Morgunblaðið - 01.05.2015, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Angan, bragð og tónar Toscana-
héraðs á Ítalíu verða í fyrirrúmi í
Vestmannaeyjum dagana 7.-9. maí
næstkomandi. Einar Björn Árnason
matreiðslumeistari, sem rekur veit-
ingastaðinn Einsa kalda í Hótel
Vestmannaeyjum auk veisluþjón-
ustu, hefur boðið matreiðslumeist-
urum frá Toscana, ferðamálafröm-
uði og óperusöngkonunni Höllu
Margréti Árnadóttur ásamt undir-
leikara til Vestmannaeyja.
Sigurjón Aðalsteinsson, veitinga-
stjóri Einsa kalda, segir að ítölsku
dagarnir í Vestmannaeyjum hefjist
með styrktartónleikum Höllu Mar-
grétar fyrir Eyjarós krabbavörn í
Vestmannaeyjum. Hún syngur við
undirleik Svetlönu Kononenko, sem
einnig er búsett í Parma á Ítalíu.
Efnisskráin er fjölbreytt og spann-
ar allt frá íslenskum sönglögum til
fjörugrar Napoli-tónlistar. Tónleik-
arnir verða fimmtudaginn 7. maí kl.
20.00 í Safnaðarheimili Landa-
kirkju og er miðaverð 2.500 krón-
ur. Miðar eru seldir í Eymundsson í
Eyjum og við innganginn. Ágóðinn
rennur óskiptur til Eyjarósar.
Föstudagskvöldið 8. maí verður
ítölsk veisla á Einsa kalda.
Meistarakokkar matreiða
„Það verða hjá okkur tveir ítalsk-
ir meistarakokkar, þeir Michele
Mancini og Claudio Savini. Þema
kvöldsins verður Ítalía, réttirnir
tengjast Ítalíu og léttvínin verða
frá Toscana,“ segir Sigurjón. „Við
ætlum að bjóða upp á sjö rétta mat-
seðil. Veislan verður á kostakjörum
eða 8.900 krónur á mann fyrir mat
fyrir utan vín en 15.700 með fjórum
glösum af sérvöldum ítölskum vín-
um. Ítalski ferðamálafrömuðurinn
Alberto di Cappa kynnir alla rétt-
ina og talar um matarvenjur Ítala.
Halla Margrét túlkar og verður
honum til aðstoðar og mun hún tala
um tengsl tónlistar og matar.“
Ítalskar trufflur (jarðsveppur)
verða notaðar við matseldina. Sig-
urjón segir að Savini sé trufflu-
sérfræðingur og eigi hlut í einu
þekktasta fyrirtæki Ítalíu sem
framleiði afurðir úr trufflum. Hann
er í góðu sambandi við marga
þekkta matreiðslumeistara á
fremstu veitingastöðum heimsins.
Þeir vinna að þróun rétta með
trufflum í samvinnu við Savini. Sig-
urjón segir það merkilegt í sjálfu
sér að þessi þekkti snillingur gefi
sér tíma til að heimsækja litla eyju í
Norður-Atlantshafi til að matreiða.
„Ég sá á þekktum veitingastað að
einn rétturinn af þessum átta, ris-
otto með hvítum vetrartrufflum
(Alba-trufflum), kostaði þar einn og
sér um 100 dollara eða yfir 13 þús-
und krónur! Það er erfitt að finna
dýrari afurð en hvítar vetrar-
trufflur,“ segir Sigurjón. Hann seg-
ir að kílóið kosti 12-20 þúsund doll-
ara (1,6-2,7 milljónir).
Alberto di Cappa og Halla Mar-
grét verða svo með sérstaka Ítal-
íukynningu í Eldheimum laug-
ardaginn 9. maí og hefst hún kl.
18.00 og er aðgangur ókeypis.
Þar munu þau sýna myndbönd
frá Ítalíu, segja frá landi og þjóð
auk þess sem Halla Margrét mun
syngja fyrir gestina.
Toscana-veisla og trufflur í Eyjum
Ítalskir dagar hjá Einsa kalda Ítalskir matreiðslumeistarar með sjö rétta veislu Sérvalin borð-
vín frá Toscana Halla Margrét heldur tónleika á ítölskum dögum í Vestmannaeyjum 7.-9. maí
Ljósmynd/Gunnar Freyr Steinsson
Einsi kaldi Veitingahús Einars Björns Árnasonar er í efsta sæti 80 veitingastaða á Suðurlandi hjá TripAdvisor.
Tónlist Halla Margrét syngur við
undirleik Svetlönu Kononenko.