Morgunblaðið - 01.05.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Smiðjuvegi 7
200 Kópavogi
Sími: 54 54 300
ispan@ispan.is
ispan.is
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd:Josefine
Unterhauser
Einar Þorsteinn Ás-
geirsson, arkitekt, lista-
maður og heimspek-
ingur, lést í Reykjavík
28. apríl sl., 72 ára að
aldri. Einar fæddist í
Reykjavík 17. júní árið
1942. Foreldrar hans
voru Ásgeir Ólafsson
Einarsson dýralæknir
og Kirstín Lára Sigur-
björnsdóttir kennari.
Einar Þorsteinn lauk
stúdentsprófi frá MR
árið 1962, lauk Dipl.-
Ing.-prófi í arkitektúr
frá Tækniskóla Hannover í V-
Þýskalandi 1969 og stundaði fram-
haldsnám og störf á teiknistofunni
Warmbronn hjá Frei Otto á árunum
1969 og 1970. Einar Þorsteinn kynnt-
ist árið 1964 hugmyndum Richards
Buckminster Fuller (Bucky) sem
varð mikill áhrifavaldur í störfum
Einars alla tíð.
Hann vann við tilraunastofu Burð-
arforma en vegna sérstakra arkitekt-
úrlausna á Íslandi var hann oft nefnd-
ur kúluhúsaarkitektinn hér á landi.
Hann skrifaði um arkitektúr og
fleira fyrir Morgunblaðið á árunum
1970 til 1993 og eftir hann liggja
nokkrar bækur. Starfaði með fjölda
listamanna erlendis, m.a. Ólafi Elías-
syni í Berlín um
margra ára skeið, en
Ólafur notaði fimm-
falda symmetríu Ein-
ars Þorsteins við hönn-
un á glerhjúp Hörpu.
Einar Þorsteinn
sinnti margvíslegri
hönnun, starfaði í
Þýskalandi í rúm 20 ár
og hélt nokkrar sýn-
ingar í Evrópu. Árið
2011 var haldin retró-
spektífsýning í Hafn-
arborg á starfsferli
hans. Þá heimsótti
hann öll ríki Bandaríkjanna þegar
hann vann við gerð sérstaks arkitekt-
úrs á Íslandi, sem af Pétri Ármanns-
syni arkitekt var lýst sem „geimald-
ar-arkitektúr á Íslandi“. Árið 2006
setti Einar Þorsteinn á fót stofnunina
„I am: Stofnun til eflingar hugans“ en
hann hafði mikinn áhuga á heimspeki
og andans málum. Einnig hafði hann
áhuga á geimferðaáætlunum og var í
samvinnu við geimferðahönnuði í
Boston. Árangurinn var farartækið
Scorpion Rover til nota í geimferðir
um Mars og tunglið.
Einar var þrígiftur og eru börn
hans af fyrsta hjónabandi Sif og Rík-
harður. Barnabörnin eru þrjú; Auður,
Geir og Lára Kristín Ragnarsbörn.
Andlát
Einar Þorsteinn
Ásgeirsson arkitekt
Fjallahjólreiðamenn hjóluðu af
stað í sumarið af fullum krafti í
gærkvöldi eftir kaldan vetur þeg-
ar fyrsta bikarmót ársins í fjalla-
hjólreiðum, Morgunblaðshring-
urinn, fór fram.
Góð þátttaka var á mótinu og
endaði Ingvar Ómarsson, fyrsti at-
vinnumaðurinn í hjólreiðum á Ís-
landi, á að vinna karlaflokkinn og
María Ögn Guðmundsdóttir
kvennaflokk en þau voru bæði út-
nefnd hjólreiðafólk ársins 2014.
Fyrir mótinu stóð Hjólreiða-
félag Reykjavíkur í samstarfi við
Morgunblaðið og fór það fram við
Rauðavatn líkt og verið hefur um
langt árabil. Brautin var með
nokkuð breyttu sniði í ár þar sem
aðstöðuleysi hefur lengst af gert
framkvæmd mótsins erfiða, að
sögn Bjarna Más Gylfasonar í
keppnisnefnd mótsins, og því sé
hið nýtilkomna samstarf við Morg-
unblaðið ákaflega ánægjulegt.
Ingvar og María sögðu í samtali
við Morgunblaðið eftir mótið að
það markaði upphaf keppn-
istímabilsins í fjallahjólreiðum í
ár en sex mót eru fyrirhuguð í
þessum mánuði.
Þau segja veturinn vera mjög
mikilvægan undirbúningstíma í
hjólreiðum og í raun fari meiri
tími í æfingar yfir vetrartímann
þó svo að meira álag sé á keppn-
ishjólreiðamönnum yfir sumarið.
Ingvar stefnir að því að keppa
á 30 mótum í sumar, á 20 mótum
hér á landi og 10 erlendis en
hann heldur utan til Þýskalands
núna um helgina þar sem hann
keppir á mótaröð í fjallahjólreið-
um. María býst við því að móta-
fjöldinn hennar verði í kringum
20.
Þau segja hjólreiðar á Íslandi
hafa sótt mikið í sig veðrið á und-
anförnum árum, ekki síst á lands-
byggðinni. ash@mbl.is
Morgunblaðshringurinn markar upphaf keppnistímabilsins í fjallahjólreiðum
Hjólreiðar Ingvar Ómarsson, fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í hjólreiðum,
vann karlaflokk Morgunblaðshringsins sem fór fram við Rauðavatn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hádegismóaar Hjólreiðamenn komu saman á bílastæðinu við skrifstofur Morgunblaðsins í Hádegismóum. Þaðan
var hjólað af stað á keppnisbrautina. Að móti loknu fór verðlaunaafhending fram í sal Morgunblaðsins.
Kvennaflokkur Keppt var í þremur flokkum á mótinu, í flokkum karla og í
einum flokk kvenna þar sem María Ögn Guðmundsdóttir varð hlutskörpust.
Fyrsta bikarmót sumarsins í gær
Rykið dustað af fjallahjólunum
Ingvar Ómarsson sigraði í karlaflokki
Bikarmót Mótið markar upphaf
sumarsins í fjallahjólreiðum.