Morgunblaðið - 01.05.2015, Page 11
Kalt Gesturinn Vigdís fangaði form í klaka og snjó, nóg af því á Ströndum. Skólinn Þórey tók mynd af Finnbogastaðaskóla og hafði skiltin í forgrunni.
Áhugasamur Krakkarnir lærðu
heilmikið um myndavélar. Hér leið-
beinir Yrsa Kára við myndatöku.
„Mér fannst svo
skemmtilegt að læra
um myndavélina og
ljósmyndun, við vor-
um líka svo mikið úti
og það finnst mér svo
gaman. Ég hlakka til
að setja myndirnar
mínar á pappír,“ segir
Kristín í 7. bekk sem
fannst námskeiðið
æðislegt.
Fjall Kristín tók mynd af Þóreyju að taka mynd þar sem Yrsa aðstoðaði.Hissa Magnea tók mynd af kindunum í fjárhúsunum heima hjá sér í Bæ.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
TRYGGVIÓLAFSSONhefur starfað semmálari í yfir 40 ár, búandi
í Danmörku. Hann hefur samhliða því að mála, unnið einar 50
grafíkmyndir í prentverki á Fjóni, offset-litografíur. Einnig hefur
hann fengið prentaðar þrjár möppur með grafíkmyndum í
Danmörku, að ótöldummyndum í danskar bækur.
Eftir að Tryggva fannst hann hafa „málað sig útí horn“ í lok
abstrakttímabils sínsum1967, fórhannaðþreifa sigáframmeðað
mála fígúrat́v málverk. Þessar tilraunir veturinn 1968-69 opnuðu
fyrir honum möguleika á að nota myndefni úr dagblöðum og
öðrum fjölmiðlum í gerðmynda og það gerir hann enn.
Myndmál sitt hefurhannhaldið áframað ræktaæsíðan, einsog
gróður í garði. Hann hefur orðið póetískari og jafnframt djarfari
í myndmáli sínu með árunum. Ekki síst á allra síðustu tímum
hefur mátt finna meiri skáldskap í verkunum, ásamt kímni og
persónulegri litameðferð.
Eftir slys 2007 flutti Tryggvi til Íslands og eftir það hefur hann
ekki getað málað. Hann er þó ekki alveg af baki dottinn, því að
með hjálp góðra aðstoðarmanna er hann enn kominn af stað í
grafíkinni, nú á Íslandi.
TRYGGVI ÓLAFSSON
NÝ GRAFÍK
Jarðnesk ljóð
Þér er boðið á opnun sýningar
Tryggva Ólafssonar á nýrri grafík
í Gallerí Fold föstudaginn 1. maí
kl. 15.00 –17.00.
Léttar veitingar og músík.
Allir velkomnir.
B O Ð S K O R T
Rauðarárstígur 12 - 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.isÞverholt 13 105 Reykjavík · Sími 511 1234 · www.gudjono.is