardag, klukkan 13
hefst sýningin við Hellu og hafa
skipuleggjendur fengið gömlu tor-
færukappana til liðs við sig. „Við
ætlum að sjá hvort þeir kunni þetta
ennþá. Sumir koma á bílum sem þeir
kepptu á eða mjög svipuðum bílum.
Sumir hafa fengið bíla sem eru með
upprunalegu vélunum þeirra eða
bíla sem þeir smíðuðu sjálfir í gamla
daga og nýir keppendur eru á þann-
ig að það er allur gangur á því.“
Brautir verða gerðar og þátttak-
endur aka eftir þeim. Átján kappar
úr torfærusögu Íslands hafa boðað
komu sína á sýninguna og eru nöfnin
án efa mörgum minnisstæð. Má þar
til dæmis nefna þá Árna Kópsson,
Ragnar Skúlason og Benedikt Eyj-
ólfsson. Sýningin hefst kl. 13 og að
henni lokinni verður fleytingakeppni
á ánni og reynt að slá met í vatna-
akstri.
Morgunblaðið/Golli
Sagan Torfærusagan spannar heil fimmtíu ár og munu elstu kapparnir
verða á Hellu á morgun þar sem afmælissýningin hefst klukkan 13.
„Sjáum hvort þeir
kunni þetta ennþá“
Morgunblaðið/Golli
Torfæran Hafsteinn Þorvaldsson á
torfærumóti í Kollafirði 2010.
Fimmtíu ára afmæli torfærunnar
fagnað á morgun Fleytingakeppni
og reynt við hraðamet í vatnaakstri
Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann í 15 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir og þjófnað.
Þyngdi Hæstiréttur þar dóm Héraðsdóms Norður-
lands eystra sem hafði dæmt manninn í átta mánaða
fangelsi. Maðurinn var ákærður fyrir fimm líkams-
árásir á fyrrverandi sambýliskonu sína, stórfelldar
ærumeiðingar í hennar garð og þjófnað með því að
hafa í tvígang í heimildarleysi millifært peninga af
bankareikningi hennar á eigin reikning.
Hæstiréttur taldi sannað að maðurinn hefði gerst
sekur um líkamsárásir gagnvart konunni en taldi ekki
nægilega afmarkað hvernig hann hefði almennt
móðgað og smánað konuna.
Beitti fyrrverandi sambýliskonu sína ofbeldi
Dómur Hæstiréttur
þyngdi refsinguna.